Áslaug Hulda vill verða næsti oddviti Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ

Nýr odd­viti mun leið Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Garðabæ í kosn­ing­unum í vor. Um er að ræða eitt sterkasta vígi flokks­ins, en hann fékk 62 pró­sent atkvæða í sveit­ar­fé­lag­inu árið 2018.

Áslaug Hulda Jóns­dóttir, bæj­ar­full­trúi og for­maður bæj­ar­ráðs Garða­bæjar, hefur til­kynnt að hún bjóði sig fram til að leiða Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Garðabæ í próf­kjöri sem haldið verður fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í vor.

Hún hefur setið í bæj­ar­stjórn Garða­bæjar frá árinu 2010 og hefur skipað fyrsta sæti á fram­boðs­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ, en núver­andi bæj­ar­stjóri flokks­ins þar skip­aði bar­áttu­sæti. Áslaug Hulda hefur verið í eig­enda­hópi plast­end­ur­vinnslu­fyr­ir­tæk­is­ins Pure North Recycling og setið í stjórn Gildis, líf­eyr­is­sjóðs. Áður var hún fram­kvæmda­stjóri Hjalla­stefn­unnar og aðstoð­ar­maður mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

[adspot]Hún bauð sig fram til rit­ara Sjálf­stæð­is­flokks­ins á flokks­ráðs­fundi árið 2019 en laut í lægra haldi fyrir Jóni Gunn­ars­syni.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 62 pró­sent atkvæða í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í Garðabæ.

Gunnar Ein­ars­son, bæj­ar­stjóri Garða­bæj­ar, til­kynnti bæj­ar­full­trúum sveit­ar­fé­lags­ins að hann muni hætta sem bæj­ar­stjóri og odd­viti meiri­hlut­ans í Garðabæ að loknu þessu kjör­tíma­bili. Gunnar hefur verið bæj­ar­stjóri í 17 ár og verður brátt 67 ára gam­all.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár