Hvað verður um íslenska fjölmiða?

Einka­reknir fjöl­miðlar á Íslandi eru reknir með tapi. Þeir stærstu treysta á millj­arða­með­gjöf auð­ugra eig­enda. Gömul við­skipta­módel eru hrunin og neyslu­venjur hafa gjör­breyst sam­hliða tækni­bylt­ingu. Hvað er hægt að gera?

Staða einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi hefur ekki verð beysin á und­an­förnum árum. Flestir stóru miðl­arnir fóru að minnsta kosti lang­leið­ina á hlið­ina eftir hrun og þeir rekstr­ar­erf­ið­leikar hafa magn­ast vegna gíf­ur­legrar tækni­fram­þró­unar og neyslu­breyt­inga. Þær breyt­ingar hafa grafið undan þeim við­skipta­mód­elum sem hefð­bundnir fjöl­miðlar not­uðu til að fjár­magna starf­semi sína ára­tugum saman, þ.e. blöndu áskriftar og aug­lýs­inga­sölu.

Þótt mun auð­veld­ara sé að setja á fót staf­ræna fjöl­miðla sem krefj­ast ekki þess að fjár­fest sé í dreif­ing­ar­kerfi með til­heyrj­andi kostn­aði, heldur sem geta nýtt sér inter­netið og sam­fé­lags­miðla til að miðla efni sínu fyrir engan eða lít­inn pen­ing, þá glímir sú leið líka við ýmis konar vanda. Staða staf­rænu miðl­anna er líka sífellt að vera þrengri, meðal ann­ars vegna þess að Facebook, Google, Youtube og fleiri erlendir aðilar taka til sín sífellt fleiri aug­lýs­inga­krónur. Og vilji almenn­ings til að borga fyrir fréttir hefur dvínað mjög und­an­farin ára­tug án þess að nýjar tekju­leiðir hafi getað bætt þá þróun upp.

En byrjum á smá sagn­fræði.

Stórir miðlar í miklum vandræðum eftir hrun

Hvað gerð­ist á fjöl­miðla­mark­aðnum eftir hrun? Sam­an­dregið má segja að allir einka­reknir fjöl­miðlar sem störf­uðu fyrir hrun hafi lent í vand­ræðum á sama tíma og bank­arnir hrundu. Þeir voru enda flestir komnir í eigu áhrifa­manna í íslensku við­skipta­lífi á þeim tíma, að mestu menn sem áttu líka stóra hluti í við­skipta­bönk­unum þremur sem féllu í októ­ber 2008.

Við­skipta­blaðið var til að mynda í eigu félags sem hét Fram­tíð­ar­sýn fyrir hrun og var farið að koma út fjórum sinnum í viku. Eigendur þess voru Bakka­var­ar­bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­synir. Allar eignir Fram­tíð­ar­sýnar voru seldar til blaða­manns­ins Gísla Freys Val­dórs­sonar á eina krónu. Hann áfram seldi svo rekst­ur­inn, sem meðal ann­ars inni­hélt áskrif­enda­grunn blaðs­ins, til Myllu­set­urs ehf. í nóv­em­ber 2008. Með fylgdu hluti skulda. Í kjöl­farið Fram­tíð­ar­sýn sett í þrot og stór hluti starfs­manna Við­skipta­blaðs­ins þurftu að sækja van­greidd laun til ábyrgð­ar­sjóðs launa. Myllu­setur er enn þann dag í dag eig­andi blaðs­ins og syst­ur­blaða þess.

Stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins er 365 miðl­ar. Það félag, sem hét einu Rauð­sól, keypti alla fjöl­miðla „gamla“ 365 í nóv­em­ber 2008 á 1,5 millj­arð króna og með yfir­töku skulda. Eigandi Rauð­sólar var Jón Ásgeir Jóhann­es­son, sem hafði líka verið aðal­eig­andi gamla 365.

Gamla 365 ehf., sem var end­­­ur­­­nefnt Íslensk afþrey­ing ehf., fór í þrot og kröf­u­hafar þess töp­uðu 3,7 millj­­­örðum króna. Á meðal kröfu­hafa þess voru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir og rík­is­bank­inn Lands­banki Íslands. Félagið skuld­aði tíu millj­arða í lok árs 2015 og hefur tapað millj­örðum króna á síð­ustu árum sam­hliða því að fjarað hefur undan við­skipta­mód­elum helstu miðla þess. Aðal­eig­andi 365 miðla í dag er eig­in­kona Jóns Ásgeirs, meðal ann­ars í gegnum erlend félög þar sem hann hefur pró­kúru.

Næst stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins er Árvak­ur, sem gefur m.a. út Morg­un­blaðið og heldur úti mbl.is. Það félag fór líka nán­ast í þrot eftir banka­hrunið. Nýr eig­enda­hópur, sem sam­an­stóð aðal­lega að útgerð­ar­mönnum, keypti það snemma árs 2009 og fengu um leið gíf­ur­legar afskriftir af skuldum félags­ins. Alls hafa 4,5 millj­arðar króna verið afskrif­aðar hjá Árvakri auk þess sem hinir áhrifa­miklu, og ríku, eig­endur fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins lögðu því til 1,2 millj­arða króna. Þrátt fyrir þessa gíf­ur­legu með­gjöf hefur rekstr­­­ar­tap félags­­­ins verið að minnsta kosti 1,5 millj­arði króna frá því að nýir eig­endur tók við félag­inu árið 2009. Nú er verið að safna nýju hlutafé og segja heim­ildir að til þurfi um 400 millj­ónir króna til að brúa tap síð­ast árs og fyr­ir­sjá­an­legt tap í ár.

Það hefur verið opin­berað að Morg­un­blaðið hafi sett sér póli­tíska stefnu­skrá sem í fólst m.a. að standa gegn breyt­ingum á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu, gegn aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, gegn vinstri stjórn­inni sem sat hér eftir hrun og gegn stjórn­ar­skrár­breyt­ingum. Það gerð­ist meðal ann­ars í neð­an­greindu við­tali við Óskar Magn­ús­son, fyrr­ver­andi útgef­anda Árvakurs, á Hring­braut í fyrra.

Hjá 365 hefur fyrr­ver­andi eig­andi, og nú maki eig­anda og skugga­stjórn­andi, fyr­ir­tæk­is­ins margoft orðið upp­vís að því að skipta sér að frétta­flutn­ingi um saka­mál sem rekin eru gegn honum og reynt að beita miðl­unum fyrir sig í frels­is­bar­áttu sinni og ann­arra sem glíma við sömu bar­áttu.

Fjölmiðlaveldi Björns Inga

Í mars 2010 keypti hópur fólks DV og vef­inn DV.is af Birtingi, en rekstur þess ráð­setta dag­blaðs hafði þá verið þungur um nokk­urt skeið. Reynir Trausta­son, og sonur hans Jón Trausti, voru í for­grunni hóps­ins og þeir tóku við stjórn fyr­ir­tæk­is­ins eftir að kaupin gengu í gegn. Um þá stjórn héldu þeir í rúm fjögur ár. Rekst­ur­inn var erf­iður og DV-tíð feðganna end­aði með því að Pressan, fjöl­miðla­fyr­ir­tæki Björns Inga Hrafns­sonar, tók yfir hann eftir gríð­ar­leg átök seinni hluta árs 2014. Fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður DV sagði að yfir­takan hefði verið tengd Fram­sókn­ar­flokknum. Því var hafnað af þáver­andi fram­kvæmda­stjóra flokks­ins.

Pressan var stofnuð af Birni Inga eftir að hann hætti sem við­skipta­rit­stjóri Frétta­blaðs­ins í kjöl­far hruns­ins. Hún hóf starf­semi sem ein frétta­vef­síða snemma árs 2009. Upp­haf­legir eig­endur voru VÍS (33 pró­sent), sem þá var enn undir stjórn Bakka­var­ar­bræðr­anna Ágústar og Lýðs Guð­munds­sona, Björn Ingi sjálfur (26,37 pró­sent), félag í eigu Róbert Wessman (23,08 pró­sent) og Arnars Ægis­sonar (17,58 pró­sent).

Pressan hefur vaxið hratt á und­an­förnum árum og tekið yfir margar ein­ingar á fjöl­miðla­mark­aði. Þar má nefna ÍNN, Eyjuna og ýmis konar svæð­is­miðla. Stærsta yfir­takan var þó þegar Pressan komst yfir DV og DV.is. Þessi veg­ferð hefur kostað skild­ing­inn. Skuldir Sam­stæð­unnar sex­föld­uð­ust á milli áranna 2013 og 2015 og stóðu í lok þess árs í 444 millj­ónum króna. Líkt og komið verður betur að síðar er skulda­staðan nú enn verri. Ljóst er að hluti skuld­anna hafa verið selj­enda­lán. En ekki hafa feng­ist neinar upp­lýs­ingar um hverjir aðrir voru að lána Pressu­sam­stæð­unni, eða eig­endum hennar, allt það fé sem hún hefur brennt á liðnum árum.

Fyrir utan ofan­greinda, sem taka til sín langstærstan hluta af öllum þeim tekjum sem eru í boði á fjöl­miðla­mark­aðnum, hafa ýmsir minni fjöl­miðlar sem leggja áherslu á þjóð­fé­lags­mál og fréttir verið stofn­aðir. Þar er um að ræða miðla eins og Kjarnann, Stundina og Hring­braut. Þeir, líkt og rót­grónu miðl­arnir, hafa allir glímt við tap­rekstur.

Þá er auð­vitað ótalin ris­inn á mark­aðnum, RÚV. Á sama tíma og nær allir einka­reknir miðlar töp­uðu fé hagn­að­ist rík­is­mið­ill­inn um 1,4 millj­arða króna í fyrra. Uppi­staðan var vegna sölu á bygg­inga­rétti en það var líka hagn­aður af reglu­legri starf­semi RÚV upp á 95 millj­ónir króna. Aug­lýs­inga­tekjur RÚV á síð­asta ári voru 2,2 millj­arðar króna og fyr­ir­tækið fékk auk þess 3,8 millj­arða króna úr rík­is­sjóði á ári.

Þrír ráðandi þættir skekkja umhverfið

Allt ofan­greint hefur gert það að verkum að rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla hefur verið mjög erfitt eftir hrun. Þeir fjöl­miðlar sem hafa haft úr mestu að spila hafa ekki verið reknir á rekstr­ar­legum for­sendum heldur fengið millj­arða króna með­gjöf frá auð­ugum aðilum til að halda úti víð­feðmi starf­semi sinni. Sú staða, að hags­muna­að­ilar borgi undir tap­rekstur stórra fjöl­miðla og að bankar afskrifi millj­arða skuldir þeirra, hefur haft mikil áhrif á sam­keppni á fjöl­miðla­mark­aði. Og dregið úr mögu­leikum þeirra fjöl­miðla­fyr­ir­tækja sem eru að reyna að reka sig á sjálf­bæran, og jafn­vel arð­bæran, hátt til að geta keppt á jafn­réttis- og sam­keppn­is­grund­velli.

Aukin fyr­ir­ferð RÚV á mark­aðnum skiptir þar einnig máli ásamt miklum tækni­fram­förum og neyslu­breyt­ingum sem hafa kippt fót­unum undan gömlu við­skipta­mód­elum einka­rek­inna fjöl­miðla. Stjórn­völd brugð­ust við þess­ari stöðu með því að skipa nefnd um stöð­una seint á síð­asta ári og er vinnu hennar að mestu lokið. Hún mun skila Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, skýrslu fyrir lok þessa mán­aðar. Kristján Þór var gestur í síð­asta þætti Kjarnans á Hring­braut. Þar viðr­aði hann hug­myndir sínar um hvað sé hægt að gera til að bæta þessa stöðu.

Miklar sviptingar á nokkrum vikum

Á síð­ustu örfáu vikum höfum við séð birt­ing­ar­mynd þessa í þremur svipt­ingum sem átt hafa sér stað á fjöl­miðla­mark­aði.

Í fyrsta lagi hefur fjar­skipta­fyr­ir­tækið Fjar­skipti, móð­ur­fé­lag Vodafone, keypt flesta fjöl­miðla 365 miðla. Rekstr­ar­for­sendur stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tækis lands­ins ganga ekki lengur upp í óbreyttri mynd.

Skil fjöl­miðl­unar og fjar­skipta eru því að hverfa. Pípurnar eru að taka yfir efnið. Og það eru ansi margir sem eru hræddir um að það muni bitna á gagn­rýnni frétta­mennsku þar sem áherslan verði aðal­lega á afþr­ey­ingu.

Í öðru lagi fór Frétta­tím­inn, frí­blað sem hafði komið út frá árinu 2010 á hlið­ina eftir að hafa tapað yfir 150 millj­ónum króna á einu ári og ekki átt einu sinni fyrir launum starfs­fólks.

Í þriðja lagi var til­kynnt um nýja eig­endur Pressu­sam­stæð­unnar og það að Björn Ingi Hrafns­son, sem leitt hefur þá sam­steypu myndi stíga til hliðar sam­hliða um 300 milljón króna hluta­fjár­aukn­ingu. Líkt og Kjarninn hefur greint frá að und­an­förnu er sú björgun þó í full­komnu upp­námi þar sem nýju fjár­fest­arnir áætla að það þurfi um 700 millj­ónir króna til að koma rekstr­inum á réttan kjöl. Óreiðan er sögð svo mikil að þeir sem hafa verið kjörnir til að sitja í stjórn félags­ins hafa neitað að taka við þeim störfum þar sem þeir vilja ekki bera laga­lega ábyrgð á ástand­inu. Þeir eru nú hættir við frek­ari fjár­fest­ingu og telja engar rekstr­ar­for­sendur fyrir áfram­hald­andi rekstri. Sam­an­lagt hafi skuldir vegna van­gold­inna opin­berra gjalda, líf­eyr­is­sjóðs­greiðslna sem ekki hafi verið skilað og stétt­ar­fé­lags­gjalda verið yfir 300 millj­ónir króna. Ólöglegt er að skila ekki slíkum gjöldum eftir að búið er að draga þau af launum starfs­manna. Þá hefur sam­runa Pressunnar og tíma­rita­út­gáf­unnar Birtings verið rift og ásak­anir ganga á víxl milli aðila um að þeir skuldi hver öðrum pen­inga.

Í lið­inni viku hófust upp­sagnir innan Pressu­sam­stæð­unnar og útgáfu­dögum DV hefur þegar verið fækkað í einn.

Það er því morg­un­ljóst að erf­ið­leik­arnir á einka­reknum fjöl­miðla­mark­aði eru miklir og að þessi mark­aður muni breyt­ast mjög mikið á næstu miss­erum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár