Verðlagsnefnd búvara hækkaði lágmarksverð til bænda og heildsöluverð mjólkur og afurða frá 12. maí, með vísan til hærri launa og aukins orku- og dreifingarkostnaðar.
Verðlagsnefnd búvara hefur ákveðið hækkun á bæði lágmarksverði til bænda og heildsöluverði á mjólk og mjólkurvörum. Ákvörðunin var tekin á föstudag en breytingin tekur gildi í dag, 12. maí.
Lágmarksverð á 1. flokks mjólk hækkar um 1,90 prósent, eða úr 136,93 krónum í 139,53 krónur á lítra. Samhliða hækkar heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum um 1,96 prósent.
Að sögn nefndarinnar byggir hækkunin á auknum framleiðslukostnaði frá síðustu ákvörðun í desember á síðasta ári. Þar vegur hækkun launavísitölu þyngst og skýrir um 75 prósent af hækkun grunnkostnaðar kúabúa. Einnig …
Ýttu á + við höfund, fréttamál eða greinaröð til að fylgja því og fá tölvupóst þegar eitthvað nýtt kemur, einn á dag í mesta lagi. Því sem þú fylgir stjórnarðu á Minni síðu.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir