Nú fyrir stuttu var viðtal við Tryggva Hjaltason í Ísland í dag. Í viðtalinu fór Tryggvi yfir það sem hann hefur verið að rannsaka og benda á seinustu ár, slæma stöðu drengja í íslenska menntakerfinu. En nú var hljóðið í honum enn þyngra og eru allar niðurstöður á þá leið að staða drengja fari versnandi á öllum stigum menntakerfisins. Ef ekki verður ráðist í miklar breytingar er útlit fyrir mikinn persónulegan og efnahagslegan skaða í okkar samfélagi í framtíðinni.
Nokkrar punktar varðandi stöðu íslenskra drengja í menntakerfinu:
- 34,4% drengja geta ekki lesið sér til gagns við útskrift úr grunnskóla. Það er tvöfalt hærra hlutfall en hjá stúlkum og aukning um 10% frá 2009.
- Ísland er eina Norðurlandaþjóðin þar sem drengir mælast eftir á í öllum Pisa greinum.
- Drengir eru tuttugu sinnum líklegri til að vera settir á þunglyndislyf en börn á hinum Norðurlöndunum. 15% drengja fara á hegðunarlyf.
- Brottfall úr menntaskólum er mjög hátt. 31% drengja hafa fallið úr námi á fyrstu fjórum árunum eftir innritun og Ísland hefur eitt hæsta hlutfall brottfalls drengja af öllum vesturlöndum þegar horft er til aldursins 25-34 ára.
- Hlutfall karla af nýnemum í háskólanum er 32%, var 37% tveimur árum áður.
Drengirnir okkar eru sem sagt að koma úr grunnskóla með sífellt lakari menntun, er ávísað þunglyndis- og hegðunarlyfjum í gríðarlegu magni strax ungum að aldri, falla í miklum mæli úr námi og eru í ört minnkandi minnihluta þeirra sem sækja sér háskólamenntun.
[adspot]Það að eiga í erfiðleikum með að lesa skerðir getu einstaklings til þess að afla sér tekna sem og til þess að vera vel upplýstur einstaklingur í samfélaginu. Lakur lesskilningur takmarkar aðgengi að frekari menntun og þar með mörgum störfum. Jafnvel ef við setjum upp óraunhæfu sviðsmyndina um að drengir hafi eingöngu áhuga á því að vinna verklega vinnu þurfa þeir samt að getað lesið og reiknað. Iðnnám, t.d. til að verða smiður, þarfnast lesturs og reiknings á menntaskólastigi. Smiðir og aðrir í sjálfstæðri vinnu eru ekki að smíða allan daginn. Þeir þurfa að annast reksturinn sem felur í sér að skrifa reikninga, gera samninga, gera kostnaðaráætlanir, fylgjast með atvinnutækifærum og þróun í starfsumhverfinu, ýmis skriffinnska og fleira. Drengir sem eiga erfitt með að lesa, skilja og ræða jafnvel innihald þessarar greinar munu eiga erfitt með að gera nokkuð af framangreindu ef þeir á annað borð komast í gegnum bóklega hluta námsins. Þessir sömu drengir munu heldur ekki eiga auðvelt með að leita sér sjálfir að upplýsingum til að móta sýnar eigin skoðanir um málefni líðandi stundar. Það takmarkar mjög getu þeirra til að vera virkir í pólitík, átta sig á hvenær þeir eru að lesa sannar upplýsingar eða hvenær sé verið að reyna misnota sér vankunnáttu þeirra.
Hér hef ég ekki einu sinni byrjað á að fara yfir þá skerðingu á lífsánægju sem felst í skertu valfrelsi, skertri getu til þess að láta til sín taka á hinum ýmsu sviðum lífsins og áhrifum á líðan. Ein augljós vísbending um slíkt er sú staðreynd að óhemju hátt hlutfall íslenskra drengja eru á þunglyndislyfjum.
Ég held að það sé öllum ljóst að ef við takmörkum starfsmöguleika sirka eins og af hverjum sex Íslendingum (karlar verandi um helmingur landsmanna) hefur það gríðarleg efnahagsleg áhrif. Til að setja hlutina í smá samhengi dróst landsframleiðsla Íslands saman um rúm 10% á árinu 2020 í kjölfar Covid, sem er stærðarinnar högg. Ofur einföldun er að ímynda sér að einn af hverjum tíu hafi ekki unnið handtak á árinu. Það er því auðvelt að sjá að sú ákvörðun að takmarka starfsmöguleika eins af hverjum sex Íslendingum ekki bara í eitt eða tvö ár eins og Covid heldur áratugum saman hlýtur að hafa stór áhrif á efnahaginn. Það hefur ekki bara áhrif á þá einstaklinga sem hafa færri atvinnutækifæri heldur á þjóðfélagið allt því við missum af hugviti þeirra og tækninýjungum, missum af skatttekjum sem kynni að hljótast og fleira og fleira.
Okkur bíður ærið verkefni en það verður að taka þennan slag af fullri alvöru. Við verðum að átta okkur á þeim efnahagslegu og persónulegu áhrifum sem þessi staða hefur í för með sér. Þetta er ekki málefni sem á að vera á óskalista yfir verkefni í framtíðinni, menntun eru undirstaða hagkerfisins okkar.
Höfundur er Pírati og býður sig fram í prófkjöri Pírata í Reykjavík 2021.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir