Pútín er ber að ofan í sumarfríi... aftur

Framundan er kosn­inga­vetur í Rúss­landi og þess vegna tók Pútín ljós­myndar­ann sinn með í sum­ar­fríið.

Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands, er kom­inn í sum­ar­frí eins og kollegi hans í Banda­ríkj­unum. Það er hins vegar ólíkt með þeim tveimur að á meðan Donald Trump sprangar um á einka­golf­velli sínum í New Jersey er Pútín ber að ofan í Síberíu í fjall­göngu og veiði­ferð.

[links]Mynd­irnar af fáklæddum Pútín á hest­baki síðan 2009 eru frægar. Nú er for­set­inn aftur ber að ofan í sum­ar­fríi. Pútín heldur sér í fínu formi með reglu­legri karate-iðkun. Pútín verður 65 ára í októ­ber.

Þessa myndir, teknar af ljós­mynd­ara for­set­ans Aleksey Niko­l­skyi, eru birtar opin­ber­lega með það að mark­miði að styrkja ímynd Pútíns sem hrausts leið­toga grósku­mik­ils lands.

For­set­inn ákvað að njóta nátt­úr­unnar í kringum Baíkal-vatn í sjálf­stjórn­ar­hér­að­inu Búrjatíu í sunn­an­verðri Síberíu. Baíkal-vatn er vatns­mesta stöðu­vatn í heimi. Þar er talið að 22-23 pró­sent alls ferskvatns á yfir­borði jarðar sé að finna. Vatnið geymir jafn­framt meira magn ferskvatns en í öllum Vötnunum miklu í Norður-Ameríku.

Það er kannski engin til­viljun að Pútín fari í þetta opin­bera sum­ar­frí sitt núna en for­seta­kosn­ingar eru á næsta leyti í Rúss­landi. Pútín hefur reyndar ekki enn sagt hvort hann ætli að gefa kost á sér eða ekki. Á föstu­dag­inn tal­aði hann fyrir framan hóp fólks nærri Baíkal-vatni í Síberíu og sagð­ist þar vera að velta fram­boði fyrir sér.

Ef Pútín ákveður að gefa kost á sér er talið lík­legt að fram­boð hans verði sjálf­stætt, þe. ekki undir merkjum Sam­ein­aðs Rúss­lands, stjórn­mála­flokks­ins sem stjórnar bæði fram­kvæmda­valdi og lög­gjaf­ar­valdi í Rúss­landi. Sjálf­stætt fram­boð muni hjálpa hinum vin­sæla leið­toga í for­seta­kjör­inu.

[adspot]

Pútín hefur bæði gengt emb­ætti for­seta og for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands síðan árið 2000. Frétta­skýrendur telja lík­leg­ast að Pútín bjóði sig á end­anum fram og vinni. Það yrði fjórða kjör­tíma­bil hans sem for­seta.

Kosn­ingum í Rúss­landi er yfir­leitt stjórnað vand­lega af stjórn­völdum í Kreml. Strangar reglur eru um hverjir fá að vera í kjöri og aðgengi að fjöl­miðlum er skert. Þá er ekki sjálf­sagt mál að fá að reka kosn­inga­bar­áttu án inn­grips frá ráð­andi stjórn­völdum.

Kjör­stjórn í Rúss­landi hefur sagt að aðal stjórn­ar­and­stæð­ingnum í Rúss­landi, Aleksei Navalny, muni ekki vera leyft að gefa kost á sér eftir að hann var ákærður fyrir fjár­drátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár