Hvor er frægari: Elísabet drottning eða Annie Leibovitz?

Breska krúnan hefur gefið út nýja opin­bera mynd af Elísa­betu II breta­drottn­ingu eftir stjörnu­ljós­myndar­ann Annie Leibovitz. Báðar eiga þær magn­aðan feril að baki.

Elísabet bretadrottning og Filippus prins.
Elísabet breta­drottn­ing og Filippus prins. Mynd: Annie Leibovitz

Elísabet II breta­drottn­ing hefur fengið nýja emb­ætt­is­mynd. Annie Leibovitz var ráðin til verks­ins en sú hefur ljós­myndað frægt fólk í marga ára­tugi. En þó ekki jafn lengi og drottn­ingin hefur lifað því í ár fagnar hún 90 ára afmæli sínu og því að vera orðin lang­elsti ein­valdur í sögu breska kon­ungs­dæm­is­ins. Hún hefur einnig borið krún­una lengst allra eða í 64 ár, síðan 1952.

Emb­ætt­is­myndin sem Leibovitz tók er af þeim hjónum, Elísa­betu og Fil­ippusi prins, sem hafa verið gift í nærri 69 ár. Þau brosa bæði örlítið og horfa hlý­lega í lins­una. Frægur og íburð­ar­mik­ill stíll Leibovitz nýtur sín í mynd­inni, þó hjónin séu klædd lát­laust. Næmni Leibovitz fyrir við­fangs­efni sínu skín í gegnum mynd­ina, eins og sjá má hér að ofan.

[adspot]

Elísabet hefur verið drottn­ing síðan 1952 og þess vegna verið full­trúi valds­ins í langan tíma. Lista­menn hafa notað myndir af henni í verkum sínum, eins og Andy Warhol sem not­aði hana og fleiri drottn­ingar í „popp­list“ sína. Hér að neðan er mynd­band af opin­berri rás bresku krún­unnar sem sýnir 90 myndir í til­efni af 90 ára afmæli drottn­ingar.

Annie Leibovitz hefur á sínum langa ljós­mynd­ara­ferli myndað margar af mestu goð­sögnum síð­ari ára. Eitt fræg­asta dæmið er mögu­lega ein síð­asta ljós­myndin af John Lennon sem tekin var sama morgun og hann var skot­inn til bana í New York. Leibovitz heim­sótti Lennon og Yoko Ono með mynda­vél­ina á vegum Rolling Stone-tíma­rits­ins með það að mark­miði að fá mynd af Lennon einum eins og rit­stjór­inn hafði óskað eftir. Myndin af honum yrði að örugg­lega á for­síðu blaðs­ins. Hann vildi hins vegar ólmur hafa Ono með sér á mynd­inni. Úr varð ein fræg­asta mynd 20. ald­ar­innar.

„Það var svo áhuga­vert að hún bauðst til að fara úr að ofan en ég sagði: „Nei, vertu í öllu“ – án þess að hafa verið með fyr­ir­fram mót­aða skoðun á hvað ég vildi gera,“ sagði Leibovitz um hvernig ramm­inn varð til í sam­tali við Rolling Stone árið 2007. Hún hafði beðið Lennon að fara úr föt­unum. „Hann hjúfraði sig svo upp að henni og þetta varð ofboðs­lega sterkt. Það var ekki laust við að mér finnd­ist að honum væri kalt; það var eins og hann héldi í hana dauða­taki.“

Eins og virð­ist oft vera til­hneig­ing hjá góðum ljós­mynd­urum þá leitar Leibovitz að augna­blik­unum eða stöð­unum sem aðrir ljós­mynd­arar eru ekki að mynda. Eitt besta dæmið um slíkt er þessi frá­bæra mynd hér að neðan sem tekin er dag­inn sem Richard Nixon sagði af sér emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna árið 1974. Myndina af Nixon sjálfum að veifa til ljós­mynd­ara áður en hann stígur um borð í þyrl­una þekkja allir. Það er svona augna­blik í sögu heims­ins sem margir ljós­mynd­arar geta státað sig af að hafa fest á filmu.

En þegar hinir ljós­mynd­ar­arnir voru ekki að horfa í gegnum kýraugað fór Leibovitz á stjá. „Ég var þarna á flöt­inni með starfs­fólki Hvíta húss­ins. Þegar þyrlan flaug í burtu og starfs­menn­irnir fóru að rúlla upp tepp­inu voru allir hættir að mynda. Þetta var ekki augna­blik sem allir hinir voru að fylgj­ast með, en ég hélt áfram að taka myndir,“ segir hún. Þegar hún skil­aði mynd­unum sínum þóttu þær svo góðar að rit­stjórn Rolling Stone-tíma­rits­ins ákvað að kasta hönn­un­inni sem þegar var búið að vinna fyrir aðra ljós­mynd­ara og nota mynd­irnar hennar.

Mynd Leibovitz af þyrl­unni er í stuttu máli geggjuð. Mynd­málið er gríð­ar­lega sterkt. Þyturinn sem þyrlan skapar er hún tekst á loft veldur því að starfs­menn Hvíta húss­ins þurfta að grípa í kask­eitið á meðan þeir gera upp rauða dreg­il­inn. Þyturinn frá þyrl­unni er eins og storm­ur­inn í kringum brott­hvarf Nixon úr Hvíta hús­inu, starfs­menn­irnir full­trúar kerf­is­ins sem þurfa að ríg­halda í þann bún­ing sem kerf­inu var snið­inn og upprúll­aða teppið eins konar vottur um upp­hefð emb­ætt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár