Bjarni segir fjölmiðla ekki sinna aðhaldshlutverki sínu

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra segir vert að skoða laga- og skattaum­hverfi fjöl­miðla til að treysta umgjörð þeirra. Hans upp­lifun sé að fjöl­miðlar sinni ekki aðhalds­hlut­verki sínu.

Bjarni Bendiktsson, fjármálaráðherra.
Bjarni Bendikts­son, fjár­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra segir ástæðu til að velta því fyrir sér hvort ekki sé hægt að treysta betur umgjörð fjöl­miðla á land­inu með breyt­ingum á lagaum­hverfi og jafn­vel skattaum­hverfi þeirra. Þetta kom fram í svari Bjarna við fyr­ir­spurn Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns VG, á þingi í morgun.

Katrín spurði Bjarna þar út í ummæli sem hann við­hafði um fjöl­miðla á Facebook-síðu sinni í gær­kvöldi. Eins og Kjarninn greindi frá í morgun sagði Bjarni það undr­un­ar­efni hve margir fjöl­miðlar á Íslandi virð­ist starfa án nokk­urrar sjá­an­legrar rit­stjórn­ar­stefnu. „Hún ger­ist æ sterk­ari til­finn­ingin að vegna mann­eklu og fjár­skorts séu við­kom­andi miðlar orðnir lítið annað en skel, umgjörð um starf­semi þar sem hver fer fram á eigin for­send­um. Engin stefna, mark­mið eða skila­boð og þar með nán­ast eng­inn til­gang­ur, annar en sá að vera til staðar fyrir þá sem þar vinna. Þeir skipt­ast síðan á að grípa gjall­ar­hornið sem fjöl­mið­ill­inn er orð­inn fyrir þá og dæla út skoð­unum yfir sam­fé­lag­ið. Ein í dag - önnur á morg­un. Borið út frítt. Hvers vegna ekki bara að opna Face­book­síðu og leyfa öllum að skrifa á vegg­inn?“ skrif­aði Bjarni.

„Þetta eru ansi þung orð hjá for­manni stærsta stjórn­mála­flokks lands­ins, ekki síst í ljósi þeirrar stöðu sem fjöl­miðlar á Íslandi og ann­ars staðar í hinum vest­ræna heimi eiga í á tímum tækni­breyt­inga og sam­fé­lags­miðla, þar sem tekju­stofnar hefð­bund­inna fjöl­miðla að þjóna sínu hlut­verki sem er að þjóna almenn­ingi og gera almenn­ingi ljóst, að gera grein á stað­festum upp­lýs­ingum og öðru því efni sem flýtur um sam­fé­lags­miðla, til dæmis frá okkur stjórn­mála­mönnum sem öll höldum úti okkar Facebook-síðum,“ sagði Katrín í morgun. Hún sagði ábyrgð fylgja orðum, ekki síst í ljósi þess að Ísland er eina Norð­ur­landa­þjóðin sem er ekki á topp tíu lista yfir fjöl­miðla­frelsi í heim­inum.

Bjarni sagði alveg ástæðu til að velta því fyrir sér „hvort það kunni ekki að vera svo komið út af tækni­breyt­ingum og öðru sem að hefur gert rekstur fjöl­miðla­fyr­ir­tækja í land­inu, hefur gert þeim erfitt fyrir fjöl­miðla­fyr­ir­tækj­unum að spyrja sig hvort það sé eitt­hvað í ytri umgjörð­inni, í lagaum­hverf­inu, skattaum­hverf­inu jafn­vel, sem við getum gert til að treysta betur umgjörð fjöl­miðla á land­inu og þar með þann mik­il­væga til­gang sem fjöl­miðlar hafa.“ Hann sagði að honum væri samt fyr­ir­munað að skilja hvers vegna Katrínu væri svo mikið niðri fyrir út af „einni léttri Facebook-færslu.“ Hann hafi ein­fald­lega verið að velta því upp að honum þætti skorta skýra rit­stjórn­ar­stefnu á fjöl­miðlum. Þetta væri bara hug­renn­ing um stöðu fjöl­miðla og „skort á öfl­ugum, sterkum fjöl­miðlum með skýr skila­boð þar sem er ein­hver þráður frá degi til dags.“

Katrín spurði þá hvaða aðgerðir væri hægt að ráð­ast í, og sagði það miklu fremur eiga að vera umræðu­efnið. Ef fólk hefði áhyggjur af stöðu fjöl­miðla væri hægt að ræða það með upp­byggi­legum hætti. „Það er þessi rík­is­stjórn sem jók hlut Rík­is­út­varps­ins á aug­lýs­inga­mark­aði, þvert á stefnu sem hafði verið mörkuð á fyrra kjör­tíma­bili.“ Bjarni viðr­aði þá skoðun sína að það ætti bara að vera ein póli­tísk skoðun á hverjum fjöl­miðli.

Þessu vís­aði Bjarni á bug og sagði Katrínu vera að leggja sér orð í munn. „Menn geta alveg verið í fjöl­miðla­rekstri á Íslandi mín vegna og skipt um skoðun á hverjum degi og dælt út hvaða dellu sem er. Bara gjörið svo vel. Þá verður það mín upp­lifun á við­kom­andi fjöl­miðli að hann sé ekki mark­verður, sé ekk­ert mark á því tak­andi sem þaðan streymir,“ sagði hann.

Þá sagði hann þau Katrínu greini­lega vera sam­mála um að fjöl­miðlaum­hverfið væri erfitt og þar væru miklir veik­leikar. Það væri hans upp­lifun að fjöl­miðlar á Íslandi ræktu ekki aðhalds­hlut­verk sitt.

Hér má sjá sam­skipti þeirra Katrínar og Bjarna um fjöl­miðla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár