Hliðið opnast enn meira inn á alþjóðamarkaði

Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir áttu eignir upp á tæp­lega 3.300 millj­arða króna í lok árs. Þeir hafa nú fengið heim­ildir til að fjár­festa meira í útlöndum en verða að fara var­lega.

Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eiga eignir upp á ríf­lega 3.284 millj­arða króna miðað við stöð­una eins og hún var um ára­mót. Sjóð­irnir hafa notið góðs af upp­bygg­ingu íslenska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins eftir hrunið 2008, og hefur raun­á­vöxtun flestra sjóða verið nokkuð góð í sögu­legum sam­an­burði.

Bakbeinið á hlutabréfamarkaði

Árið 2016 var fyrsta árið frá hruni, þar sem úrvals­vísi­talan á hluta­bréfa­mark­aði lækk­aði, en sé horft til und­an­far­inna fimm ára þá er óhætt að segja að líf­eyr­is­sjóð­irnir, sem eiga að minnsta kosti á bil­inu 40 til 50 pró­sent af öllum skráðum hluta­bréfum á mark­aði, hafi ávaxtað eignir sínar vel á mark­aðnum.

Heild­ar­virði fyr­ir­tækja í kaup­höll­inni nemur rúm­lega þús­und millj­örðum króna.

Samkvæmt hag­tölum Seðla­banka Íslands áttu líf­eyr­is­sjóðir hluta­bréf í íslenskum fyr­ir­tækjum fyrir 423 millj­arða um ára­mótin og fyrir 141 millj­arða króna í gegnum hlut­deild­ar­skír­teini sjóða. Samtals nemur inn­lend hluta­bréfa­eign 565 millj­örðum króna.

Dyrnar að opnast erlendum mörkuðum

Með frek­ari losun hafta má búast við því að líf­eyr­is­sjóð­irnir fjár­festi meira erlendis og nýti sínar heim­ildar til að dreifa áhætt­unni í eigna­söfnum sínum.

Seðla­bank­inn til­kynnti um það á dög­unum að hann hefði ákveðið að veita líf­eyr­is­sjóðum og öðrum inn­lendum vörslu­að­ilum sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparn­aðar nýja und­an­þágu frá lögum um gjald­eyr­is­mál til fjár­fest­ingar í fjár­mála­gern­ingum útgefnum í erlendum gjald­eyri. Sam­an­lagt nemur heim­ildin 100 millj­örðum króna og gildir til árs­loka 2017. Frá miðju ári 2015 og til loka þessa árs hefur líf­eyr­is­sjóð­unum og öðrum inn­lendum vörslu­að­ilum sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparn­aðar verið heim­ilt að fjár­festa erlendis fyrir sam­tals 95 millj­arða, þar af 85 millj­arða í fyrra.

Í til­kynn­ingu Seðla­bank­ans kemur fram að gjald­eyr­is­staða þjóð­ar­bús­ins hafi batnað veru­lega und­an­farin miss­eri og því sé hægt að rýmka heim­ildir, það er að losa um fjár­magns­höftin sem hafa verið í gildi frá því í nóv­em­ber 2008. „Gjald­eyr­is­staða þjóð­ar­bús­ins hefur batnað veru­lega sam­fara miklu gjald­eyr­is­inn­streymi, sem meðal ann­ars má rekja til metaf­gangs á við­skipta­jöfn­uði á þriðja árs­fjórð­ungi, og líkur á miklu gjald­eyr­is­út­streymi í kjöl­far frek­ari los­unar hafta hafa minnkað veru­lega. Því er nú unnt að veita heim­ild til erlendrar fjár­fest­ingar sem spannar lengra tíma­bil en áður, þ.e.a.s. fyrir allt næsta ár, auk þess að hækka heim­ild­ina frá því sem hún var í ár. Þetta mun auð­velda líf­eyr­is­sjóð­unum gerð fjár­fest­ing­ar­á­ætl­ana og stuðla að auknu hag­ræði í erlendum verð­bréfa­kaupum. Sem fyrr verður þó gerð krafa um að fjár­fest­ing sjóð­anna dreif­ist reglu­lega yfir árið. Heim­ildin fyrir næsta ár grund­vall­ast á því að svig­rúm sjóð­anna til erlendrar fjár­fest­ingar verði sem mest en þó ekki þannig að þeir selji inn­lendar eignir eða dragi sig út af inn­lendum skulda­bréfa­mark­aði í þeim mæli að veru­legri röskun valdi,“ segir í til­kynn­ing­unni, en ekki er nánar greint frá því hvað geti talist of mikil röskun á mark­aðnum.

Þjóðhagslegur ávinningur af betri áhættudreifingu

Heim­ildin er veitt með fyr­ir­vara um að fjár­hæðir geti breyst ef svig­rúm til gjald­eyr­is­kaupa reyn­ist umtals­vert minna en horfur eru á nú, til dæmis vegna óhag­stæðrar þró­unar greiðslu­jafn­aðar eða ann­arra breyttra aðstæðna. „Verði fram­hald á öfl­ugu gjald­eyr­is­inn­streymi á árinu 2017 kynni á hinn bóg­inn að skap­ast svig­rúm til hækk­unar heim­ilda líf­eyr­is­sjóð­anna til erlendrar fjár­fest­ingar.

Sem fyrr eru rökin fyrir heim­ild­inni þau að þjóð­hags­legur ávinn­ingur fylgir því að líf­eyr­is­sjóðir bæti áhættu­dreif­ingu í eigna­söfnum sínum. Þá er æski­legt að draga úr upp­safn­aðri erlendri fjár­fest­ing­ar­þörf þeirra áður en fjár­magns­höft verða end­an­lega losuð og þar með hættu á óstöð­ug­leika í gengis- og pen­inga­málum. Til lengri tíma litið hafa þessar auknu heim­ildir sjóð­anna hverf­andi áhrif á gjald­eyr­is­stöðu þjóð­ar­bús­ins því gera má ráð fyrir að gjald­eyr­is­kaup líf­eyr­is­sjóð­anna á næsta ári muni draga úr þörf þeirra til gjald­eyr­is­kaupa síðar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Fjár­fest­ing­ar­heim­ild­inni verður skipt á milli líf­eyr­is­sjóð­anna og ann­arra vörslu­að­ila með þeim hætti að ann­ars vegar verður horft til sam­tölu eigna, sem fær 86 pró­sent vægi, og hins vegar til iðgjalda að frá­dregnum líf­eyr­is­greiðslum, sem fær 14 pró­sent vægi. Byggir þetta mat á grein­ingu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á stöðu líf­eyr­is­sjóð­anna.

Um 22 prósent erlendis

Af heild­ar­eignum líf­eyr­is­sjóða eru 735 millj­arða erlendis, miðað við stöð­una eins og hún var í lok árs. Það er upp­hæð sem nemur um 22 pró­sentum af heild­ar­eignum. Stærstur hluti eigna líf­eyr­is­sjóð­anna er sem fyrr bund­inn í inn­lendum skulda­bréfum, aðal­lega verð­tryggðum. Innlend mark­aðs­skulda­bréf og útlán nema yfir 1.600 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár