Leonardo DiCaprio útskýrir loftslagsmál á mannamáli

Hollywood-leik­ar­inn Leonardo DiCaprio hefur verið ötull tals­maður þess að mann­kynið þurfi að bregð­ast við lofts­lags­breyt­ingum. Hér hans nýjasta fram­lag; heim­ilda­myndin Before the Flood.

Lofts­lags­breyt­ingar eru eitt mest aðkallandi vanda­málið sem mann­kynið hefur staðið frammi fyrir. Lofts­lags­breyt­ingar ógna ekki aðeins því vist­kerfi sem mann­eskjur hafa kallað heim­kynni sín frá því þær fóru að ganga upp­réttar, heldur einnig mann­kyn­inu sjálfu; sjálfri ver­öld­inni.

Banda­ríski kvik­mynda­leik­ar­inn Leonardo DiCaprio hefur í nærri tvo ára­tugi verið ötull tals­maður þess að mann­eskjan bregð­ist við þessum lofts­lags­breyt­ingum. Árið 2014 var hann skip­aður sér­stakur sendi­full­trúi Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­mál.

Und­an­farin tvö ár hefur hann unnið að gerð heim­ilda­mynd­ar­innar Before the flood sem gefin var út á inter­net­inu í síð­ustu viku. DiCaprio segir mark­miðið með mynd­inni vera að útskýra flókin vís­indi sem búa að baki kenn­ingum um lofts­lags­breyt­ingar fyrir alla. „Þetta er að ger­ast hraðar en nokkur hafði reiknað með,“ sagði DiCaprio í sam­tali við Ellen DeGeneris í þætti hennar í síð­ustu viku. „Þetta er ofboðs­lega aðkallandi vanda­mál.“

Heim­ilda­myndin var opin öllum á Youtube-rás National Geographic þar til á sunnu­dag­inn en síðan hefur mynd­inni verið deilt ótal sinnum á Youtube. Hér að ofan má horfa eitt slíkt ein­tak. Annars er les­endum bent á sjón­varp­stöð­ina National Geographic sem mun vafa­lítið sýna mynd­ina oft næstu vikur.

Í heim­ilda­mynd­inni ræðir DiCaprio meðal ann­ars við Barack Obama frá­far­andi Banda­ríkja­for­seta og Frans páfa; og flýgur heims­horna á milli til að sjá víg­stöðvar lofts­lags­breyt­inga með eigin augum. Þá bendir Leonardo DiCaprio einnig á leiðir fyrir venju­legt fólk til þess að leggja sitt af mörkum til þess að sporna við lofts­lags­breyt­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár