Ásmundur segir RÚV leggja sig í einelti

Ásmundur Frið­riks­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sagði RÚV leggja sig í ein­elti með frétta­flutn­ingi af akst­urs­kostn­aði hans. Þetta sagði Ásmundur í við­tali við Kastljós.

Ásmundur Frið­riks­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sagði RÚV leggja sig í ein­elti með frétta­flutn­ingi af akst­urs­kostn­aði hans. Þetta sagði Ásmundur í við­tali við Einar Þor­steins­son í Kast­ljósi kvölds­ins.

Einar spurði Ásmund út í útreikn­inga Félags íslenskra bif­reið­ar­eig­enda fyrir Morg­un­út­varp Rásar þar sem fram kom að það kostar um tvær millj­ónir króna að reka Kia Sporta­ge-jeppa á ári. Ásmundur á slíkan bíl og fékk 4,6 millj­ónir króna end­ur­greiddar frá Alþingi í fyrra vegna keyrslu hans og hvort hann væri þannig að taka um 2,5 millj­ónir króna í vas­ann umfram útlagðan kostnað fyrir akstr­inum.

Ásmundur sagð­ist ekki hafa reiknað dæmið með þessum hætti og þó hann vilji ekki draga FÍB í efa geri hann athuga­semdir við útreikn­ing­ana. En um væri að ræða rík­is­taxta sem ekki hafi verið sam­inn sér­stak­lega fyrir Ásmund heldur eigi hann við um alla þing­menn, rík­is­starf­menn og marga í atvinnu­líf­inu sem miði akstur starf­manna sinna við taxta rík­is­ins. „Þannig að það er ekk­ert við mig að sakast.“

Fjárhæðirnar komu á óvart

Ásmundur sagði að þegar hann upp­haf­lega tók ákvörðun um að fara á þing þá hafi hann vitað að hann yrði aldrei heima. Vinnan sé áhuga­mál hans og hann sé óþreyt­andi við að sinna kjör­dæmi sínu. Hann sé einnig óþreyt­andi við að sinna starfi sínu á Alþingi þar sem hann sé með góða mæt­ingu. En þar sem hann hafi ekki verið að leggja þessar fjár­hæðir saman frá mán­uði til mán­aðar þá hafi þessar fjár­hæðir komið honum dálítið á óvart.

Ásmundur sagði að það væri rík­is­ins að end­ur­skoða taxt­ann sé hann hvetj­andi til að menn séu að „hafa ein­hvern auka­pen­ing upp úr honum“, greiða eigi rekstur á bílnum og kannski aðeins rúm­lega það, það væri eðli­legt.

[links]Einar spurði Ásmund út í þær reglur þings­ins sem kveða á um að keyri menn yfir 15 þús­und kíló­metra skuli þeir not­ast við bíla­leigu­bíla. Ásmundur sagði þær reglur hafa verið settar í lok síð­asta þings án sam­ráðs við þing­menn sem stunda heimakstur og að þeir hafi verið í við­ræðum við for­sætis­nefnd um þær. Aðspurður að því af hverju hann fari samt ekki eftir settum reglum sagði Ásmundur vera að skoða það núna. Hann hafi gert athuga­semdir við þá bíla sem honum stóð til boða. „Ég ætla ekki að fara að keyra hérna á ónýtum bíla­leigu­bílum, keyrðum hund­ruð þús­unda kíló­metra.“ Hann hafi boðið þeim að leigja af honum hans eigin bíl á sömu kjörum og bíla­leigu­bíl­anir, þingið sé ekki að fara að leigja ein­hverja topp­bíla. „Þetta snýst um það að ég njóti öryggis á veg­unum og geti ferð­ast á milli á öruggan og góðan hátt.“

Líkara einelti en fréttaflutningi

Þegar Ásmundur var spurður um þann kíló­metra­fjölda sem um ræðir til að rétt­læta þessar greiðslur sagð­ist hann ekki ætla í þennan leik. Það sé langt á Selfossi og Höfn og fleiri staði innan Suð­ur­kjör­dæmis og þegar hann er beð­inn um að koma í ein­hverjum erindum þá bara drífi hann sig af stað.

Ásmundur sagði þann tíma sem hann eyðir undir stýri vera til við­bótar við þann sem hann eyðir á þing­inu. Ferða­lögin fari fram á kvöldin og um helgar, sækja bæj­ar­há­tíðir á sumrin. „Ég tel það bara ekki eftir mér.“

Hann sagð­ist enn­fremur nota bíl­inn í próf­kjörs­bar­áttu. Aðspurður um hvort honum þætti það eðli­legt sagði hann að þetta væru bara regl­urnar. Hann hafi ekki samið þær.

Einar spurði Ásmund hvort ekki væri eðli­leg­ast að þessar greiðslur væru allar uppi á borðum og svar­aði Ásmundur: „Það er bara sjálf­sagt þá er það bara hjá öllum. Ég verð bara að segja eins og er að þið eruð alltaf að fara í þennan leik. Þið eruð búin að vera í heila viku að fjalla um þetta hérna, hérna á Rík­is­út­varp­inu, og hérna ég verð nú að segja það eins og er að það er nú gengið nokkuð nærri manni með þetta. Fólk hefur sagt við mig að þetta er miklu lík­ara ein­elti heldur en frétta­flutn­ingi.“

Einar sagð­ist aðeins vera að spyrja eðli­legra spurn­inga um í hvað væri verið að eyða skattfé. Ásmundur nefndi þá starfs­bróður Einars, Helga Seljan, sem kall­aði á skoð­ana­bræður sína í þátt­inn sinn, Viku­lokin á Rás 1, þar sem þeir hefðu tekið klukku­tíma í að „drulla yfir“ Ásmund. „Hvers konar vinnu­brögð eru það?“

Viljum við að allir séu 101 rotta?

Ásmundur sagð­ist hafa lagt fram sína akst­urs­dag­bók í lok hvers mán­aðar, ekki fengið athuga­semdir og þingið hefði hvorki kæft hann né klagað hann. Nú séu þing­menn að ræða málið við for­sætis­nefnd­ina og mik­il­vægt sé að klára það.

Hann sagði mjög marga þing­menn geta flogið, séu með húsa­styrk í Reykja­vík, sem nálgist þrjár millj­ónir á árs­grund­velli. Þeir fljúgi 70 til 100 flug á ári og þá sé um ræða upp­hæðir sem séu meira en 4,6 millj­ónir. Að auki hafi þeir bíla­leigu­bíla eða akst­urs­bók. Ásmundur spurði hvort það sé vilji fyrir því að hafa þing­menn sem búi á lands­byggð­inni, austur á fjörðum eða norður í landi, hvort það eigi að gera þeim kleift að búa heima hjá sér og sækja þingið. „Eða viljum við bara það séu allir 101 rotta? Er það það sem þið viljið?“ Hann sagð­ist telja að margir vilji að allt eigi að vera eins og í Reykja­vík. „Þið hafið engan skiln­ing á því að á lands­byggð­inni er mikil eft­ir­spurn eftir því að þing­menn­irnir komi í heim­sókn, séu sýni­legir, ekki bara fyrir kosn­ingar, heldur allan tím­ann. Þannig þing­maður er ég og þannig þing­maður ætla ég að vera,“ sagði Ásmundur.

Hluti af lýðræðinu að sækja kjósendur heim

Þing­mað­ur­inn sagði í lokin að hann hefði ekk­ert við það að athuga að sporslur til þing­manna séu gerðar opin­berar. En þá verði bara sett upp önnur keppni, um hver fái mestan stuðn­ing frá þing­inu. Þetta verði að skoð­ast saman, ekki bara taka eina línu út úr, akst­urs­kostn­að­inn í þessu til­felli. „Þið verðið bara að átta ykkur á því að þetta er líka hluti af lýð­ræð­inu að þing­menn geti líka sótt sína kjós­endur heim.“

„Ég held það sé eðli­legt að það sé allt uppi á borð­unum og ég held það sé líka eðli­legt að frétta­flutn­ingur af þessum málum, eins og öðrum, að hann sé, að það sé eitt­hvað eðli­legt í kringum þetta, að það sé ekki bara stöðugt ein­elti af hálfu þess­arar stofn­unar.“

Í lok þáttar var tekið fram að Ásmundur hafi að loknum upp­tökum á við­tal­inu við­ur­kennt að hafa farið rangt með þegar hann var spurður út í hvort hann hefði látið ríkið greiða fyrir akstur við upp­tökur á þætt­inum Auð­linda­kistan. Hann sagði að upp­töku­fólk hefði setið með honum í bílnum á leið í upp­tökur á við­tölum. Ferð­irnar hafi fyrst og fremst verið til að hitta kjós­endur en tökulið ÍNN hafi fengið að fljóta með til að gera sjón­varps­þætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár