Verða kýrnar horfnar eftir tvo til þrjá áratugi?

Í nýrri skýrslu frá banda­rískri hug­veitu er því spáð að eftir til­tölu­lega fá ár verði naut­gripir að miklu leyti horfnir af yfir­borði jarðar. Gangi þetta eftir er um að ræða mestu bylt­ingu í mat­væla­fram­leiðslu heims­ins um mörg þús­und ára skeið.

Þeir sem leggja leið sína í mat­vöru­versl­anir kann­ast flestir við hinar svoköll­uðu kynn­ingar þar sem fyr­ir­tæki kynna ýmsar vörur. Til dæmis nýtt þvotta­efni eða „töfra­lausnir“ við heim­il­is­hrein­gern­ing­arnar. Algeng­ast er þó að verið sé að kynna mat­vörur af ýmsu tagi, stundum nýj­ungar en líka þekktar vörur. Oft er þetta kallað kynn­ing­ar­á­tak, ætlað til að auka við­skiptin.

Fyrir nokkru stóðu tveir starfs­menn banda­rísku hug­veit­unnar RethinkX fyrir kynn­ingu í stór­verslun í San Francisco. Þar var kynntur mozzarella ostur frá fyr­ir­tæk­inu New Culture. Mozzarella er mest selda osta­teg­und vest­an­hafs og neyt­endur geta valið á milli ótelj­andi vöru­merkja. Mozzarella ost­ur­inn sem þau Tony Seba og Catherine Tubb kynntu fyrir við­skipta­vinum versl­un­ar­innar var nákvæm­lega eins á bragðið og í útliti og hefð­bund­inn mozzarella ostur sem fram­leiddur er úr kúa­mjólk. En, það var hins­vegar einn afger­andi munur.

Ekki gerður úr mjólk

Osturinn sem þarna var verið að kynna var ekki gerður úr kúa­mjólk. Hann varð til í sér­stökum gerj­un­ar­tönkum New Culture. Gerj­un­ar­að­ferðin sem notuð er hefur lengi verið þekkt, meðal ann­ars notuð við fram­leiðslu á insúl­íni, sætu­efnum og vítamínum.

Líftæknin veldur byltingu

Sér­fræð­ingar RethinkX telja að á næstu árum muni líf­tæknin gera kleift að fram­leiða bæði mjólk­ur­prótein og kjöt­prótein í miklu magni og á ódýr­ari hátt en fram til þessa. Í skýrslu sér­fræð­ing­anna er full­yrt að árið 2030 kosti „fölsk“ mjólk­ur­prótein ein­ungis einn fimmta af verði mjólk­ur­próteins úr kúm og árið 2035 hafi verðið á því „falska“ lækkað niður í einn tíunda af verði mjólk­ur­próteins úr kúm.

Sér­fræð­ing­arnir spá því enn­fremur að árið 2030 hafi eft­ir­spurn eftir naut­gripa­hakki minnkað um 70 pró­sent og eft­ir­spurn eftir mjókur­af­urðum um 90 pró­sent. Það gildi líka um leður og kollagen efnið.

Árið 2035, segja sér­fræð­ingar RethinkX, verður hægt að taka til ann­arra nota 60 pró­sent þess lands sem í dag er notað til naut­gripa- og fóð­ur­fram­leiðslu. Í Banda­ríkj­unum svarar þetta til tveggja millj­óna fer­kíló­metra eða 19 sinnum stærð Íslands. Verð á hefð­bundnu rækt­un­ar­landi mun lækka veru­lega sem hefur í för með sér mögu­leika á stór­auknu land­rými til trjá­ræktar. Inn­yfla­gerjun naut­gripa veldur umtals­verðri losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og sama gildir um mykj­una. Fækkun naut­gripa og jafn­framt aukin trjá­rækt hefði veru­lega jákvæð áhrif og myndi draga úr hlýnun and­rúms­lofts­ins.

Helm­ingur allra starfa við kjöt­fram­leiðslu og í mjólkur­iðn­aði verða horfin á næstu 10 til 12 árum, en í stað­inn mun störfum í „nýjum og breyttum“ mat­væla­iðn­aði fjölga álíka mikið.

Af hverju ætti fólk að kaupa „ekkikjöt og ekkimjólk“?

„Fyrir því eru einkum þrjár ástæður,“ segir Tony Seba. Í fyrsta lagi, og því sem mestu ræður, verða dýra­af­urð­irnar miklu dýr­ari. Í öðru lagi tíð­ar­and­inn, æ fleiri snúa baki við dýra­af­urðum og velja annan kost. Í þriðja lagi hlýnun and­rúms­lofts­ins sem áður var nefnd.

Er eitthvað að marka svona spár?

Þessari spurn­ingu er ekki auðsvarað. Ýmsir hafa gagn­rýnt skýrslu RethinkX og því sem þar er spáð, sumir segja hana bein­línis öfga­kennda. Skýrslu­höf­undar eru hins vegar engir nýgræð­ingar og aðal­höf­und­ur­inn Tony Seba er mjög þekktur á sínu sviði og hefur á und­an­förnum árum spáð ýmsu sem margir voru van­trú­aðir á, en hefur ræst.

Fyrir nokkrum árum spáði hann að ódýr sól­ar­raforka myndi að veru­legu leyti koma í stað jarð­gass, hann spáði líka árið 2014 að brátt kæmu á mark­að­inn raf­knúnir bílar sem ekið gætu mörg hund­ruð kíló­metra á hverri hleðslu. Enn­fremur að sala bíla með bensín og dísil­vélum færi minnk­andi frá og með árinu 2020 og að sjálf­keyr­andi bílar, án bíl­stjóra væru það sem koma skal.

Hvort spá hans, Catherine Tubb og sam­starfs­manna þeirra, varð­andi naut­grip­ina ræt­ist er úti­lokað að segja til um. Hitt er aug­ljóst, þeim sem ekki neyta dýra­af­urða fjölgar ört og mat­væla­fram­leið­endur og veit­inga­staðir reyna eftir bestu getu að mæta sívax­andi eft­ir­spurn. Sem dæmi um slíkt má nefna að 8. ágúst síð­ast­lið­inn birt­ist á mat­seðli um 8 þús­und sölu­staða skyndi­bita­keðj­unnar Burger King (af tæp­lega 17 þús­und) ný gerð ham­borg­ara. Sá heitir Impossi­ble burger, óhugs­andi borg­ari og hefur fengið góðar við­tökur. Uppi­staðan í þeim óhugs­andi er Soja­þykkni, kókos­hentu­olía, sól­blóma­olía og vatn. Fyrir til­tölu­lega fáum árum hefði Impossi­ble burger verið óhugs­andi á mat­seðli skyndi­bita­staðar, en þannig er það ekki lengur.

Verða þá engar kýr og engin naut?

Í blaða­við­tali vegna útkomu skýrsl­unnar sagði Tony Seba að naut­gripir yrðu áfram til. Til dæmis yrðu alltaf ein­hverjir sem myndu vilja kaupa „ekta“ nauta­kjöt en verðið myndi valda því að sá kaup­enda­hópur yrði til­tölu­lega lít­ill.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár