Guðbjörg greiddi sér 3,25 milljarða í arð

Eigandi Ísfélags Vest­manna­eyja greiddi sér 3,25 millj­arða í arð í ár og 1,11 millj­arða í fyrra.

Húsnæði Ísfélags Vestmannaeyja
Húsnæði Ísfélags Vest­manna­eyja Mynd: Birgir Þór Harðarson

Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, meiri­hluta­eig­andi Ísfélags Vest­manna­eyja, greiddi sér rúmar 3,25 millj­arða króna í gegnum félag sitt ÍV fjár­fest­inga­fé­lag ehf. Þetta kemur fram í nýjum árs­reikn­ingi ÍV fjár­fest­inga­fé­lags, en Frétta­blaðið greindi fyrst frá mál­inu fyrr í dag.

Samkvæmt árs­reikn­ingi ÍV, sem á tæpan 90% hlut í Ísfélagi Vest­manna­eyja, auk hlutar í HB Granda og Símanum, skil­aði félagið rúm­lega 630 millj­óna króna hagn­aði með eigið fé upp a 13,6 millj­arða króna. Hagnaður félags­ins árið 2016 var öllu hærri, eða um 2,59 millj­arðar, en þá greiddi greiddi félagið 1,11 millj­arð í arð. ÍV fjár­fest­inga­fé­lag er í eigu fjár­fest­inga­fé­lags­ins Fram ehf. sem er að mestu leyti í eigu Guð­bjargar.[adspot]

Kjarninn hefur áður fjallað um umdeildt frum­varp um lækkun veiði­gjalda, en Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins, sagði afkomu útgerða vera komna að þol­mörkum.

[links]Hins vegar, þrátt fyrir versn­andi afkomu, er arð­semi grein­ar­innar góð og var hagn­aður sjáv­ar­út­vegs­fé­laga á árinu 2016 um 55 millj­arðar króna. Sam­an­lagðar arð­greiðslur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja frá byrjun árs 2010 og út árið 2016 voru 65,8 millj­arðar króna. Eigið fé þeirra frá hruni og til loka árs 2016 batn­aði um 300 millj­arða króna. Því hefur hagur sjáv­ar­út­vegs­ins vænkast um 365,8 millj­arða króna á örfáum árum.

Þrátt fyrir háar arð­greiðslur Guð­bjargar var hún neð­ar­lega á list­anum yfir ein­stak­linga í sjáv­ar­út­vegi og land­bún­aði í síð­asta Tekju­blaði DV, en þar var hún með 481 þús­und í mán­að­ar­laun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár