Neysluglaðir Bretar og Bandaríkjamenn koma til landsins

Vís­bend­ingar eru uppi um að hver ferða­maður sem kemur hingað til lands skilji eftir sig meiri gjald­eyr­is­tekjur í ár heldur en síð­ustu ár. Hátt hlut­fall breskra og banda­rískra ferða­manna, sem eru að jafn­aði neysluglaðir, gæti útskýrt þetta.

Breskir og bandarískir ferðamenn skilja að jafnaði eftir sig mikið af gjaldeyri hér á landi, samkvæmt fjármálaráðuneytinu.
Breskir og banda­rískir ferða­menn skilja að jafn­aði eftir sig mikið af gjald­eyri hér á landi, sam­kvæmt fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Mynd: Golli

Erlendum ferða­mönnum hefur fjölgað hratt á Íslandi á síð­ustu vikum, þrátt fyrir að vera langt frá ferða­manna­fjöld­anum á sama árs­tíma árið 2019. Þó hefur velta erlendra greiðslu­korta auk­ist meira, sem eru vís­bend­ingar um að meiri gjald­eyrir fylgi hverjum ferða­manni en áður. Ein mögu­leg útskýr­ing á þess­ari þróun er hátt hlut­fall breskra og banda­rískra ferða­manna sem komið hafa til lands­ins á síð­ustu vikum.

Þetta kemur fram í nýrri til­kynn­ingu sem birt­ist á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins fyrr í dag. Samkvæmt henni hefur komuflug til Kefla­víkur auk­ist mikið í mán­uð­inum og félögum sem hingað fljúga fjölgað, sér­stak­lega þeim sem fljúga frá Banda­ríkj­unum og Bret­landi.

Hins vegar virð­ist ansi langt í að fjöldi ferða­manna verði áþekkur fjöld­anum sem kom hingað til lands á sama árs­tíma fyrir tveimur árum síðan, en sam­kvæmt tölum frá Ferða­mála­stofu var fjöldi erlendra komu­far­þega um Leifs­stöð í síð­asta mán­uði innan við 5 pró­sent af komu­far­þegum í apríl 2019.

Aftur á móti var aukn­ingin í veltu erlendra greiðslu­korta meiri milli mán­aða líkt og sjá má á mynd hér að neðan. Í síð­asta mán­uði var veltan 20 pró­sent af heild­ar­velt­unni í apríl fyrir tveimur árum síðan, þrátt fyrir að erlendir ferða­menn hér­lendis væru ein­ungis 4,9 pró­sent af ferða­manna­fjöld­anum í apríl 2019. Því var rúm­lega fjórum sinnum meiri velta á hvern ferða­mann í síð­asta mán­uði, miðað við sama tíma­bil fyrir tveimur árum síðan.

Samkvæmt fjár­mála­ráðu­neyt­inu hefur veltan haldið áfram að aukast á síð­ustu vikum og var hún orðin rúm­lega 30 pró­sent af heild­ar­velt­unni um miðjan maí, miðað við sama tíma árið 2019. Á sama tíma er fjöldi komu­far­þega aðeins 9 pró­sent af heild­ar­fjöld­anum á sama tíma fyrir tveimur árum síðan.

Ráðu­neytið segir það ekki enn vera ljóst hvort neyslan skýrist af lengri dvöl ferða­manna eða breyt­inga í sam­setn­ingu hóps komu­far­þeg­anna, en hærra hlut­fall er nú af Banda­ríkja­mönnum, sem dvelja gjarnan meira og kaupa meiri afþr­ey­ingu, heldur en verið hefur áður. Verði hlut­fall banda­rískra og breskra ferða­manna hærra hér á landi í ár en áður hefur verið er búist við að með­al­neysla á hvern ferða­mann verði nokkuð meiri en fyrri ár, sam­kvæmt ráðu­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár