Rekstrarerfiðleikar í Straumsvík – Áróður segja verkalýðsfélög starfsmanna

Starfs­menn ISAL, sem rekur álver Rio Tinto á Íslandi í Straums­vík, fengu allir sent bréf í frá Rann­veigu Rist, for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, í gær þar sem rekstr­ar­erf­ið­leikum fyr­ir­tæk­is­ins var lýst og afstaða þess í kjara­við­ræðum við starfs­menn sett í sam­hengi við þá stöðu. Í þeim við­ræðum hefur ISAL viljað breyta hluta af störfum starfs­manna úr föstum störfum í verk­töku og borið fyrir sig sam­keppn­is­sjón­ar­mið. Það sé sann­gjarnt að fyr­ir­tækið starfi við sömu aðstæður og önnur fyr­ir­tæki á Íslandi og geti boðið út auk­inn hluta af starf­semi sinni.

Rekstrarerfiðleikar vegna töðu á mörkuðum og nýrra samninga


Í bréf­inu, sem Morg­un­blaðið greinir frá, segir að afkoma ISAL sé slæm og að á árunum 2012 og 2013 hafi fyr­ir­tækið tapað sjö millj­örðum króna. Á síð­asta ári hafi verið um 400 millj­óna krona hagn­aður en að hann sam­svari ein­ungis 0,3 pró­sent ávöxtun eigin fjár. Síðan segir orð­rétt: „Staða á mörk­uðum er slæm og hefur versnað veru­lega frá ára­mótum. Heims­mark­aðs­verð á áli hefur lækkað mikið og það á einnig við um mark­aðs­upp­bætur, sem eru hluti af verð­inu sem við fáum fyrir álið. Eft­ir­spurn er langt undir áætl­unum. Sam­an­lögð áhrif þessa á sölu­tekjur ISAL eru harka­leg. Og þar sem orku­verð ISAL er ekki lengur tengt við álverð þolum við lágt álverð miklu verr en áður.“

Áróður vegna slæmra ákvarðana stjórnenda


Ólafur Teitur Guðnason, upp­lýs­inga­full­trúi RioTinto á Íslandi, segir við Morg­un­blaðið að bréfið hafi verið sent út til þess að upp­lýsa starfs­menn um afstöðu fyr­ir­tæk­is­ins. Skyn­sam­legt sé að þeir hafi eins miklar upp­lýs­ingar undir höndum og hægt sé.

Gylfi Ingv­ars­son, tals­maður verka­lýðs­fé­lag­anna í Straums­vík, er ekki sömu skoð­unar. Hann segir við Morg­un­blaðið að um áróður sé að ræða og að stjórn­endur séu að láta slæmar ákvarð­ana­tökur sínar koma niður á starfs­mönnum. „ISAL gerði nýjan samn­ing árið 2010 við Lands­virkjun sem átti að vera alveg rosa­lega góður en leiðir í raun til þess að ISAL er að borga 40% hærra verð en Norðurál og Fjarðaál. Þær tækni­breyt­ingar sem áttu að ger­ast í þriðja skál­anum um 20% fram­leiðslu­aukn­ingu, og áttu að borga fram­leiðslu­breyt­ingar í steypu­skála, eru ein­göngu 8%. Þetta eru allt ákvarð­ana­tökur stjórn­enda og eig­enda sem setja fyr­ir­tækið í þá stöðu sem það er í núna. Þeir sjá enga aðra leið en að það eigi að lækka laun hjá 80 starfs­mönnum,“ segir Gylfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár