Mynd: Shutterstock

Staðir sem þú verður að sjá áður en þú deyrð

Ísland er land fjöl­breytileika og fegurðar. Stundin leitaði til þekktra ferða­langa og náttúru­unnenda sem nefna staði sem eru þess fyllilega virði að sjá og upplifa.

Lakagígar
Lakagígar „Lakagígar eru stórkostlegt náttúru­undur. Sögusvið náttúru­hamfara sem nærri þurrkuðu íslenska þjóð út og langvinn áhrif þeirra breyttu gangi sögunnar á heimsvísu. Holl áminning um kraft og eyðingar­mátt nátt­úrunnar.“ - Páll Ásgeir Ásgeirsson

Hesteyri
Hesteyri „Horn­strandir og Jökulfirðir eru staðir sem færa mann aftur í tímann. Sumarið kemur á sprett­hlaupi eftir að snjóa leysir og blómin og gróðurinn sprettur upp jafn­harðan og snjóskaflarnir hverfa. Sumarið er stutt en algerlega einstakt. Það er erfitt að benda á einn stað, en Hesteyri hefur eitthvað sem erfitt er að lýsa. Þetta er dásam­legur staður og nauðsynlegt að lesa um fólkið sem bjó þar og hvernig lífið var allt þar til búsetu var hætt til að skynja allar hliðar á staðnum.“- Einar Skúlason

Hrolleifsborg
Hrolleifs­borg „Hrolleifs­borg í Dranga­jökli er eitt af tignarlegustu bæjar­fjöllum landsins. Í baksýn er Reykjar­fjörður, bestur áfanga­staða á Horn­ströndum. Þegar maður morrar þar í sjóð­heitri laug og horfir til Hrolleifs­borgar eftir að hafa staðið á toppi hennar upplifir maður djúpa vellíðan sem erfitt er að kalla fram með öðrum hætti.“ - Páll Ásgeir Ásgeirsson

Krossneslaugin
Kross­neslaugin „Það er magnað að vera á Vestfjörðum og fara þar um og staðirnir eru í tugatali sem eru ógleymanlegir. Rauðisandur og Látra­bjarg, Arnar­fjörðurinn allur eða Ísafjarðar­djúpið. Þetta er allt saman stórkostlegt. Svo má ekki gleyma Ströndunum og má til dæmis nefna tilfinninguna að liggja í Kross­neslauginni í Árnes­hreppi á Ströndum og horfa út yfir hafflötinn. Það er eins og að maður renni saman við sjóinn og þetta verður hver maður að upplifa að minnsta kosti einu sinni.“ - Einar Skúlason

Látrabjarg
Látra­bjarg „Það ættu allir að fara að Látra­bjargi í það minnsta einu sinni á ævinni. Þetta er stærsta sjávar­bjarg Íslands og Evrópu og það er hrikalegt að ganga með því, horfa yfir hafið og sjá fuglana í björgunum. Algerlega ógleymanleg upplifun. Svo er líka auðvelt að komast þangað með alla fjöl­skylduna og nýta tækifærið í leiðinni til að koma við á Rauða­sandi, Hænuvík og fleiri fallegum stöðum á sunnan­verðum Vestfjörðum.“ - Lára Ómars­dóttir

Herðubreið
Herðu­breið „Í þrígang hef ég reynt við drottninguna. Og þrisvar hefur hún hafnað mér. Hið fyrsta sinni huldi hún sig slæðum þoku og hríms og gaf þar með engin færi á sér. Annað sinnið gerði slíkar rigningar um hana alla að tæpt var uppgöngu sakir leysinga. Þriðja skiptið var langsamlega líklegast og hvorki veður né vindar virtust getað hindrað þá helgu för ... nema nátt­úrlega eldgos og aflokun svæðis af sjálfum Almanna­vörnum ríkisins sem hlýða ber hiklaust.“ - Sigmundur Ernir Rúnarsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár