Donald Trump í Flórída í dag Frá­far­andi for­seti Banda­ríkj­anna, Donald Trump, við kom­una til Flórída.

Trump ei meir: Biden er forseti

Joe Biden er formlega orðinn forseti Banda­ríkjanna. Donald Trump er kominn til Flórída. Biden mun snúa mörgum lykilá­kvörð­unum Trumps strax á fyrstu klukku­stundum forseta­tíðar sinnar.

Joe Biden er nú formlega orðinn forseti Banda­ríkjanna eftir innsetningar­athöfn þar sem stjörnur eins og Lady Gaga og Jennifer Lopez sungu bandarísk ættjarðarlög.

Donald Trump, nú fyrr­verandi forseti, er kominn til Flórída. Hann er fyrsti Bandaríkja­forsetinn í 150 ár til þess að neita að vera viðstaddur innsetningu eftir­manns síns. Mike Pence vara­forseti var hins vegar viðstaddur.

Um leið er Kamala Harris fyrsti kvenkyns vara­forseti Banda­ríkjanna.

„Þetta er dagur Banda­ríkjanna. Þetta er dagur lýðræðisins. Dagur sögu og vonar,“ sagði Biden við innsetninguna. Hann sagði þetta ekki dagur fram­bjóðandans, heldur lýðræðisins. „Við höfum lært aftur að lýðræðið er dýrmætt.“

„Ég mun berj­ast jafn­öt­ul­lega fyrir þau sem kusu mig ekki eins og þau sem kusu mig.“
Joe Biden
Inn­setn­ing­ar­ræða 20. jan­úar 2021

Biden fjallaði um loftslags­vandann í ræðu sinni og sagði plánetuna gráta á hjálp. Hann boðaði sátta­stjórnmál og samheldni og varaði við öfga­hyggju. „Stjórnmál þurfa ekki að vera logandi eldur sem eyðir öllu sem á veginum verður,“ sagði hann. „Ég heiti ykkur þessu, að ég verð forseti allra Bandaríkja­manna. Ég mun berjast jafnötullega fyrir þau sem kusu mig ekki eins og þau sem kusu mig.“

Innsetningar­ræða Bidens var uppgjör við Trumptímann, sem hann lét þó ónefndan.

„Ég mun verja lýðræðið. Ég mun verja stjórnar­skrána. Ég mun vernda Banda­ríkin,“ sagði hann. „Saman munum við skrifa nýja bandaríska sögu. Um von, en ekki ótta. Um samheldni, en ekki sundgrung. Sögu af ljósi, en ekki myrkri. Sögu af velsæmi og virðingu. Ást og heilun. Mikilfeng­leika og góðmennsku. Megi þetta verða sagan sem sem leiðir okkur, sagan sem gefur okkur innblástur og segir komandi kynslóðum að við svöruðum kalli sögunnar, að við mættum augna­blikinu, að lýðræðið, vonin og sann­leikurinn dóu ekki á okkar vakt.“

Barack Obama og Kamala HarrisFor­set­inn fyrr­ver­andi heilsar Kamölu Harris, vara­for­seta.

Þótt Donald Trump sé ekki lengur forseti gætir áhrifa hans enn. Hann hefur skipað fjölda embættis­manna og fært til í starfi og skipaði þrjá dómara í Hæstarétt. 

Joe Biden hefur hins vegar þegar tekið til við að snúa mörgum ákvörðunum Trumps. Á fyrstu klukku­stundum forseta­tíðar sinnar mun hann undirrita 17 forseta­tilskipanir, valda­úrræði sem Trump hefur beitt í mun meira mæli en forverar hans.

Biden hefur hætt við úrgöngu Banda­ríkjanna úr Alþjóða­heilbrigðis­stofnuninni (WHO) og ákveðið að Anthony Fauci verði formaður sendi­nefndar Banda­ríkjanna þar. 

Biden hefur einnig ákveðið að Banda­ríkin verði aðilar að Parísar­samkomu­laginu um baráttu gegn loftslags­málum, sem tekur þó 30 daga að fram­fylgja. Hann snýr að auki um 100 ákvörðunum Trumps í umhverfis­málum.

Ferða­banni gegn íbúum sjö múslima­ríkja verður afétt og hætt verður að beina fjármagni neyðar­sjóða til uppbyggingar á vegg við landa­mærin að Mexíkó.

Fyrir utan þessar ákvarðanir hefur Biden skipulagt næstu vikur með þemadögum. Á mánudag í næstu viku verður þemað „kaupum amerískt“, þar sem auknar kröfur verða gerðar til ríkis­stofnana um að kaupa bandarískar vörur. Á þriðjudag verður hafin barátta til að útrýma einka­reknum fangelsum, á miðvikudag verður loftslags­váin á dagskrá með endur­reisn ráðgjafa­ráðs um vísindi og tækni og á fimmtudag verða heilbrigðismál í brennidepli og þar á meðal aðstoð við þungunarrof. Loks verður á föstudag í næstu viku hafin breyting á meðhöndlun innflytjenda­mála, meðal annars stofnun starfs­hóps um sameiningu fjöl­skyldna sem hafa verið aðskildar af bandarískum yfir­völdum í valdatíð Trumps.

Emb­ætt­is­vígslanLady Gaga flytur þjóð­söng­inn með verð­andi for­seta í bak­grunni.
Farinn af valda­stóliDonald Trump nefndi Joe Biden ekki á nafn í kveðju­ræðu sinni. Hér er Trump við kom­una til Flórída, á leið­inni á Mar-a-Lago golf­klúbb­inn í Palm Beach.
Lent í FlórídaMelania Trump og eig­in­maður hennar, Donald, nýlent í Flórída. Melania braut blað í sögu for­seta­emb­ætt­is­ins, eins og eig­in­maður hennar, þegar hún kaus að kynna ekki híbýli Hvíta húss­ins fyrir eig­in­konu nýs for­seta.
Inn­setn­ing­ar­ræða BidensJoe Biden for­seti gerði upp við for­seta­tíð Donalds Trumps og boð­aði and­stæð gildi: Sam­heldni, lýð­ræði og eigið lít­il­læti.
Inn­setn­ing­ar­at­höfninJoe Biden var svar­inn í emb­ætti skömmu fyrir fimm í dag.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár