Barack Obama reynir að róa Sádi-Araba

Full­trúar kon­ungs­rík­is­ins Sádi-Arabíu eru sagðir hafa hótað banda­rískum stjórn­völdum við­skipta­legu tjóni, með skynd­isölu á eignum upp á 750 millj­arða Banda­ríkja­dala, ef frið­helgi rík­is­ins yrði felld niður. Obama reynir að stilla til friðar.

Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, fór í skyndi til Sádi-Arabíu í vik­unni til að eiga fundi með ráða­mönnum og ráð­gjöfum kon­ungs­rík­is­ins, með það að mark­aði að draga úr spennu milli ríkj­anna tveggja.

Sádi-Arabar eru sagðir hafa hótað banda­rískum stjórn­völdum því að skynd­iselja banda­rískar eignir, þar á meðal rík­is­skulda­bréf og eign­ar­hluti í stórum banda­rískum fyr­ir­tækjum, fyrir um 750 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 100 þús­und millj­örðum króna. Ástæðan er sú, að banda­rísk stjórn­völd eru að skoða að fella niður frið­helgi ráða­manna Sádi-Arabíu fyrir banda­rískum dóm­stólum, en hún byggir á lög­gjöf frá árinu 1976.

Lögin eru meðal lyk­il­for­sendna fyrir sterku og víð­tæku efna­hag­spóli­tísku sam­bandi Banda­ríkj­anna og Sádi-Arabíu um ára­tuga skeið.

Ástæðan fyrir því að Banda­ríkin íhuga nú að fella niður frið­helg­ina, eru upp­lýs­ingar sem fram hafa komið um tengsl árásanna 11. sept­em­ber 2001 á tví­bura­t­urn­anna í New York, sem urðu rúm­lega þrjú þús­und manns að bana. Aðstand­endur þeirra sem lét­ust hafa skipu­lega þrýst á yfir­völd um að birta öll gögn um rann­sókn á atburð­unum, en hluti þeirra hefur aldrei verið birtur opin­ber­lega.

Í Wall Street Journal í dag, kemur fram að Obama freisti þess að róa Sádi-Araba, og einnig miðla málum í hættu­lega stirðum sam­skiptum Sádi-Araba við ráða­menn í Íran.

Obama er sagður freista þess að styrkja sam­bandið við Sádi-Arabíu, og um leið reyna að miðla málum þegar kemur að Íran, sem nú er byrj­aða að byggja upp útflutn­ings­við­skipti eftir að efna­hags­þving­anir voru aflagðar. Mikið sé í húfi, enda geti frek­ari ófriður í Mið­aust­ur­löndum grafið undan til­raunum til að stilla til friðar í heims­hlut­anum, sem ein­kennst hefur af ófriði, stríðs­á­tökum og póli­tískum glund­roða und­an­farin ár.

Sádi-Arabar eru auk þess sagðir vera komnir í varn­ar­stell­ingar efna­hags­lega, eftir að láns­hæf­is­ein­kunn rík­is­ins var lækkuð. Versn­andi staða er alfarið rakin til mik­illar verð­lækk­unar á olíu. Tunnan af hrá­olíu hefur lækkað úr 110 Banda­ríkja­dölum niður í rúm­lega 40 dali á einu og hálfu ári. Olíu­fram­leiðslu­ríki náðu ekki saman um aðgerðir til að draga úr fram­leiðslu á fundi OPEC ríkja í Doha um síð­ustu helgi. Það eru einkum Íranir sem eru sagðir hafa staðið í vegi fyrir slíkum aðgerðum, sem hefðu vænt­an­lega leitt til minna fram­boðs og þar með hærra verðs. 




Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

obama

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár