Breytt skipulag bólusetninga: Allir skammtar notaðir strax

Íslend­ingar eru að lenda í veru­legum vand­ræðum á landa­mærum ann­arra ríkja vegna hertra reglna. Sótt­varna­læknir, land­læknir og aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn hvetja fólk til að fara ekki til útlanda að nauð­synja­lausu.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Á síð­ast­liðnum þremur sól­ar­hringum hafa fimm ein­stak­lingar greinst með COVID-19 inn­an­lands, þar af tveir utan sótt­kvíar. 25 hafa greinst á landa­mærum á sama tíma­bili en ekki allir þó með virk smit. Í gær greindust fjögur smit inn­an­lands. 143 eru í ein­angrun vegna COVID-19.

Nú hafa 43 greinst með breska afbrigðið hér á landi, þar af sjö inn­an­lands. Allir tengj­ast þeir fólki sem greind­ist á landa­mær­unum. Enginn á landa­mærum hefur greinst með suð­ur­a­fríska afbrigði veirunnar eða afbrigði frá Brasilíu en þau líkt og það breska eru talin meira smit­andi en fyrri afbrigði.

Mjög lítið samfélagslegt smit

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði að út frá ýmsum þáttum mætti segja að mjög lítið sam­fé­lags­legt smit væri í gangi á land­inu. Sömu sögu er ekki að segja frá öðrum ríkjum og víða hefur verið hert veru­lega á aðgerðum á landa­mærum. Er því ekki ráð­legt að fara til útlanda að nauð­synja­lausu.

„Við höfum ákveðnar áhyggjur af hversu margir eru að grein­ast með smit á landa­mær­unum,“ sagði Þórólfur á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Á föstu­dag­inn setti ráð­herra nýja reglu­gerð um að allir sem hingað koma þurfi að fara í tvö­falda skimun. „Vonandi mun það duga til þess að hindra frek­ari útbreiðslu inn­an­lands,“ sagði Þórólfur. Hann minnti svo á að þó að slakað hefði verið á tak­mörk­unum inn­an­lands þyrftu allir enn að gæta að ein­stak­lings­bundnum sýk­ing­ar­vörnum og forð­ast hópa­mynd­anir.

Um 3.500 fá bólusetningu í vikunni

Í vik­unni munu 5.000 manns fá síð­ari skammt­inn af bólu­efni Pfizer, fram­línu­fólk og íbúar hjúkr­un­ar­heim­ila sem fengu fyrri skammt­inn í lok síð­asta árs. Þá munu 3.500 manns í elstu ald­urs­hópum fá sína fyrstu sprautu af bólu­efn­inu í vik­unni en sá skammtur kom til lands­ins í morgun.

Þegar fyrstu 10 þús­und skammt­arnir af bólu­efni Pfizer-BioNtech komu í lok des­em­ber var ákveðið að bólu­setja 5.000 manns og geyma hina skammt­ana til að gefa sama hópi seinni skammt­inn. Frá þeirri aðferð hefur nú verið horfið að sögn sótt­varna­læknis. Í síð­ustu viku komu 1.200 skammtar af bólu­efni Moderna og jafn­margir voru bólu­settir. Það sama verður upp á ten­ingnum hvað varðar nýj­ustu send­ingu frá Pfizer sem barst í morgun.

Þetta er að sögn Þórólfs óhætt núna þar sem búist er við því að aðföngin verði jafn dreifð á næstu vikum. Dreifing bólu­efna var hins vegar óljós­ari í des­em­ber og því þótti ekki óhætt að bólu­setja marga með fyrri skammti og von­ast svo eftir næsta skammti á réttum tíma en um þrjár vikur þurfa að líða á milli skammt­anna tveggja.

Forðist utanlandsferðir

Rögn­valdur Ólafsson aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn og Þórólfur fjöll­uðu báðir um hertar aðgerðir á landa­mærum víða um heim á fund­inum. Skilaboð þeirra voru þau að allir ættu að forð­ast að fara erlendis að nauð­synja­lausu. Á landa­mærum sumra ríkja væri nú verið að óska eftir vott­orðum um nei­kvæða skimun með mjög tak­mörk­uðum tíma­við­mið­unum, sem nær ómögu­legt væri að útvega. „Við erum að heyra um mjög marga sem eru að lenda í vand­ræðum á landa­mærum víða þar sem beðið er um vott­orð,“ sagði Þórólfur. „Það er algjör­lega ljóst að mörg lönd eru að herða veru­lega á sínum landa­mærum og nú meðan menn eru að læra á það kerfi ætti fólk að forð­ast ferðir erlendis.“ Rögn­valdur sagði að þar sem sums staðar væri verið að óska eftir vott­orðum um mjög skamman tíma frá sýna­töku væru landa­mærin þeirra landa því í raun og veru lokuð fyrir flesta.

Alma Möller land­læknir minnti á að við værum í ein­stak­legra góðri stöðu hvað far­ald­ur­inn snerti hér á landi. „En við megum samt alls ekki sofna á verð­inum,“ sagði land­læknir og ítrek­aði mik­il­vægi þess að virða reglur og per­sónu­bundnar sótt­varnir. „Höfum hug­fast hvað þriðja bylgjan kom aftan að okkur og hvað lítið þurfti til. Látum það ekki ger­ast aftur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár