Móðir flýr barnavernd sem vill koma dóttur hennar í varanlegt fóstur

Sandra Hrönn Stef­ánsdóttir hefur kært Barna­verndar­nefnd Reykja­víkur fyrir ranga úrlausn í máli hennar en barna­vernd hefur farið fimmm sinnum fram á forsjár­sviptingu síðan í desember 2020. Sandra hefur vegna þessa komið sér í felur úti á landi til að dóttir hennar verði ekki tekin af henni.

Sandra Hrönn Stef­ánsdóttir, þriggja barna móðir, fer nú huldu höfði úti á landi með unga dóttur sína. Ástæðan fyrir því að hún flúði Reykjavík er sú að Barna­verndar­nefnd Reykja­víkur vill forsjár­svipta hana og taka dóttur hennar frá henni að ástæðu­lausu, eins og Sandra og Sara Páls­dóttir, lögmaður hennar, orðar það. Sandra á langa vímuefna­sögu að baki, en sjálf ólst hún upp við erfiðar aðstæður samkvæmt gögnum málsins. 

„Núna erum við bara í felum af því að ég ætla ekki að láta barnið frá mér aftur, það er henni í óhag,“ segir Sandra í samtali við Stundina. Hún er að eigin sögn óvirkur alkóhól­isti frá því í desember 2019, utan þess sem hún féll einu sinni í júlí 2020. Síðan hefur hún verið undir eftirliti þar sem hún skilar reglulega þvag­prufum til barna­verndar­yfirvalda. 

Vistun dóttur hennar hjá fóstur­foreldrum féll niður þann 27. janúar síðastliðinn. Sandra sótti þá dóttur sína …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár