Segja Rio Tinto reyna að svipta launamenn réttindum sínum - „Það verður ekki liðið“

Lands­sam­band íslenzkra verzlunarmanna og Starfs­greina­sam­band Ísland lýsa bæði yfir stuðn­ingi við starfs­menn Rio Tinto í álver­inu í Straums­vík. Harðar kjara­deilur starfs­fólks­ins við vinnu­veit­endur sína hafa nú staðið í langan tíma, en kjara­samn­ingur rann út fyrir tæpum tíu mán­uðum.

Þing Lands­sam­bands íslenzkra verzlunarmanna (LÍV) sam­þykkti í dag ályktun þar sem skorað er á Rio Tinto að ljúka gerð kjara­samn­inga sem allra fyrst án þess að störf almennra starfs­manna verði sett í verk­töku.

Fyr­ir­tækið hefur farið fram á það að fá meiri heim­ildir til að auka verk­taka­starf­semi í álver­inu. „Þessi krafa er í sam­ræmi við það sem Rio Tinto er að gera á alþjóða­vísu og virð­ist mark­miðið vera að svipta launa­menn kjara­samn­ings­bundnum rétt­indum. Slíkt er með öllu óásætt­an­legt og í and­stöðu við grund­vall­ar­hug­sjónir verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar,“ segir LÍV.

Á þingi Starfs­greina­sam­bands­ins í vik­unni var einnig fjallað um mál­efni starfs­manna álvers­ins og fullum stuðn­ingi lýst við aðgerðir starfs­fólks­ins. „Til­raunir RIO Tinto til að auka verk­töku á alþjóða­vísu sem og í Straums­vík er ekk­ert annað en aðför að samn­ings­bundnum kjörum starfs­fólks,“ sagði í ályktun SGS um málið. „Krafa fyr­ir­tæk­is­ins um aukna verk­taka­starf­semi er aft­ur­hvarf til þeirra tíma þegar atvinnu­rek­endur gátu valið frá degi til dags hverjir fengju vinnu og á hvaða kjörum. Það verður ekki liðið!“

Segja álverð hafa lækkað og álverið berist í bökkum


„Hafa ber í huga að álverð hefur hríð­fallið frá ára­mótum og hefur ekki verið lægra í ein sex ár. Afleið­ingin er að ISAL er nú rekið með tapi frá degi til dags og tapið fer vax­andi,“ sagði í opnu bréfi sem Rannveig Rist sendi á starfs­menn álvers Rio Tinto Alcan í Straums­vík í sept­em­ber. Hún hafði sent annað bréf í ágúst þar sem einnig var talað á svip­uðum nótum. „Staða á mörk­uðum er slæm og hefur versnað veru­lega frá ára­mótum. Heims­mark­aðs­verð á áli hefur lækkað mikið og það á einnig við um mark­aðs­upp­bætur, sem eru hluti af verð­inu sem við fáum fyrir álið. Eft­ir­spurn er langt undir áætl­unum. Sam­an­lögð áhrif þessa á sölu­tekjur ISAL eru harka­leg. Og þar sem orku­verð ISAL er ekki lengur tengt við álverð þolum við lágt álverð miklu verr en áður.“

Rannveig sagði einnig í bréf­inu í sept­em­ber að hvergi yrði hvikað frá kröfum fyr­ir­tæk­is­ins um að bjóða út verk­efni í verk­töku í auknum mæli. „Í þeim efnum býr ISAL við mestu fjötra allra fyr­ir­tækja á Íslandi. Eins og fram hefur komið erum við til­búin að ræða hvernig koma megi til móts við starfs­menn sem þetta hefði áhrif á“ sagði hún.

Gylfi Ingv­ars­son, tals­maður verka­lýðs­fé­lag­anna í Straums­vík hefur hins vegar sagt að um áróður sé að ræða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár