Gestur á kosningavöku Framsóknar greindist með COVID-19

Ein­stak­lingur sem var á kosn­inga­vöku Fram­sókn­ar­flokks­ins um helg­ina hefur greinst með COVID-19.

Ein­stak­lingur sem var á kosn­inga­vöku Fram­sókn­ar­flokks­ins um helg­ina hefur greinst með COVID-19. Í til­kynn­ingu sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sendi gestum vök­unnar í kvöld segir að ein­stak­lingar útsettir fyrir smiti séu komnir í sótt­kví og eru gestir vin­sam­lega beðnir um að vera vak­andi fyrir ein­kennum COVID-19 og bregð­ast við með því að fara í sýna­töku.

Smitum hefur fækkað veru­lega hér á landi síð­ustu daga og vikur eftir að stór bylgja gekk yfir frá byrjun júlí. Að því til­efni var t.d. í dag til­kynnt að fólk með tengsl við Ísland þyrfti ekki lengur að fram­vísa nei­kvæðu COVID-prófi við kom­una til lands­ins. Sótt­varna­læknir vonar hins vegar að í stað­inn verði fundin leið til að skima alla sem hingað koma. Níu liggja á sjúkra­húsi með sjúk­dóm­inn hér á landi, þar af þrír á gjör­gæslu.

[links]Allir gestir á kosn­inga­vöku Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem fram fór í sal CCP úti á Granda, voru beðnir að skrá sig með nafni, kenni­tölu og síma­núm­eri. Þeir sem það gerðu fengu í kvöld skila­boð um að gestur sem var í sam­kvæm­inu hefði greinst með COVID-19. Ekki var farið fram á hrað­próf en gestir voru engu að síður hvattir til að nýta sér slík próf í aug­lýs­ingu við­burð­ar­ins á Facebook.

Samkvæmt gild­andi sam­komu­tak­mörk­unum er hámarks­fjöldi fólks í sama rými 500 með ákveðnum tak­mörk­unum, bæði í opin­beru rými og í einka­rými, úti og inni. Á sam­komum, öllum vinnu­stöðum og í allri annarri starf­semi, innan- og utandyra, skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 1 metra á milli ein­stak­linga sem ekki eru í nánum tengslum.

Heimilt er að hafa allt að 1.500 manns í rými á við­burðum að upp­fylltum við­bót­ar­skil­yrðum, þ.á m. nei­kvæðri nið­ur­stöðu úr hrað­prófi.

Hér má nálg­ast nýupp­færðar leið­bein­ingar land­læknis um rými utan- og inn­an­húss vegna COVID-19. Leið­bein­ing­arnar eru byggar á gild­andi reglu­gerð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár