Reykjavík neðst í þjónustukönnun Gallup

Reykja­vík­ur­borg mælist langneðst í þjón­ustukönnun Gallup í sam­an­burði við önnur sveit­ar­fé­lög þegar kemur að þjón­ustu bæði leik­skóla og grunn­skóla, þjón­ustu við eldri borg­ara og þjón­ustu við fatl­aða.

Reykja­vík­ur­borg mælist langneðst í þjón­ustukönnun Gallup í sam­an­burði við önnur sveit­ar­fé­lög þegar kemur að þjón­ustu bæði leik­skóla og grunn­skóla, þjón­ustu við eldri borg­ara og þjón­ustu við fatl­aða.

Þetta kemur fram í sam­an­burð­ar­kafla könn­un­ar­innar sem Kjarninn hefur undir höndum. Reykja­vík er einnig neðst í mæl­ingu á heildará­nægju íbúa af sveit­ar­fé­lagi sínu.

Reykja­vík fær 2,8 í ein­kunn þegar spurt er um afstöðu til þjón­ustu leik­skóla sveit­ar­fé­lags­ins, hæsta ein­kunn er fimm. Þar er Garðabær efst sveit­ar­fé­laga með 4,3 í ein­kunn.

Þegar kemur að þjón­ustu grunn­skóla fær Reykja­vík 3,1 en Garðabær, sem aftur mælist efst sveit­ar­fé­laga fær 4,2.

Reykja­vík­ur­borg fær 2,4 þegar spurt er um þjón­ustu við eldri borg­ara en þar mælist Hvera­gerði hæst með 4,2 og Reykja­vík er enn lægst þegar spurt er um þjón­ustu við fatl­aða, fær 2,5 en Fljóts­dals­hérað fær þar hæstu ein­kunn, 3,7.

Reykja­vík­ur­borg mælist ekki neðst í öllum mála­flokkum sem spurt er um í könnun Gallup, en þar stappar nærri. Borgin mælist næst neðst í skipu­lags­málum, þriðja neðst í menn­ing­ar­málum og fimmta neðst í sorp­hirðu­málum svo dæmi séu tekin.

Umdeild könnun

Við­mæl­endur Kjarnans, sem ekki vildu koma fram undir nafni en eru kjörnir full­trúar víða um land í þeim sveit­ar­fé­lögum sem þjón­ustukönnun Gallup tekur fyrir, voru sam­mála um að sumt væri ósann­gjarnt í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar.

Þannig mælist Reykja­vík­ur­borg til dæmis neðar en Sel­tjarn­ar­nes í ánægju íbúa sveit­ar­fé­lag­anna með menn­ing­ar­mál, en ljóst er að umfang menn­ing­ar­starf­semi Reykja­vík­ur­borgar er væg­ast sagt marg­föld á við umfang sama mála­flokks hjá Sel­tjarn­ar­nesi.

Stundum megi ætla að minni sveit­ar­fé­lögin græði á smæð sinni, þar sem ein­hvers konar bæj­arstolt kunni að mati við­mæl­enda Kjarnans í sumum til­vikum að hafa áhrif á svör íbúa þeirra.

Hins vegar sé könn­unin gott tæki fyrir sveit­ar­fé­lögin til að skoða breyt­ingu á ánægju eða óánægju íbúa ár eftir ár, til dæmis ef gerðar eru breyt­ingar á ein­stökum mála­flokkum. Sem og hvati til að gera betur þar sem ljóst þykir að óánægja íbúa sé mikil með ákveðin mál.

Reykjavík ekki með

Reykja­vík­ur­borg tekur ekki beinan þátt í þjón­ustukönn­un­inni og hefur ekki gert í nokkur ár. Íbúar borg­ar­innar eru þó hafðir með í úrtaki Gallup til sam­an­burðar fyrir önnur sveit­ar­fé­lög.

Í svörum borg­ar­stjóra við gagn­rýni minni­hlut­ans í borg­ar­stjórn vegna þeirrar ákvörð­unar borg­ar­innar að vera ekki með í könn­un­inni hefur komið fram að sviðs­stjórar Reykja­vík­ur­borgar hafi verið á nær einu máli um að þjón­ustukönn­unin nýt­ist þeim ekki til að bæta þjón­ustu borg­ar­innar. Hún mæli fremur ímynd þjón­ust­unnar en ánægju þeirra sem nýti sér hana. Þannig væri ósam­ræmi milli könn­unar Gallup og ann­arra kann­ana. Þegar könnuð væri ánægja beinna not­enda, en ekki bæði not­endur þjón­ustu sem og þeirra sem ekki nýta sér hana, væri ánægjan meiri en þegar úrtakið væri almennt.

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri var á fundi borg­ar­stjórnar í gær og hafði ekki tök á að veita Kjarn­anum við­tal um málið. Hann sagði hins vegar að þessar kann­anir þurfi að rýna vel áður en hægt sé að tjá sig um þær að ein­hverju viti. „Um það hafa reyndar verið skrif­aðar lærðar rit­gerðir,“ kom fram í skila­boðum frá Degi.

Þjón­ustukönnun Gallup hefur verið fram­kvæmd frá árinu 2008, þar sem við­horf og ánægja íbúa með þjón­ustu í stærstu sveit­ar­fé­lögum lands­ins er kannað. „Nið­ur­stöður nýt­ast meðal ann­ars við for­gangs­röðun verk­efna og stefnu­mótun en gerður er sam­an­burður á nið­ur­stöðum við heild­ar­nið­ur­stöður ann­arra sveit­ar­fé­laga. Um er að ræða árang­urs­ríka leið til að fá upp­lýs­ingar um afstöðu íbúa og hvar veik­leikar og styrk­leikar liggja í þjón­ustu og starfi sveit­ar­fé­lags­ins,“ segir á heima­síðu Gallup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár