Níu manns búast við forsetavottorðum

Yfir­kjör­stjórnir eru nú í óða önn við að afhenda vott­orð til for­seta­fram­bjóð­enda eftir taln­ingu á með­mæl­enda­skrám. Allt bendir til þess að níu fram­bjóð­endur verði á kjör­seðl­inum í júní.

Sturla Jónsson, Hildur Þórðardóttir, Ástþór Magnússon, Guðni Th. Jóhannesson, Elísabet Kristín Jökulsdóttir, Guðrún Margrét Pálsdóttir, Andri Snær Magnason, Davíð Oddsson og Halla Tómasdóttir.
Sturla Jónsson, Hildur Þórð­ar­dóttir, Ástþór Magn­ús­son, Guðni Th. Jóhann­es­son, Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir, Guðrún Margrét Páls­dóttir, Andri Snær Magnason, Davíð Oddsson og Halla Tóm­as­dóttir.

Búist er við því að níu for­seta­fram­bjóð­endur, fimm karlar og fjórar konur, nái að skila inn til­skildum fjölda með­mæl­enda til yfir­kjör­stjórna og fá vott­orð til að full­gilda fram­boð sitt. Nokkrir hafa helst úr lest­inni síð­ustu daga. 

Útlit fyrir að Elísabet sé sloppin

Flest bendir til þess að Íslend­ingar geti valið um níu ein­stak­linga í for­seta­kosn­ing­unum. Yfir­kjör­stjórnir afhenda vott­orð vegna með­mæla í dag, sem fram­bjóð­endur þurfa að skila til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins áður en dag­ur­inn er úti.

Andri Snær Magnason, Ástþór Magn­ús­son, Davíð Oddsson, Guðni Th. Jóhann­es­son, Guðrún Margrét Páls­dóttir, Halla Tóm­as­dóttir, Hildur Þórð­ar­dóttir og Sturla Jónsson voru öll að taka á móti vott­orðum frá yfir­kjör­stjórnum í dag, eða ein­hver á þeirra vegum.

Allt útlit er fyrir að Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir hafi náð að safna nægum með­mælum, en hún hefur staðið í ströngu und­an­farna daga og ferð­ast um allt land til að safna. Í sam­tali við Kjarnann seg­ist hún búast við því að þetta hafi náðst.

Sturla segist vera með flestar undirskriftir

Sturla segir í sam­tali við Kjarnann að hann hafi heyrt frá kjör­stjórnum að hann sé með flesta með­mæl­endur. Hann skil­aði inn rúm­lega 2.200 bara í Sunn­lend­inga­fjórð­ungi, en lág­marks­fjöldi und­ir­skrifta fyrir allt landið eru 1.500.

Magnús Ingi Magn­ús­son, eða Texas-Maggi, dró fram­boð sitt til baka dag­inn sem skila átti inn und­ir­skriftum. Hann sagði þá að hann hefði hug á að fara á þing. Benedikt Kristján Mewes hefur einnig dregið fram­boð sitt til baka, en hann náði aldrei til­skyldum fjölda. Nýjasti fram­bjóð­and­inn, Magnús Ingberg Jónsson, náði ekki að skila inn nægum fjölda, en Vísir greinir frá því að um 700 gild með­mæli vanti upp á og ólík­legt verði að telj­ast að hann nái að skila þeim til Ráð­húss­ins í dag. Kjarninn náði ekki í Baldur Ágústs­son, en ekki er talið að hann hafi náð til­skildum fjölda með­mæl­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár