Valdið að verki í réttarhöldunum yfir Julian Assange

Stundin fylgdist með réttar­höldunum yfir Julian Assange, sem Banda­ríkin hafa hundelt vegna uppljóstrana hans á leyndar­málum ríkisins.

Vill frelsa manninn sinn
Vill frelsa mann­inn sinn Stela Moris, kona Julians Assange, var þreytu­leg eftir tveggja daga rétt­ar­höld. Mynd: AFP

Árið 2010 birti RÚV myndband sem samtökin WikiLeaks komust yfir og láku til fjölmiðla. Mynd­bandið sýnir bandaríska hermenn í árásar­þyrlum skjóta óvopnaða borgara í Bagdad í júní 2007. Síðan er ráðist á saklaust fólk í bíl sem reyndi að hjálpa þeim sem höfðu særst í árásinni. Meðal þeirra ellefu sem féllu í árásinni voru blaða­maður og ljós­myndari frá Reuters-frétta­stofunni. Mynd­bandið var ekki það eina sem WikiLeaks lak til fjölmiðla, en alls birtu samtökin um 750 þúsund af öðrum skjölum sem innihéldu bandarísk hernaðar­leyndarmál, meðal annars gögn sem sýndu fram á frekari stríðs­glæpi og pyntingar. Þetta var bara byrjunin hjá WikiLeaks, en samtökin hafa lekið milljónum skjala frá stofnun þeirra og hafa allir helstu fjöl­miðlar heimsins birt fréttir úr þessum sömu skjölum.

Eltur og fangelsaður

Stofnandi WikiLeaks er Julian Assange, en hann hefur verið hundeltur af bandarískum yfir­völdum eftir að hafa lekið gögnum sem hafa niðurlægt bandarísk yfirvöld og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár