Uber á leiðinni á hlutabréfamarkað

Banda­ríska skutl­fyr­ir­tækið Uber stefnir á að skrá félagið á hluta­bréfa­markað á næsta ári. Talið er að Uber gæti reynst allt að 120 millj­arða dala virði í frumút­boð­inu. Lyft, helsti sam­keppn­is­að­ili Uber, stefnir einnig á skrán­ingu á hluta­bréfa­markað.

Banda­ríska skutl­fyr­ir­tækið Uber hefur hafið und­ir­bún­ing fyrir skrán­ingu félags­ins á hluta­bréfa­markað. Fyr­ir­tækið skil­aði inn fyrstu útboðs­gögnum á fimmtu­dag sam­kvæmt frétt Reuters en stefnt er að félagið verði skrá á markað snemma á næsta ári.

Lyft stefnir einnig á skráningu á hlutabréfamarkað

Sama dag til­kynnti Lyft, helsti keppi­nautur Uber, að fyr­ir­tækið hefði einnig sótt um skrán­ingu. Samkvæmt umfjöllun Reuters stendur til að ráða stór­bank­ana Morgan Stanley og Goldman Sachs til þess að hafa umsjón með skrán­ing­unni sem gæti orðið sú stærsta í banda­ríska tækni­geir­anum í nokkur ár.

Uber verður tíu ára á næsta ári en félagið er þegar orðið að risa­fyr­ir­tæki. Skutl­þjón­usta Uber er í boði í yfir sjö­tíu löndum en Lyft býður aðeins upp á þjón­ustu sína í Banda­ríkj­unum og Kanada. Lyft stefnir að því að skrá félagið á hluta­bréfa­markað í mars eða apríl á næst ári en von er á að skrán­ing Uber verði um svipað leyti.[adspot]

Allt að 120 milljarða dala virði

Uber var metið á 76 millj­arða dala í síð­ustu fjár­mögn­un­ar­lotu og gæti fyr­ir­tækið reynst allt að 120 millj­arða dala virði í frumút­boð­inu. Í fyrsta skulda­bréfa­út­boði Uber í októ­ber seldi félagið skulda­bréf fyrir tvo millj­arða dala, jafn­virði 234 millj­arða króna og eft­ir­spurnin reynd­ist meiri en gert hafði verið ráð fyrir.

Gert er ráð fyrir að tekjur Uber verði á bil­inu 10 til 11 millj­arðar dala í ár borið saman við 7,8 millj­arða dala í fyrra. Félaginu hefur ekki enn tek­ist að skila hagn­aði.

Fjöldi hneykslismála

Aukið eft­ir­lit og athygli fylgir því að skrá félag á hluta­bréfa­markað en röð hneyksl­is­mála hafa fylgt Uber á síð­ustu árum. Fyr­ir­tækið hefur m.a. þurft að greiða 56 fyrr­ver­andi og núver­andi starfs­mönnum 200 millj­ónir króna í skaða­bætur vegna kyn­ferð­is­legrar áreitni. Auk þess varð sjálf­keyr­andi bíll fyr­ir­tæk­is­ins konu að bana fyrr á þessu ári. Uber stöðv­aði til­raunir sínar með sjálf­keyr­andi bíla í nokkrum borgum í Banda­ríkj­unum eftir banaslysið. Félagið hefur reynt að rétta úr kútnum m.a. með því að ráða Dara Khorosrowshahi sem stjórn­anda fyr­ir­tæk­is­ins.

Uber hefur bætt ýmsu við þjón­ustu sína á síð­ustu árum, til dæmis með því bjóða upp mat­ar­send­ingar og leigu á raf­magns­hjólum og vespum. Félagið kynnti síðan í síð­ustu viku til sög­unnar Uber stræt­is­vagna­þjón­ustu í Kaíró. munu not­endur í höf­uð­borg Egypta­lands geta pantað far með smárútu og sér for­rit Uber um að smala saman í eina rútu fólki sem er á sömu leið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár