Þrátt fyrir allt þokast atvinnumálin í rétta átt

Á und­an­förnum ára­tug hefur mikið end­ur­reisn­ar­starf átt sér stað í alþjóða­hag­kerf­inu. Þó skandalar, deilur og yfir­lýs­inga­gleði stjórn­mála­manna steli fyr­ir­sögnum, þá hefur efna­hags­þróun verið jákvæð víða í heim­inum á und­an­förnum árum.

Tæpur ára­tugur er nú síðan hrika­legar aðstæður sköp­uð­ust í heims­bú­skapnum, og versta fjár­málakreppa frá Krepp­unni miklu á þriðja ára­tug síð­ustu aldar, skall á.

Van­traust skap­að­ist á fjár­mála­mörk­uðum, hús­næð­is­verð féll og atvinnu­leysi jókst mikið. Svo til alls staðar í heim­inum versnuðu atvinnu­horfur og nýr og alvar­legri veru­leiki blasti við.

Með for­dæma­lausum stuðn­ings­að­gerðum seðla­banka og rík­is­sjóða má segja að hörm­ungum hafi verið afstýrt. Ben Bernanke, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri Banda­ríkj­anna, segir í bók sinni, The Courage to Act, sem kom út árið 2015, að innan við sól­ar­hring hafi munað á því, að algör ringul­reið hefði skap­ast á mörk­uðum.

Segir hann í bók­inni að atvinnu­leysi í Banda­ríkj­unum hefði þá getað rokið upp í 30 til 40 pró­sent, eins og það var í Krepp­unni miklu, með fjölda­gjald­þrotum og hrika­legum aðstæðum.

Uppgangur

Á þessum tæpa ára­tug sem lið­inn er frá atburð­unum sem leiddu til djúprar fjár­málakreppu, hefur efna­hags­legur upp­gangur verið stöð­ugur á flestum stærstu mark­aðs­svæðum heims­ins. Ekki síst í Banda­ríkj­unum og Evrópu. Óhætt er að segja að mikið umrót hafi verið í stjórn­málum og fjöl­miðlum á þessum tíma, ekki síst með hraðri útbreiðslu sam­fé­lags­miðla.

Hægt er að skrifa mikið um þetta tíma­bil, og út frá ýmsum hliðum. En sé litið til eins þáttar sér­stak­lega, atvinnu­leysis, þá hafa orðið miklar fram­farir á síð­ustu árum.

Mest fór atvinnu­leysið upp fyrir 10 pró­sent í Banda­ríkj­unum, 2010, en mæld­ist nú í lok júlí, 3,9 pró­sent. Það er minnsta atvinnu­leysi sem mælst hefur í Banda­ríkj­unum í meira en fjóra ára­tugi. Sé litið til pró­sentu­talna hefur atvinnu­leysi á þessum tíma þró­ast með svip­uðum hætti á Íslandi. Árið 2010 fór það hæst í rúm­lega 10 pró­sent, en það mælist nú um 3 pró­sent.

Í Evrópu hefur mikið atvinnu­leysi lengi verið sam­fé­lags­mein, einkum í Suður-Evrópu. Á und­an­förnum árum hefur staðan þó batnað nokkuð.

Í Evr­ópu­sam­band­ríkjum er með­al­talsat­vinnu­leysi nú 7,1 pró­sent. Árið 2013 var það mest, sé litið til þró­unar á und­an­förnum ára­tug, en það fór þá yfir 12 pró­sent. Atvinnu­leysið hefur verið einna mest á Spáni en það er nú 16,1 pró­sent, en fór hæst yfir 25 pró­sent árið 2013.

Sé litið til ein­staka ald­urs­hópa þá er atvinnu­leysið mest hjá ungu fólki, undir 35 ára aldri, í Suður-Evrópu. Á Spáni er atvinnu­leysi hjá þessum hópi upp undir 40 pró­sent og á Ítalíu yfir 30 pró­sent, en atvinnu­leysi mælist þar nú 10,9 pró­sent.

Í Bret­landi hefur atvinnu­leysið einnig haldið áfram að drag­ast saman, þrátt fyrir harðar deilur í breska þing­inu um Brexit og fleiri mál. Það mælist nú um 4 pró­sent en mest fór það yfir 8 pró­sent árið 2012.

Hvað gerist þegar Seðlabankar hætta örvunaraðgerðum?

Eins og vel er dregið fram í fyrr­nefndri bók Bernanke, þá hafa seðla­bankar í heim­inum verið í lyk­il­hlut­verki þegar kemur að því örvar hag­kerfi heims­ins á und­an­förnum ára­tug. Þeir hafa liðkað fyrir fjár­magni í fjár­mála­kerf­inu og dælt pen­ingum út á mark­aði, með skulda­bréfa­kaupum, bæði hjá fyr­ir­tækjum og þjóð­ríkjum. Þetta hefur leitt til þess að hag­vöxtur hefur örvast og fleiri störf hafa skap­ast.

Seðla­banki Evrópu hefur til­kynnt um að hann muni hætta með áætlun sína um kaup á skulda­bréfum (magn­bund­inni íhlutun) í des­em­ber, en í ein­földu máli sagt hefur sú áætlun miðað að því að örva hag­vöxt og liðka fyrir ódýru fjár­magni á mörk­uðum, til að koma í veg fyrir frek­ari erf­ið­leika, bæði efna­hags­lega og félags­lega. Mario Draghi, seðla­banka­stjóri, hefur sagt að bank­inn muni þó fara að öllu með gát og fylgj­ast vel með þróun mála.

Það er til marks um umfang þess­ara örv­un­ar­að­gerða, að það er um tvö þús­und millj­arðar evra, eða sem nemur um 246 þús­und millj­örðum króna, miðað við núver­andi gengi krónu gagn­vart evru.

Svipað hefur verið upp á ten­ingnum í Banda­ríkj­unum, en vaxta­hækkana­ferli er þar hafið. Einn þeirra sem hefur varað við því, að fjár­festar séu ekki nægi­lega á varð­bergi þegar kemur að minnk­andi áhrifum seðla­banka­að­gerða á mörk­uðum, er Jamie Dimon, banka­stjóri JP Morgan Chase. Hann segir að framundan geti verið stórar ákvarð­anir hjá seðla­bönkum með hækk­andi vaxta­stigi og verð­bólgu. Erfitt sé að segja til um hver áhrifin verði á mörk­uðum, en aug­ljóst sé að þau verði mikil.

Í bréfi sem Dimon skrif­aði til hlut­hafa, í lok árs í fyrra, minnt­ist hann sér­stak­lega á hlut­verk seðla­banka á mörk­uðum á áhrif þeirra á end­ur­reisn­ar­tím­anum á und­an­förnum árum. Sagði hann fjár­festa ekki mega van­meta þessi áhrif.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár