Tíu staðreyndir um íslenskan sjávarútveg og veiðigjaldið

Umræðu um umdeilt frum­varp um veiði­gjöld var í vik­unni frestað fram á næsta haust. Lækka átti veiði­gjöld um 1,7 millj­arð alls í rík­is­kass­ann. Kjarninn fer yfir stað­reyndri um íslenskan sjáv­ar­út­veg, hið umdeilda frum­varp og mála­miðl­un­ina sem náð­ist.

1.

Ísland er meðal fremstu fisk­veiði­þjóða heims. Sjáv­ar­út­veg­ur­inn skilar næst mest útflutn­ings­verð­mætum inn í þjóð­ar­búið og er rót­grót­inn þáttur í íslensku atvinnu­lífi og menn­ingu. Kreppt hefur að grein­inni vegna styrk­ingar krón­unnar um tugi pró­senta á síð­ast­liðnum árum.

2.

Þrátt fyrir nei­kvæð áhrif þess­arar þró­unar á rekstr­ar­nið­ur­stöðu sjáv­ar­út­veg­ar­ins er arð­semi grein­ar­innar góð og var hagn­aður sjáv­ar­út­vegs­fé­laga á árinu 2016 um 55 millj­arðar króna.

3.

Sam­an­lagðar arð­greiðslur sjá­v­­­­­ar­út­­­­­­­vegs­­­­fyr­ir­tækja frá byrjun árs 2010 og út árið 2016 voru 65,8 millj­­­­arðar króna. Eigið fé þeirra frá hruni og til loka árs 2016 batn­aði um 300 millj­­­­arða króna. Því hefur hagur sjá­v­­­­­ar­út­­­­­­­veg­­­­ar­ins vænkast um 365,8 millj­­­­arða króna á örfáum árum.

4.

Þennan við­snún­ing hafa eig­endur útgerð­anna meðal ann­ars nýtt í að greiða hratt niður skuldir og í að auka fjár­fest­ingu í geir­an­um. Skuldir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja voru 319 millj­arðar króna í lok árs 2016 og höfðu þá lækkað um 175 millj­arða króna frá hruni. Fjár­fest­ing í var­an­legum rekstr­ar­fjár­mun­um, sem eru til að mynda ný skip, var 22 millj­arðar króna á árinu 2016. Hún var um 25 millj­arðar króna að með­al­tali árin á und­an.

5.

Samkvæmt lögum um veiði­gjald leggur Fiski­stofa veiði­gjald á og renna tekjur af því í rík­is­sjóð. Skráðir eig­endur íslenskra fiski­skipa sem stunda veiðar á nytja­stofnum sjávar bera gjaldið. Veiði­gjald eru lagt á í þeim til­gangi að mæta kostn­aði rík­is­ins við rann­sóknir, stjórn, eft­ir­lit og umsjón með fisk­veiðum og fisk­vinnslu og tryggja þjóð­inni í heild hlut­deild í þeim arði sem nýt­ing sjáv­ar­auð­linda skapar. Reikni­stofn veiði­gjalds er hlut­fall af hreinum hagn­aði í fisk­veiðum og hluta af hagn­aði fisk­vinnslu.

6.

Hæstu veið­i­­­­gjöldin greiddi sjá­v­­­­ar­út­­­­­veg­­­ur­inn vegna fisk­veið­i­­ár­s­ins 2012/2013, en þá greiddi útgerðin 12,8 millj­­­arða króna í rík­­­is­­­sjóð vegna veið­i­­gjalda. Árin þar á eftir lækk­­­uðu gjöldin skref fyrir skref niður í 4,8 millj­­­arða árið 2016. Inn­heimt veiði­gjöld árs­ins 2017 voru 8,4 millj­arðar króna. Frum­varp um end­ur­út­reikn­ing gerir ráð fyrir því að inn­heimt veiði­gjöld árs­ins 2018 verði 8,6 millj­arðar króna, en að teknu til­liti til sér­staks afsláttar fyrir minni sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki verða þau 8,3 millj­arðar króna. Í gild­andi fjár­lögum var gert ráð fyrir því að veiði­gjöld myndu skila tíu millj­örðum krónum í rík­is­kass­ann í ár, og byggir það á því að álögð veiði­gjöld vegna fisk­veiði­árs­ins 2017/2018 voru áætluð 10,8 millj­arðar króna. Þorri þeirra átti því að skila sér til rík­is­ins á þessu alm­an­aks­ári.

7.

Í frum­varpi meiri­hluta atvinnu­vega­nefndar um breyt­ingar á veiði­gjöldum var lagt til að heim­ild til álagn­ingar veiði­gjalda yrði fram­lengd, en hún hefði ellegar runnið út 31. ágúst. Einnig var kveðið á um almenna lækkun veiði­gjald­anna. Þannig skyldu veiði­gjöldin mið­ast við afkomu sjáv­ar­út­vegs­ins árið á undan í stað þriggja ára aftur í tím­ann eins og verið hefur. Þá fól frum­varpið einnig í sér sér­tæka lækkun veiði­gjalda til lít­illa útgerða með afsláttum til lít­illa og með­al­stórra útgerða.

8.

Hefði frum­varp þetta orðið að lögum myndi veiði­gjaldið sem útgerðir greiða til rík­is­ins í ár, að teknu til­liti til afslátt­ar, lækka um 1,7 millj­arðar króna og orðið 8,3 millj­arðar króna. Það er svipað og inn­heimt veiði­gjöld voru árið 2017, þegar þau voru 8,4 millj­arðar króna. Lækk­un­ina átti að fram­kvæma þannig að stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækin fá mestu veiði­gjalda­lækk­un­ina í krónum talið. Um er að ræða krónu­tölu­lækkun á allan veiddan afla en auk þess er svo­kall­aður per­sónu­af­sláttur útgerða hækk­aður á minni útgerð­ir.

9.

Styrinn stendur fyrst og síð­ast um stór­út­gerð­irnar og raun­veru­lega stöðu grein­ar­innar. Ljóst er að staða stærstu fyr­ir­tækj­anna er gríð­ar­lega sterk, á meðan sum þeirra minni berj­ast í bökkum. Þá er einnig ágrein­ingur um hvort frek­ari sam­þjöppun í grein­inni er ákjós­an­leg og hvort og þá hvernig frek­ari nýliðun sem og byggða­sjón­ar­mið eigi að vega við ákvarð­ana­töku líkt og álagn­ingu veiði­gjald­anna. Í grein­ar­gerð með frum­varpi meiri­hluta atvinnu­vega­nefndar segir meðal ann­ars: „Sam­an­tekið má segja að gæta verði þess að veiði­gjald verði sann­gjarnt en í því felst ekki síst að líta eftir fremsta megni til bestu upp­lýs­inga hverju sinni um rekstr­ar­af­komu og greiðslu­getu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja.“ Spurn­ingin er hvort það mark­mið tak­ist með umræddu frum­varpi.

10.

Á fimmtu­dag náð­ist sam­komu­lag á þing­inu um að draga frum­varpið til baka. Þess í stað var lagt fram nýtt frum­varp þar sem veiði­gjöldin verða „fram­lengd“ óbreytt. Frum­varpið er aftur lagt fram af atvinnu­vega­nefnd. Lögin munu falla úr gildi um ára­mótin í stað lok sum­ars en gert er ráð fyrir að sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra mæli fyrir nýju frum­varpi um heild­ar­end­ur­skoðun laga um veiði­gjald næsta haust. Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að gróft áætl­aðar tekjur rík­i­s­jóðs af veiði­gjaldi tíma­bils­ins 1. sept­em­ber til árs­loka 2018 muni nema 3,6 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár