Hlutur landeigenda við Geysi metinn 1,1 milljarður

Rík­is­sjóður ætlar að láta vinna yfir­mat á verð­mæti lands á Geys­is­svæð­inu sem ríkið keypti af sam­eig­endum sínum í októ­ber 2016. Matið verður bind­andi fyrir báða aðila kaup­samn­ings­ins.

Rík­is­sjóður ætlar að láta vinna yfir­mat á verð­mæti lands á Geys­is­svæð­inu sem ríkið keypti af sam­eig­endum sínum í októ­ber 2016. Matið verður bind­andi fyrir báða aðila kaup­samn­ings­ins.

Ríkið keypti eign­ar­hlut­inn, svæði sem umlykur sér­eign­ar­land rík­is­ins innan girð­ingar þar sem hver­irnir Geysir og Strokkur eru meðal ann­ars. Málið var tekið fyrir á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í morgun.

Við kaupin árið 2016 náð­ist ekki sam­komu­lag um verð­mæti eign­ar­hlut­ans, og því var ákveðið að dóm­kvöddum mats­mönnum yrði falið að úrskurða um kaup­verð sam­eign­ar­lands­ins. Í nið­ur­stöðu þeirra sem skilað var 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn kemur fram að lagt hafi verið til grund­vallar að ekki væri annað fært en að miða verð­mæti lands­ins út frá því að hægt væri að inn­heimta aðgangs­eyri á svæð­inu. Mark­aðs­verð lands­ins að mati hinna dóm­kvölddu mats­manna, 1.113 millj­ónir króna, er því fundið út frá þessum for­sendum.

Er það mat rík­is­ins að ekki væri annað for­svar­an­legt í stöð­unni en að óska eftir fimm manna yfir­mati á verð­mæt­inu sem báðum samn­ings­að­ilum er heim­ilt að gera. Gert er ráð fyrir að nið­ur­staða liggi fyrir síðar á þessu ári.

Ríkið hefur um margra ára skeið átt í við­ræðum við land­eig­endur á svæð­inu um hugs­an­leg kaup rík­is­ins á eign­ar­hluta þeirra. Eign­ar­hlutur rík­is­ins í sam­eign­ar­land­inu fyrir kaupin var 25,28 pró­sent en sam­eig­enda 74,72 pró­sent. Um er að ræða svæði alls 19,9 hekt­ara að stærð, innan þess svæðis átti ríkið sem sér­eign um 2,3 hekt­ara lands fyrir miðju svæð­is­ins þar sem hver­irnir eru stað­settir. Það sem eftir stendur, um 17,6 hekt­arar var sam­eign rík­is­ins og Land­eig­enda­fé­lags Geysis ehf.

Við und­ir­ritun samn­ings­ins tók ríkið form­lega við umráðum alls lands sam­eig­enda innan girð­ingar við Geysi. Þar með var ríkið orðið eig­andi alls svæð­is­ins, en átti fyrir stóran hlut aðliggj­andi land­svæða utan girð­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár