Skoðað og skjalað Svandís tók við af Krist­jáni Þór sem ráð­herra sjáv­ar­út­vegs­mála. Hún ætlar nú að kom­ast að því sem honum hafði verið falið að gera. Mynd: Heiða Helgadóttir

Eftirlit með eignatengslum í sjávarútvegi í skötulíki

Þrjár stofnanir undir forystu Samkeppnis­eftirlitsins ætla að ráðast í heilmikla vinnu við að greina eigna- og stjórnunar­tengsl í sjávar­útvegi. Markmiðið er ekki síst að búa til lifandi gagna­grunn og fylla upp í gloppur í laga- og reglu­verki sem hefur komið í veg fyrir að hægt sé að fram­fylgja lögum.

Matvæla­ráðherra hefur samið við Samkeppnis­eftirlitið um að framkvæma athugun, eða rannsókn, á eigna- og stjórnunar­tengslum í íslenskum sjávar­útvegi. Þekkt er að útgerðir sem eru að megin­stofni í eigu sömu aðila eiga afla­heimildir langt umfram löglegt hámark án þess að nokkuð sé að gert. Það hefur þó ekki verið staðfest af opinberum aðilum og hafa dóttur­félög útgerða jafnvel verið talin sem sjálf­stæðir og ótengdir aðilar. 

Verkefnið, sem Svandís Svavars­dóttir matvæla­ráðherra hefur falið Samkeppnis­eftirlitinu, á að vinna í samstarfi þess og tveggja annarra stofnana, Fiskistofu og Seðla­bankans. Rann­sóknin er hluti af vinnu ráðuneytisins við „að greina áskoranir og tækifæri í sjávar­útvegi og tengdum greinum ásamt því að meta þjóð­hagslegan ávinning fiskveiði­stjórnunar­kerfisins,“ eins og segir á vef ráðuneytisins.

En eru þetta ekki upplýsingar sem við eigum að vita nú þegar? Að einhverju leyti, segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppnis­eftirlitsins, en upplýsingarnar eru ekki nógu nákvæmar. „Að stóru leyti liggja þessar upplýsingar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár