Framleiðni eykst með meiri fjarvinnu

Aukin fjar­vinna hefur bætt fram­leiðni skrif­stofu­starfs­manna vest­an­hafs um fimm til átta pró­sent. Búist er við að banda­rískir vinnu­staðir leyfi að með­al­tali tvo fjar­vinnu­daga í viku að far­aldr­inum loknum.

Banda­rískir starfs­menn sem hafa þurft að vinna heima hjá sér í far­aldr­inum hafa nú aukið fram­leiðni sína um fimm til átta pró­sent vegna fjar­vinn­unnar. Búist er við að tæpur helm­ingur allra starfa vest­an­hafs verði með ein­hvers­konar fjar­vinnu­fyr­ir­komu­lagi þegar far­aldr­inum lýkur, þar sem starfs­menn geta að með­al­tali unnið tvo daga í viku heima hjá sér. Þetta eru nið­ur­stöður banda­rísks og mexíkósks rann­sókn­ar­hóps um fjar­vinnu.

Betra viðhorf gagnvart fjarvinnu

Rann­sókn­ar­hóp­ur­inn sam­anstendur af vís­inda­mönnum frá Stanford-háskóla, Chicago-háskóla og ITAM-háskóla í Mexíkó, en hann byggir sínar nið­ur­stöður á mán­að­ar­legum skoð­ana­könn­unum á banda­ríska vinnu­mark­aðnum. Samkvæmt þessum könn­unum hefur við­horfið gagn­vart fjar­vinnu batnað tölu­vert frá byrjun far­ald­urs­ins, en meiri­hluti svar­enda segja fyr­ir­komu­lagið hafi reynst betur en búist var við.

Vinnu­veit­endur þar sem fjar­vinna hefur verið stunduð eru einnig jákvæð­ari í garð fyr­ir­komu­lags­ins heldur en áður, en nú búast þeir við að meira en 40 pró­sent af vinn­unni verði unnin utan skrif­stof­unnar þegar far­aldr­inum er lokið. Þetta er nokkur munur frá því í fyrra, en þá gerðu þessir sömu vinnu­veit­endur ráð fyrir að fjar­vinna yrði 30 pró­sent vinn­unnar eftir far­ald­ur­inn.

Meiri reynsla komin á fyrirkomulagið

Samhliða þess­ari við­horfs­breyt­ingu benda kann­anir rann­sókn­ar­hóps­ins til þess að fram­leiðni starfs­mann­anna hefur auk­ist vegna fjar­vinn­unnar. Ef tekið er til­lit til sjálfs­mats þeirra á eigið vinnu­fram­lag á síð­ustu mán­uðum og tím­ans sem spar­ast við að ferð­ast ekki til og frá vinn­unni er fram­leiðnin nú fimm til átta pró­sentum meiri en hún hefði ann­ars verið.

Nick Bloom, sem er hag­fræði­pró­fessor við Stanford-háskóla og með­limur rann­sókn­ar­hóps­ins, birti þessar nið­ur­stöður í Twitter-færslu, sem sjá má hér að neðan, fyrr í vik­unni.

Á mynd­inni hér að ofan sést hvernig fram­leiðnin vegna fjar­vinn­unnar hefur auk­ist á síð­ustu mán­uðum, en sam­kvæmt Bloom má rekja þessa aukn­ingu til þess að meiri reynsla hafi kom­ist á fyr­ir­komu­lagið.

Í nýlegri við­tali rann­sókn­ar­hóps­ins við The Economist segir hann að fjar­vinnan sé lík­lega komin til að vera, þar sem vinnu­staðir hafi varið tíma og pen­ing í að aðlag­ast þessu nýja fyr­ir­komu­lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarvinna

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár