Aflandseignaskýrslunni var skilað í september

Skýrsla um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum var til­búin í sept­em­ber. Það sést m.a. á hvítt­uðum texta á for­síðu hennar. Ráðu­neytið segir að hvorki hóp­ur­inn sjálfur né ráðu­neytið hafi breytt nokkru eftir skilin.

Skýrsla starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum var til­búin í sept­em­ber, og henni skilað til ráðu­neyt­is­ins þá. Samkvæmt svörum sem Kjarninn fékk við upp­haf­legri fyr­ir­spurn sinni um málið, í byrjun nóv­em­ber, var skýrslan kynnt í ráðu­neyt­inu í byrjun októ­ber.

Kjarninn greindi frá því á föstu­dag­inn að fram kemur í skýrsl­unni að henni hafi verið skilað þegar „nokkuð var liðið á sept­em­ber.“ Á for­síðu skýrsl­unnar kemur einnig fram tíma­setn­ingin sept­em­ber 2016, en það er með hvítu letri svo tíma­setn­ingin er ógreini­leg nema tekið sé utan um text­ann, líkt og bent er á í þessum pistli á Stund­inni.

Þegar skýrslan hafði verið birt á föstu­dag­inn sendi Kjarninn tvær fyr­ir­spurnir til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins. Annarri var beint til Bjarna Bene­dikts­sonar, starf­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, þar sem óskað var eftir upp­lýs­ingum um og skýr­ingum á því hvers vegna birt­ing á skýrslu starfs­hóps­ins tafð­ist fram til þess dags. Óskað var eftir upp­lýs­ingum um það hvað hafi komið í veg fyrir að hún væri birt þegar hún hafði verið kynnt í fjár­mála­ráðu­neyt­inu í byrjun októ­ber. Ekki hefur feng­ist svar við þeirri fyr­ir­spurn.

Hin fyr­ir­spurnin snérist um það hvort skýrslan sem birt var á föstu­dag­inn væri óbreytt frá því sem starfs­hóp­ur­inn skil­aði, eða hvort breyt­ingar hafi verið gerðar á henni, hvort sem væri af hálfu hóps­ins eða af hálfu ráðu­neyt­is­ins.

Í svari frá upp­lýs­inga­full­trúa fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins segir orð­rétt: „Starfs­hóp­ur­inn breytti engu í skýrsl­unni eftir að henni var skilað og ráðu­neytið hlut­að­ist ekki til um neinar breyt­ingar á skýrsl­unni.“

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sagði aftur á móti í við­tali við RÚV í gær: „Þetta var skýrsla sem var tekin saman eins og ég sagði, algjör­lega að mínu frum­kvæði, hún kemur inn í ráðu­neytið ein­hvern tím­ann í októ­ber… svona í sinni end­an­legu mynd.“ Hann sagði líka að hann hafi fengið skýrsl­una í hend­urnar eftir þing­slit, en þingi var slitið þann 13. októ­ber síð­ast­lið­inn. 

Bjarni skip­aði starfs­hóp­inn í kjöl­far upp­ljóstrana Panama­skjal­anna í apríl á síð­asta ári. Upp­haf­lega átti hann að skila skýrslu í lok júní, en það reynd­ist ekki mögu­legt. Starfs­hóp­ur­inn skil­aði skýrslu sinni í svo sept­em­ber og kynnti hana í fjár­mála­ráðu­neyt­inu í byrjun októ­ber síð­ast­lið­ins, en hún var ekki kynnt fyrir Alþingi fyrir kosn­ingar.

Kjarninn spurð­ist ítrekað fyrir um málið, og í nóv­em­ber var greint frá því að skýrslan kæmi fyrir nýtt Alþingi þegar það kæmi saman. Af því varð ekki, og Kjarninn sagði frá því fyrr í þess­ari viku að ekk­ert bólaði á skýrsl­unni þrátt fyrir að þing hafi komið saman í byrjun des­em­ber. Á föstu­dag var skýrslan svo gerð opin­ber, og hún hefur verið send til efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG, hefur óskað eftir því að nefndin komi saman í næstu viku til að ræða skýrsl­una.

Hér má lesa ítar­lega um nið­ur­stöður skýrsl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár