Rússar herða tökin í Úkraínu

Rússar sýna nú ógn­andi til­burði við landa­mæri Úkraínu. Samhliða beita þeir ýmsum tólum fjöl­þátta­hern­aðar og Vest­ur­lönd velkj­ast í vafa um við­brögð.

Skriðdreki rússneskra aðskilnaðarsinna í Donbas á ferðinni á heræfingu í upphafi þessa árs. Yfir 15 þúsund hafa látið lífið síðan átökin í Úkraínu hófust árið 2014. Nú eru blikur á lofti.
Skrið­dreki rúss­neskra aðskiln­að­ar­sinna í Donbas á ferð­inni á her­æf­ingu í upp­hafi þessa árs. Yfir 15 þús­und hafa látið lífið síðan átökin í Úkraínu hófust árið 2014. Nú eru blikur á lofti. Mynd: EPA

Stríðið í Austur-Úkraínu, sem hefur kraumað í nokkur ár og vakið mis­mikla athygli, hefur stig­magn­ast að und­an­förnu. Rússar hafa flutt mik­inn her­afla að landa­mærum Úkraínu, allt að hund­rað þús­und her­menn, og Banda­ríkin séð ástæðu til að bregð­ast við og íhug­uðu um tíma að senda flug­móð­ur­skip inn á Svarta­haf. Átökin hófust árið 2014, skömmu eftir að Rússar inn­lim­uðu Krím­skaga, þegar upp úr sauð á milli aðskiln­að­ar­sinna – sem Rússar styðja – og stjórn­valda í Kænu­garði.

Úkraína færir sig í átt að Evrópu – Rússar bregðast við

Ástæða átak­anna er m.a. meint ósætti hins fjöl­menna rúss­neska minni­hluta við til­burði stjórn­valda til auk­inna sam­skipta í vest­ur­átt, m.a. með nán­ari sam­vinnu við Evr­ópu­sam­bandið og NATO. Átökin fara nú fram í hér­uð­unum Donetsk og Luhansk á svæði sem kall­ast Donbas og liggur að landa­mærum Rúss­lands. Svæðið á sér langa sögu, hvar rúss­nesk áhrif hafa ætíð verið mikil og Rússar verið fjöl­mennir. Þeir eru minni­hluti sem telur tæp­lega 40 pró­sent þeirra rúm­lega 6 millj­óna sem þar búa.

Í nóv­em­ber 2013 til­kynnti Janúkó­vitsj, þáver­andi for­seti – sem hlið­hollur var Rússum – að úkra­ínsk stjórn­völd myndu ekki und­ir­rita umfangs­mik­inn sam­starfs­samn­ing við Evr­ópu­sam­bandið. Sá samn­ingur fól í sér fyrsta skrefið í átt að nán­ari sam­vinnu og á end­anum inn­göngu lands­ins í Sam­bandið. Úkra­ínu­búar streymdu út á götur í mót­mæla­skyni og örygg­is­sveitir gerðu árásir á mót­mæl­endur sem komu saman á Maidan-torgi í mið­borg höf­uð­borg­ar­innar Kænu­garðs. And­staðan var mikil og á end­anum hrökkl­að­ist Janúkó­vitsj for­seti frá völdum.

Á vor­mán­uðum árið 2014 kaus úkra­ínska þingið starf­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­seta. Þeir tóku upp þráð­inn og lýstu þegar í stað yfir þeim fyr­ir­ætl­unum að und­ir­rita samn­ing­inn og færa landið nær nán­ara Evr­ópu­sam­starfi. Rússar brugð­ust við með her­valdi og inn­limun Krím­skaga og í kjöl­farið brut­ust út bar­dagar í Donbas, þar sem rúss­neskar örygg­is­sveitir studdu dyggi­lega hreyf­ingu aðskiln­að­ar­sinna. Rússar hafa nú náð und­ir­tökum á svæð­inu og rétt­læta aðgerðir og stuðn­ing við upp­reisn­ar­menn með því að rúss­neskur minni­hluti sé kúg­aður og ofsóttur innan landamæra Úkraínu – sem þeim beri skylda að verja.

Síðan átökin hófust árið 2013 hafa hátt í 15 þús­und manns lát­ist og tugir þús­unda særst. Þar með taldir þau 298 sem létu lífið þegar upp­reisn­ar­menn studdir af rússum skutu niður mala­síska far­þega­þotu á leið frá Hollandi. Hryðju­verk eru dag­legt brauð á her­náms­svæð­unum og um ein og hálf milljón manna, íbúar Krím­skaga og Donbas-svæð­is­ins, eru á flótta inn­an­lands eftir að hafa verið neyddir til að yfir­gefa heim­ili sín vegna her­náms Rússa. Mik­il­vægt er að taka fram að þar á meðal eru margir íbúar af rúss­neskum upp­runa.

Nýlega til­kynntu Úkraína og NATO um sam­eig­in­legar her­æf­ingar og kallar Vladimir Zelensky for­seti eftir því að inn­göngu Úkraínu í banda­lagið verði flýtt. Hann hefur lagt áherslu á frið­sam­lega lausn deil­unnar en hvatti NATO til að styrkja hern­að­ar­lega veru sína á Svarta­hafs­svæð­inu og full­yrti að slík ráð­stöfun myndi virka sem „öfl­ugur fæl­ing­ar­máttur“ gagn­vart Rússum. Eftir fund­inn tísti Stol­ten­berg: „NATO styður full­veldi Úkraínu og land­helgi. Við erum áfram skuld­bundin til náins sam­starfs.“

Aðferðir Rússa – fjölþáttahernaður í sinni skýrustu mynd

Fyrir Rússa er Úkraína eins og varn­ar­múr milli þeirra og Vest­ur­landa og eru hin auknu vest­rænu tengsl því aug­ljós þyrnir í augum. Þetta á ekki bara við um Úkraínu því svip­aðir hlutir hafa verið að ger­ast í öðrum fyrrum Sov­étlýð­veldum eins og Georgíu. Til að við­halda ítökum sínum og vörnum hefur Rússland þannig í reynd aldrei við­ur­kennt algilt full­veldi margra fyrrum Sov­étlýð­velda.

Eftir að Rússar inn­lim­uðu Krím­skaga árið 2014 hafa þeir jafnt og þétt einnig náð und­ir­tökum á Donbas-svæð­inu. Að þeirra sögn með hjálp rúss­neskætt­aðra sjálf­boða­liða – litlu grænu kall­anna – en ekki skipu­lögðum hern­að­ar­að­gerðum.

Hins vegar er það stað­reynd að Rússar beita fjöl­þátta­hern­aði til að ná fram mark­miðum sínum, aðferðum sem þeir nota einnig í Eystra­salts­ríkj­unum og á Balkanskaga – í ríkjum sem þó sum eiga aðild bæði að NATO og ESB. Fjöl­þátta­hern­aður Rússa er ekki ein­ungis bund­inn við lönd þar sem þeir telja sig eiga ein­hverra beinna hags­muna að gæta því þeir beita slíkum aðferðum víða um heim. Vestur-Evr­ópu­lönd hafa t.a.m. ekki farið var­hluta af upp­lýs­inga­óreiðu-her­ferðum Rússa en þar er Þýska­land aðal skot­markið.

[adspot]

Rússar hafa beitt fjöl­þátta­hern­aði til hins ítrasta í Úkraínu. Má þar nefna netárásir, efna­hags- og við­skipta­legan þrýst­ing og hindr­anir á orku­flutn­ingi, bein hryðju­verk og ógnun við úkra­ínska rík­is­borg­ara, upp­lýs­inga­óreiðu þar sem stað­reyndum er afneitað og and­stæð­ingum kennt um eigin glæpi.

Jafn­framt beita Rússar kúg­un­ar­að­gerðum og stunda stór­felld og kerf­is­bundin brot á mann­rétt­indum og grund­vall­ar­frelsi borg­ar­anna. Var ógn­vekj­andi ástand mann­rétt­inda­mála á her­teknum Krím­skaga for­dæmt með ályktun Alls­herj­ar­þings Sam­ein­uðu þjóð­anna sem var sam­þykkt 19. des­em­ber 2016.

Sjónarmið Rússa – og sumra Vesturlandabúa

Frá sjón­ar­hóli Rússa líta málin tals­vert öðru­vísi út og á Vest­ur­löndum eru til þeir sem taka undir þau sjón­ar­mið. Samkvæmt þeim er ábyrgð Vest­ur­landa mun meiri í mál­inu en þau vilji vera láta. Úkraína sé marg­klofin vegna ágrein­ings hvað varðar þjóð­erni, tungu­mál, trú, menn­ingu, efna­hag og stjórn­mál. Úkraína sé vissu­lega eitt ríki en mjög langt frá því að vera sam­einuð þjóð og spillt yfir­stétt hafi gert deil­urnar, sem eru langt í frá nýtil­komnar, enn verri. Borg­ara­stríðið stafi af innri deilum þar sem ofbeldis- og öfga­fullar hreyf­ingar komi að mót­mælum og hafi náð und­ir­tökum í stjórn­málum vegna ómark­vissrar aðkomu Vest­ur­landa.

Rússar litu á aðkomu ESB að mál­efnum Úkraínu sem ögrun en Sam­bandið hafði frá árinu 1991 tekið þátt í stækk­un­ar­að­gerðum með fyrrum Sov­étlýð­veldum, undir ýmsum for­merkjum. Hvort ein­feldni hafi verið um að kenna skal ósagt látið en lítið sam­starf var haft við Rússa. Þeir sjá þannig fyrr­nefndan við­skipta­samn­ing Evr­ópu­sam­bands­ins sem leið til að lokka Úkraínu til Vest­ur­heims, þar með talið inn í NATO. Þetta sé ögrun við Rússland sem neyð­ist til að bregð­ast hart við.

Rússar hafa brotið gegn fullveldi Úkraínu – en þeir eru ekkert að fara

Þessi sögu­skýr­ing Rússa er ansi hæpin og sprottin af þeim miklu hags­munum sem þeir telja sig eiga að gæta. Þarna er mik­il­vægt að halda til haga að hvort sem Rússum líkar betur eða verr er Úkraína sjálf­stætt full­valda ríki sem Rússar hafa brotið alvar­lega gegn. Þá er rétt að taka fram að stuðn­ingur rúss­neska minni­hlut­ans við aðskiln­að­ar­stefnu eða þýlyndi við Moskvu er heldur ekki algilt – og ríkur vilji er meðal Úkra­ínu­búa til nán­ara sam­starfs við Vest­ur­lönd.

Það sem vekur ugg hjá vest­rænum stjórn­ar­er­ind­rekum og sér­fræð­ingum er harka í orð­færi emb­ætt­is­manna í Kreml og eðli umfjöll­unar rúss­neskra fjöl­miðla. Þeir segja frá meintum áætl­unum úkra­ínskra stjórn­valda um að sækja fram í Donbas og að þau séu mögu­lega að skipu­leggja þjóð­ern­is­hreins­anir á Rússum. Sagði tals­maður Pútíns nýlega að ráða­menn í Kreml ótt­ist vopna­hlés­brot og þeir væru reiðu­búnir til að grípa til ráð­staf­ana til að vernda rúss­neska borg­ara. Yfir­maður Úkra­ínu­hers vís­aði þessum full­yrð­ingum Rússa á bug og sakar þá um að leita að yfir­skini til að hefja inn­rás.

Banda­ríkin og Evr­ópu­lönd hafa aug­ljós­lega mik­illa hags­muna að gæta en við­brögð við ógn­andi til­burðum Rússa und­an­farið hafa þó verið mis­jöfn. Sumir segja að með auk­inni hern­að­ar­legri nær­veru séu Rússar ein­ungis að þyrla upp ryki og muni ekki fylgja því eftir með raun­veru­legum aðgerðum. Aðrir hafa meiri áhyggjur og telja að fyr­ir­ætl­anir Pútíns séu ófyr­ir­sjá­an­legar, ögrun sem ætlað er að prófa nýjan og óreyndan for­seta og gæti stig­magn­ast með slæmum afleið­ingum.

[adspot]

Hinn afger­andi stuðn­ingur NATO – í orði – og Banda­ríkj­anna sem veitt hafa miklum fjár­hæðum í aðstoð við Úkraínu, gæti reynst tví­eggjað sverð. Þegar hafðir eru í huga land­fræðipóli­tískir hags­munir Rússa, sem munu ólík­lega sætta sig við Úkraínu sem „vest­rænt“ ríki, mögu­lega í ESB og NATO, má gera ráð fyrir að þeir séu ekk­ert að fara að bakka út. Þeir muni því halda áfram að beita hámarks­þrýst­ingi með þeim ógeð­felldu aðferðum fjöl­þátta­hern­aðar sem til­tækar eru og þeir eru þekktir fyrir, ef ekki fara í beina inn­rás í landið.

Vanmáttur Vesturlanda – Rússar hafa lært að ofbeldi borgar sig

Þarna kemur til kasta sam­stöðu vest­rænna ríkja og get­unnar til að leika leik­inn af yfir­vegun, en um leið nægi­legri ákveðni. Samkvæmt kenn­ing­unum í alþjóða­sam­skiptum er vara­samt að króa af sterkan and­stæð­ing sem gerir sér grein fyrir því að veldi hans fer hnign­andi, því hann er þá lík­legur til að láta skeika að sköp­uðu. Ákjós­an­leg nið­ur­staða er að aðgerðir Vest­ur­landa fái Rússa til að sjá hag sínum best borgið með því að taka þátt í alþjóða­sam­fé­lag­inu á eðli­legum for­sendum – án þess að treysta á yfir­ráð og bein ítök í nágranna­ríkjum – sem er við­haldið með ófyr­ir­leitni og yfir­gangi eins og Rússar eru þekktir fyrir.

Það má segja að áður­nefndar kenn­ingar hafi í reynd litað við­brögð Vest­ur­landa. Við­skipta­þving­anir, ferða­bönn og hefð­bundin diplómasía eru aðferð­irnar sem beitt hefur verið í stað beinnar íhlut­unar sem leitt gæti til vopn­aðra átaka. Aðferða­fræði Rússa á Krím­skaga og í Donbas svipar mjög til atburða í Georgíu 2008 þegar „sjálf­stæði“ Abkasíu og Suður-Ossetíu, tveggja hér­aða innan Georgíu var „tryggt“ með rúss­neskri íhlutun. Þá, eins og í Úkraínu, varð það til þess að hreyf­ing í átt til aðildar að ESB og NATO sigldi í strand.

Rússar hafa þannig lært að íhlutun, yfir­gangur og ofbeldi er aðferð sem virkar. Vest­ur­lönd, þrátt fyrir hern­aðar- og efna­hags­lega yfir­burði eru ein­fald­lega of van­máttug til að bregð­ast við með afger­andi hætti því sam­staða þeirra brestur á end­anum. Við­skipta­hags­munir verða gjarnan ofan á: Gasleiðslur verða áfram lagðar, jarð­efna­elds­neyti áfram keypt, sama hversu oft er hlut­ast til um inn­an­rík­is­mál nágranna­ríkja með hern­aði og und­ir­róðri, eða rúss­neskir and­ófs­menn myrtir af rúss­neskum flugu­mönnum.

Miðað við aukna hörku í umræð­unni und­an­farið – og mun meira afger­andi talsmáta nýrra stjórn­valda í Washington, má velta fyrir sér hvort senn dragi til meiri tíð­inda. Verður áhuga­vert að fylgj­ast með þegar utan­rík­is­ráð­herr­arnir Antony Blinken og Sergei Lavrov hitt­ast á ráð­herra­fundi Norð­ur­skauts­ráðs­ins sem hald­inn verður Reykja­vík í næsta mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár