Nýtt hafrannsóknaskip mun brenna milljón lítrum af olíu á ári

Þrátt fyrir að ein af aðgerð­unum í aðgerða­á­ætlun íslenskra stjórn­valda í lofts­lags­málum til árs­ins 2030 sé orku­skipti skipa á vegum rík­is­ins er gert ráð fyrir að nýtt haf­rann­sókna­skip muni ganga að mestu fyrir jarð­efna­elds­neyti.

Nýtt rannsóknaskip mun taka við af Bjarna Sæmundssyni sem sést hér við bryggju fyrir utan höfuðstöðvar Hafrannsóknastofnunar í Hafnarfirði.
Nýtt rann­sókna­skip mun taka við af Bjarna Sæmunds­syni sem sést hér við bryggju fyrir utan höf­uð­stöðvar Haf­rann­sókna­stofn­unar í Hafn­ar­firði. Mynd: Hafrannsóknastofnun/Sigurborg Jóhannsdóttir

Gert er ráð fyrir að nýtt haf­rann­sókna­skip sem nú stendur til að smíða muni brenna á bil­inu 900 þús­und til milljón lítrum af olíu á ári hverju. Þetta kemur fram í svari atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytis við fyr­ir­spurn Kjarnans um skipið og smíði þess. Útboðs­ferli á smíði skips­ins var kynnt á vef stjórn­ar­ráðs­ins í síð­asta mán­uði en þar segir meðal ann­ars að við hönnun skips­ins hafi verið horft til ýmissa leiða til að draga úr notkun jarð­efna­elds­neytis.

Ein af aðgerðum stjórn­valda til að stuðla að sam­drætti í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda til árs­ins 2030 eru orku­skipti í skipum á vegum rík­is­ins. Aðgerðin, sem finna má í aðgerða­á­ætlun stjórn­valda frá því í júní í fyrra, felur í sér að draga úr notkun jarð­efna­elds­neytis í skipum á vegum rík­is­ins. Minnst er á smíði nýs haf­rann­sókna­skips í kafl­anum þar sem þessi aðgerð er tekin fyrir og þar tekið fram að kann­aðir hafi verið hvaða orku­gjafar aðrir en jarð­efna­elds­neyti komi til greina fyrir skipið.

„Auk þess er gert ráð fyrir að skipið verði búið vélum sem geta auk jarð­efna­elds­neytis og líf­dís­ils mögu­lega nýtt met­anól sem orku­gjafa. Það ræðst þó af vinnu við þróun fjór­geng­is­véla af þeirri stærð sem skipið þarf hvort unnt verður að búa það slíkri vél,“ segir í kafl­anum um þessa til­teknu aðgerð.

Sú aðgerð að ráð­ast í orku­skipti skipa á vegum rík­is­ins teng­ist einnig aðgerðum í rík­is­rekstri sem settar eru fram í aðgerða­á­ætl­un­inni. Meðal aðgerða í rík­is­rekstri er aðgerð sem felur í sér að tekið verði til­lit til umhverf­is­sjón­ar­miða við öll inn­kaup rík­is­ins, aðgerð sem felur í sér að loft­st­lags­á­hrif laga­frum­varpa verði metin og að stjórn­ar­ráðið verði að fyr­ir­mynd í lofts­lags­málum með sér­stakri lofts­lags­stefnu, svo fátt eitt sé nefnt.

Rafmagn úr landi verði sex til átta prósent orkunotkunar

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið til þess að spyrja um nýsmíð­ina og hvernig útbún­aður skips­ins rímar við þær aðgerðir sem settar eru fram í aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum. Ráðu­neytið er í for­svari fyrir þá aðgerð sem snýr að orku­skiptum skipa rík­is­ins, Haf­rann­sókna­stofnun heyrir undir ráðu­neytið auk þess sem það fer með orku­mál.

„Rétt er að taka fram að skipið er eins umhverf­is­vænt og tækni­lega er mögu­legt í dag,“ eru upp­hafs­orð svars­ins, enda geti rann­sókna­skip sem þarf að hafa allt að 30 daga úti­vist á sjó ekki ein­vörð­ungu gengið fyrir öðrum orku­gjöfum en jarð­efna­elds­neyti. Skipið muni engu að síður standa mjög fram­ar­lega hvað umhverf­is­mál varðar, segir í svar­inu, „en flest ef ekki öll sam­bæri­leg haf­rann­sókna­skip ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti.“

Meðal þeirra leiða sem farnar verða til að spara orku er að nota LED tækni til lýs­ingar um borð. Spil­bún­aður skips­ins verður raf­drif­inn og afgangsorka frá kæli­vatni aðal­véla skips­ins notuð til upp­hit­unar. Í höfn verður skipið tengt við raf­magn í landi og gert er ráð fyrir að settir verði upp varma­skiptar í heima­höfn skips­ins þannig að það verði hitað með vatni frá hita­veitu. Talið er að orku­notkun skips­ins í höfn muni nema um 300 til 400 þús­und kílóvatt­stundum á ári sem er um sex til átta pró­sent af heildar orku­notkun skips­ins.

Áætla að skipið endist í 30 ár

Heild­ar­orku­notkun skips­ins á ári er hins vegar talin verða um 4,5 millj­ónir kílóvatt­stunda. Skipið mun því þurfa að brenna um 900 þús­und til milljón lítrum af olíu á ári, en um 80 pró­sent af orku­notkun skips­ins fer í að drífa það áfram. Hin 20 pró­sentin af orku­notk­un­inni fara í ýmsa notkun innan skips­ins sem áður hefur verið nefnd; spil­búnað, upp­hitun, lýs­ingu og annað slíkt.

Hvernig slíkt sam­ræm­ist áherslum rík­is­stjórn­ar­innar í umhverf­is­málum og við aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum svarar ráðu­neytið: „Eins og fram kemur í svörum hér að framan var leitað allra leiða til að draga úr notkun jarð­efna­elds­neytis við hönnun skips­ins. Áfram verður unnið með mögu­leik­ana á því að skipið verði drifið áfram á líf­dísil eða met­anóli, verði hent­ugar vélar komnar í fram­leiðslu á smíða­tím­anum. Því hefur verið leitað allra mögu­legra leiða við hönn­un­ina til að skipið verði sem vist­væn­ast, í sam­ræmi við áherslur stjórn­valda í umhverf­is­málum.“

Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur einnig fram að lang stærstur hluti þess elds­neytis sem skip Haf­rann­sókna­stofn­unar nota sé jarð­efna­elds­neyti. Svar við spurn­ing­unni um hversu hátt hlut­fallið sé liggur ekki ljóst fyrir en skip Haf­rann­sókna­stofn­unar nota um 1,6 millj­ónir lítra af jarð­efna­elds­neyti á ári. Þegar skipin liggja við land­festar eru þau alltaf tengd við raf­magn sem ráðu­neytið segir að spari umtals­verða notkun á óvist­vænum orku­gjöfum.

Áætlaður end­ing­ar­tími nýja skips­ins er allt að 30 ár, svo ljóst er að skipa­floti Haf­rann­sókna­stofn­unar mun halda áfram að brenna umtals­verðu magni af jarð­efna­elds­neyti, nema ef ske kynni að vélum hins nýja skips verði skipt út.

Hafa haft vakandi auga fyrir metanólvélum

Kjarninn spurði auk þess um hvort mat lægi fyrir um kostnað þess að smíða skip sem ekki gengi fyrir jarð­efna­elds­neyti, skip sem gengi til að mynda fyrir met­anóli. Samkvæmt svari ráðu­neyt­is­ins liggur slíkt mat ekki fyrir af þeirri ein­földu ástæðu að það sé ekki tækni­lega fram­kvæm­an­legt að smíða rann­sókna­skip sem þarf að vera úti á sjó í 30 daga í senn sem gengur alfarið fyrir öðrum orku­gjöfum en jarð­efna­elds­neyti, líkt og áður hefur komið fram.

„Þar sem met­anól er sér­stak­lega nefnt í fyr­ir­spurn­inni þá er rétt að taka það fram að Haf­rann­sókna­stofnun og smíða­nefnd skips­ins hafa verið sér­stak­lega vak­andi fyrir þeim mögu­leika og vaktað reglu­lega áform helstu véla­fram­leið­enda varð­andi smíði á vélum til brennslu met­anóls. Ennþá hefur eng­inn af helstu véla­fram­leið­endum getað gefið ákveðin svör um hvort eða hvenær fjór­gengis met­anól vél verði til­búin til fram­leiðslu,“ segir í svari atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hafrannsóknastofnun

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár