Utanríkisráðherra hótað lífláti

Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur gripið til örygg­is­ráð­staf­ana í kjöl­far líf­láts­hót­ana í garð Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar í tengslum við þriðja orku­pakk­ann.

Guðlaugur Þór Þórðarson
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son Mynd: Bára Huld Beck

Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur gripið til örygg­is­ráð­staf­ana í kjöl­far líf­láts­hót­ana í garð Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra í tengslum við þriðja orku­pakk­ann. Frá þessu greinir Frétta­blaðið í dag.

Utan­rík­is­ráð­herra segir í sam­tali við Frétta­blaðið að málið sé komið í far­veg hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra. „Maður er ýmsu vanur en í þessu til­felli er aug­ljóst hver er ásetn­ing­ur­inn með þess­ari svoköll­uðu fjöl­miðlaum­fjöllun,“ segir hann og vísar í frétt Frétta­tím­ans frá því í gær. „Hins vegar er okkur ráð­lagt að líf­láts­hót­anir beri að taka alvar­lega. Þær hót­anir sem mér hafa borist á sam­fé­lags­miðlum vegna þess­arar fréttar hafa þegar verið settar í far­veg hjá Rík­is­lög­reglu­stjóra.“

Rætt var um þriðja orku­pakk­ann á Alþingi í gær og í fyrra­dag en um svo­kall­aðan þing­stubb var að ræða. Atkvæða­greiðsla vegna máls­ins mun fara fram næst­kom­andi mánu­dag.

„Skylda okkar að hreinsa óværuna“

Vef­mið­ill­inn Frétta­tím­inn birti í gær frétt sem ber fyr­ir­sögn­ina „Skilar orku­pakki 3,625 millj­ónum í vasa utan­rík­is­ráð­herra?“ Í umræðum á sam­fé­lags­miðlum í tengslum við frétt­ina eru dæmi þar sem ráð­herra er hótað líf­láti, sam­kvæmt Frétta­blað­inu. Í Facebook-hópnum Orkan okkar: Bar­áttu­hópur er til að mynda skrifað: „Kjöldrögum hann“, og „læka“ þrír við athuga­semd­ina.

Frétta­blaðið hefur einnig undir höndum skjá­skot af athuga­semd við færslu vegna frétt­ar­innar á Facebook en í henni segir: „Hið óhjá­kvæmi­lega er að verði þessi svik framin, tökum við á þessu pakki með þeim öfl­ug­ustu aðferðum sem við höfum ... það er skylda okkar að hreinsa óværuna.“ Þar á eftir kemur listi: Hamar, naglar, timbur, gæð­a­r­eipi og böð­ull. Mynd af heng­ing­ar­reipi fylgir með athuga­semd­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár