Skoða að leggja tafagjöld á einkabíla í Reykjavík

Borg­ar­yf­ir­völd eru að kanna það að leggja svokölluð tafagjöld á einka­bíla til að draga úr og stýra umferð innan borg­ar­innar. Samgöngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra hefur viðrað sam­bæri­legar hug­myndir.

Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur.
Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir, for­maður skipu­lags- og sam­göngu­ráðs Reykja­víkur. Mynd: Bára Huld Beck

Til skoð­unar er innan Reykja­vík­ur­borgar að leggja á tafagjöld til að draga úr og stýra umferð einka­bíla innan borg­ar­marka. Þetta segir Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir, for­maður skipu­lags- og sam­göngu­ráðs Reykja­víkur, í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar er haft eftir henni að horft sé til góðs árang­urs Osló­ar­borgar af álagn­ingu slíkra gjalda. „Norðmenn hafa beitt meng­unar og tafagjöldum. Þau hafa tvenns konar áhrif. Þau draga úr bíla­um­ferð og nýt­ast gríð­ar­lega vel til að byggja inn­viði fyrir vist­væna far­ar­máta.“

Slíkar hug­myndir eru ekki ein­ungis til umræðu á vett­vangi borg­ar­stjórnar. Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, sagði í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í byrjun apríl að ein þeirra sviðs­mynda sem verið sé að skoða í fram­tíð­ar­skipu­lagi sam­göngu­mála á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sé að setja upp gjald­töku til að stýra umferð inn á ákveðin svæði í höf­uð­borg­inni, til dæmis inn í mið­borg henn­ar.

„Það er ein sviðs­myndin sem við erum að vinna eftir og munum gera í sam­starfi við sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í þeim til­gangi að ná fram þessum mark­miðum um örugg­ari og skil­virk­ari umferð en líka þessum loft­lags­mark­miðum okkar um betri loft­gæði. Við vitum að hér í Reykja­vík er illu heilli oft á tíðum bara ekki nógu gott ástand hvað varðar loft­gæði og við þurfum að gera eitt­hvað í því og umferðin er oft á tíðum stærsti þátt­ur­inn þar.“

Hann sagði í þætt­inum að í þeirri veg­ferð væri verið að horfa á norskt mód­el, sem fyr­ir­finnst meðal ann­ars í Osló, Björg­vin, Stavangri og tveimur öðrum þétt­býl­is­kjörnum þar sem eru sam­bæri­legir að stærð við höf­uð­borg­ar­svæð­ið. „Þar sem að menn hafa sett upp gjald­töku sem að hefur áhrif á hegðun fólks á ákveðin hátt. Stýrir umferð“.

Sig­ur­borg segir við Morg­un­blaðið í dag að án rót­tækra breyt­inga muni mark­mið borg­ar­innar í lofts­lags­málum ekki nást. „Jafnvel þótt það mark­mið náist árið 2040 að 58 pró­sent allra ferða verði með almenn­ings­sam­göngum með borg­ar­línu mun umferð engu að síður aukast. Við munum því ekki ná mark­miðum Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins í lofts­lags­málum[...]Borg­ar­línan mun stýra upp­bygg­ing­unni í borg­inni. Við erum að þétta byggð mest þar sem línan verður. Sam­göngu­mát­inn hefur mest áhrif á hvernig borgir byggj­ast upp.“

Á meðal ann­arra leiða sem séu til skoð­unar sé álagn­ing taf­ar­gjalda. „Sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru að skoða þessa leið. Það hefur þó engin ákvörðun verið tekin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár