Inngrip seðlabankans vekja upp spurningar

Gengi krón­unnar hefur veikst skarpt að und­an­förnu gagn­vart helstu alþjóð­legu myntum og greip Seðla­banki Íslands inn í gjald­eyr­is­markað í dag, til að vega á móti skar­pri veik­ingu.

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri. Mynd: Kjarninn.

Gengi krón­unnar gagn­vart helstu erlendu myntum hefur veikst hratt á und­an­förnum sex mán­uðum sér­stak­lega.

Þannig hefur verðið á Banda­ríkja­dal farið úr tæp­lega 100 krónum í tæp­lega 119 á skömmum tíma, og verðið á evru úr tæp­lega 119 krónum í 136 krónur.

Gripið inn í

Inn­gripið á mark­að­inn í dag kom eftir að gengi krón­unnar veikt­ist skarpt en þetta er í annað skiptið sem Seðla­banki Íslands grípur inn í við­skipti á síð­ustu tveimur mán­uðum, með það að sjón­ar­miði að vinna gegn veik­ingu krón­unnar.

Hinn 11. sept­em­ber nam inn­gripið 1,2 millj­arði króna. Gengi krón­unnar hélt þó áfram að veikj­ast og hefur frá þeimt tíma veikst um 5 til 6 pró­sent.

En af hverju er seðla­bank­inn að eyða pen­ingum skatt­greið­enda í þessi inn­grip ef þró­unin er eins og hún hefur verið? Stefna seðla­bank­ans miðar fyrst og fremst að því að draga úr of miklum sveiflum, þannig að það magn­ist ekki upp vandi vegna þessar sveiflna.

Hins vegar má vel velta fyrir sér, hvort inn­gripa­stefnan sé nægi­lega gagnsæ, því ekki verður séð að þessi inn­grip á mark­aði, hvorki í síð­asta mán­uði né núna, breyti miklu um þá þróun sem er að eiga sér stað á mark­aðnum.

Í báðum til­fellum veikt­ist krónan um lítið eitt umfram 2 pró­sent innan dags, þegar inn­gripið átti sér stað, svo mögu­lega er það við­mið hjá bank­anum.

Ekki hafa verið birtar upp­lýs­ingar um umfang við­skipt­anna í dag, en það verður gert á vef seðla­bank­ans í sam­ræmi við birt­ing­ar­á­ætlun bank­ans.

Að mati margra við­mæl­enda Kjarnans eru inn­grip seðla­bank­ans ekki trú­verðug í því árferði sem nú er uppi, þar sem gengi krón­unnar er að veikj­ast og verð­bólgu­þrýst­ingur auk­ist einnig. Raun­gengi krón­unnar hefur auk þess verið með sterkasta móti í tölu­vert langan tíma. Að því leyt­inu til er að eðli­legt að krónan veik­ist. Ekki má heldur gleyma því að útflutn­ings­hlið hag­kerf­is­ins hagn­ast á veik­ing­unni, þar á meðal sjáv­ar­út­veg­ur­inn og ferða­þjón­ustan.

Vextir að hækka?

Annað sem margir velta nú fyrir sér er hvort það sé óhjá­kvæmi­legt að vextir fari nú hækk­andi, en meg­in­vextir Seðla­banka Íslands eru nú 4,25 pró­sent og verð­bólga mælist 2,7 pró­sent. Hag­fræði­deild Lands­banka Íslands spáir því að verð­bólga muni fara upp í 3,6 pró­sent strax í des­em­ber.

Meðal ástæðna fyrir auknum verð­bólgu­þrýst­ingi er skörp hækkun olíu­verðs, en heims­mark­aðs­verð hefur hækkað um 45 pró­sent á fjórum mán­uðum.

Samt eru blikur á lofti með olíu­verðið, en það lækk­aði til að mynda nokkuð mikið í dag, eða um rúm­lega 4 pró­sent og er tunnan af hrá­olíu nú komin í um 70 Banda­ríkja­dali.

Ein ástæðan fyrir því að olíu­verð hefur lækkað lítið eitt und­an­farna daga er sögð sú að vænt­ingar eru nú um að Sádí-Arabía auki fram­leiðslu, og vinni þannig að því að auka fram­boð sem leiðir svo til verð­lækk­unar.

Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum - með Donald Trump for­seta í broddi fylk­ingar - hafa ekki síst kallað eftir þessu, til að vinna gegn auk­inni verð­bólgu og hækk­andi vöxtum heima fyrir. Vaxta­stig í heim­inum hefur farið hækk­andi að und­an­förnu, og fátt bendir til ann­ars en að sú þróun haldi áfram.

Hækkandi olíu­verð að und­an­förnu hefur valdið því meðal ann­ars, að rekstr­ar­um­hverfi ferða­þjón­ust­unnar á Íslandi hefur versnað, eins og fram kemur í Fjár­mála­stöð­ug­leika Seðla­banka Íslands í dag. Líklegt er að flug­fé­lög muni halda áfram að finna fyrir erf­iðu rekstr­ar­um­hverfi á næst­unni, vegna þessa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár