Brexit-veruleikinn sagður vísa veginn til einangrunar

Brexit getur haft veru­lega nei­kvæð áhrif á við­skipti með sjáv­ar­af­urðir, segir for­stjóri Samherja. For­sæt­is­ráð­herra Bret­lands er harð­lega gagn­rýndur af The Economist fyrir að boða ein­angr­una­hyggju.

For­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, Theresa May, er að færa efna­hags­stefnu Breta hratt til vinstri. Þetta mátti lesa út úr ræður sem May hélt í gær á fundi Íhalds­flokks­ins, að því er The Economist heldur fram. Í rit­inu er stefnu­mark­andi ræða May greind með þeim hætti, að eftir Brexit-kos­ing­una í júní, þar sem breskur almenn­ingur kaus með því að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið, þá sé það orðið að opin­berri stefnu Íhalds­manna að fjar­lægj­ast alþjóða­vætt við­skipta­líf og mark­aðs­bú­skap sem því hefur fylgt.

Hún hafi boðað Brexit sem „hljóð­láta bylt­ingu“ og atburð sem kæmi aðeins einu sinni hjá hverri kyn­slóð. Með Brexit væri almenn­ingur að senda „elít­unni“ skila­boð um það snérist ekki allt um hana.

Hægri hliðin

Þegar kom að félags­legu hlið­inni, hinum mórölsku skila­boðum ræð­unnar, segir The Economist að May hefði hallað sér til hægri. Boðað pópúl­is­mann frá Nigel Farage, þar sem alið væri á ótta og þjóð­ern­is­hyggju.

May er sögð hafa gagn­rýnt harð­lega tal þeirra sem gerðu lítið úr mik­il­vægi ein­kennum breskrar menn­ingar, og talað fyrir því að tím­inn til þess að yfir­gefa „sós­íal­íska breytni“ og „frjáls­lynd hægri sjón­ar­mið“ og marka nýja stefnu á miðju stjórn­mál­anna. Þessi nýja stefna væri það sem rík­is­stjórn hennar myndi móta á grunni breytts veru­leika.

Einangrunarhyggja

Í leið­ara The Economist er þessi stefnu­mörkun May gagn­rýnd harð­lega, og hún sögð ala á ein­feldni og það sem væri verst af öllu fyrir breskt efna­hags­líf; ein­angr­un­ar­hyggju. Þrátt fyrir að May hefði ítrekað að Bretland myndi form­lega hefja útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu á næsta ári, þá væri ekki góð efna­hags­stefna í aug­sýn. Auk þess væri það mikið áhyggju­efni fyrir breskt efna­hags­líf, að í land­inu væri vöxt­ur­inn fyrst og fremst í lág­launa­störfum.

Verstu spár ekki ræst

Þrátt fyrir að mörg fag­tíma­rit um við­skipti og efna­hags­líf, The Economist þar á meðal, hafi gagn­rýnt stjórn­völd í Bret­landi fyrir við­brögðin við Brexit-kosn­ing­unni, þá hafa verstu spár um þróun efna­hags­mála í land­inu ekki ræst. Atvinnu­leysi hefur ekki mikið færst upp og mælist um 5,4 pró­sent, en hag­vaxt­ar­horfur eru nú sagðar umtals­vert verri en áður. Þá hafa alþjóð­leg fyr­ir­tæki, á borð við jap­anska bíla­fram­leið­endur og banda­ríska banka, kallað eftir því að fá skýr­ari stefnu á borðið um hvernig reglu­verkið verði sem taki við af sam­evr­ópsku reglu­verki Evr­ópu­sam­bands­ins.

Ísland á mikilla hagsmuna að gæta

Þegar kemur að Bret­lands­mark­aði á Ísland mik­illa hags­muna að gæta. Í gegnum tíð­ina hefur þessi 64 millj­óna íbúa þjóð, verið með allra mestu við­skipta­ríkjum Íslands. Það sam­band hefur frekar styrkst en hitt, á síð­ustu árum, enda fjölgar breskum ferða­mönnum sem hingað koma stöðugt. Þrátt fyrir að mikla veik­ingu punds­ins gagn­vart krón­unni á árinu þá hefur breskum ferða­mönnum fjölgað um 32 pró­sent miðað við fyrstu átta mán­uði árs­ins.

Bretar voru fjöl­menn­astir í hópi erlendra ferða­manna hingað til lands í fyrra, ásamt Banda­ríkja­mönnum. Samtals komu ríf­lega 241 þús­und ferða­menn frá Bret­landi til lands­ins, eða um 19 pró­sent af heild­ar­fjölda ferða­manna.

Verðmæti útflutn­ings, einkum sjáv­ar­af­urða, hefur skerst veru­lega við þessa geng­is­þróun sem að framan er lýst. Pundið kostar nú 144 krónur, en fyrir rúmu ári kost­aði það 206 krónu. Það munar um minna. Í fyrra nam útflutn­ingur til Bretland 73 millj­örðum króna, og var það um 12 pró­sent af heild­ar­út­flutn­ingi.

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, gerði þessa þróun að umtals­efni á dög­unum, þegar hann fjall­aði um þróun á erlendum mörk­uðum. „Fyr­ir­huguð útganga Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu mun hins vegar hafa nei­kvæð áhrif á afkomu okkar, að minnsta kosti til skamms tíma á meðan pundið er veikt. Stór hluti þorskaf­urða félags­ins er seldur í Bret­landi,“ sagði Þor­steinn Már.

Verður að koma í ljós hvernig fer

Erfitt er að segja til um hver áhrifin af veik­ingu punds­ins verða í Bret­landi til lengdar, en flestar spár þar gera ráð fyrir að breskt efna­hags­líf mun þurfa að fara í „sárs­auka­fulla“ aðlögun að breyttum veru­leika. Vonir standa til þess að fleiri ferða­menn muni heim­sækja landið, enda verð­lag skyndi­lega búið að batna um meiran 25 pró­sent mælt í flestum helstu við­skipta­myntum, en á móti kemur þá hafa mörg iðn­fyr­ir­tæki áhyggjur af því að erf­ið­ara verði að laða til lands­ins þekk­ingu og sam­keppn­is­hæft starfs­fólk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár