Umhverfisráðherra vill banna plastpoka eftir tvö ár

Umhverf­is­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp til að draga úr notkun á plast­pokum. Ef frum­varpið verður sam­þykkt verður öllum sölu­stöðum óheim­ilt að afhenda burð­ar­poka úr plasti þann 1. jan­úar árið 2021.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverf­is­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp, um breyt­ingar á lögum um holl­ustu­hætti og meng­un­ar­varnir, til að draga úr notkun plast­poka. Í frum­varp­inu er lagt til að öllum versl­unum verði óheim­ilt að afhenda burð­ar­poka úr plasti án end­ur­gjalds á sölu­stöðum og að gjaldið verði sýni­legt á kassa­kvittun. Auk þess leggur ráð­herra til að óheim­ilt verði að afhenda burð­ar­poka úr plasti, hvort sem er með eða án end­ur­gjalds, í ver­s­unum frá og með 1. júlí 2021.

Bannið nær einnig til þunnra plastpoka sem gjarnan má finna í grænmetisdeild verslana

Í frum­varp­inu er sett fram til­laga að tölu­legum mark­miðum varð­andi árlega notkun burð­ar­poka úr plasti. Lagt er til að eigi síðar en 31. des­em­ber 2019 skuli árlegt notk­un­ar­magn burð­ar­poka úr plasti vera 90 á hvern ein­stak­ling eða færri og eigi síðar en 31. des­em­ber 2025 skal árleg notku vera 40 burð­ar­pokar eða færri.

Jafn­framt er lagt til í frum­varp­inu að óheim­ilt verði að afhenda burð­ar­poka úr plasti án end­ur­gjalds á sölu­stöðum vara og að gjaldið skuli vera sýni­legt á kassa­kvittun. Með breyt­ing­unni er lögð skylda á aðila sem selja vörur, svo sem versl­anir, að þeir þurfi að selja burð­ar­poka sem þeir afhenda eða bjóða fram við sölu á vöru. Skyldan um greiðslu nær til sölu á stökum burð­ar­pokum við afgreiðslu­kassa sem og þunnra burð­ar­poka úr plasti sem gjarnan liggja frammi í græn­met­is­deildum versl­ana. Lagt er til að lögin öðlist gildi 1. júlí 2019 í stað þess að um leið og þau eru sam­þykkt, til þess að sölu­að­ilum sem afhenda burð­ar­poka án end­ur­gjalds hafi ráð­rúm til að laga sig að breyttri ráð­gjöf.

Ef frum­varpið verður sam­þykkt mun bann við afhend­ingu á burð­ar­pokum úr plasti taka gildi þann 1. jan­úar 2021. Samkvæmt grein­ar­gerð­inni er frestur veittur til 2021 til þess að sölu­að­ilar hafi ráð­rúm til þess að taka í notkun burð­ar­poka úr öðrum efnum en plasti. Í frum­varp­inu er lagt til að bann við afhend­ingu burð­ar­poka úr plasti nái ein­ungis til þess þegar burð­ar­pokar úr plasti séu afhentir við sölu á vörum en ekki er kveðið á um almennt bann við sölu á burð­ar­pokum úr plasti. Því geta versl­anir eftir sem áður haft til sölu burð­ar­poka úr plasti í hillum inni í sölu­rými versl­ana, verði frum­varpið að lögum. Bannið nær jafn­framt til plast­pokanna í græn­met­is­deildum versl­ana. [adspot]

Í samræmi við aðgerðaáætlun í plastmálefnum

[links]Frum­varpið er í sam­ræmi við aðgerða­á­ætlun um hvernig draga má úr notkun plasts, bæta end­ur­vinnslu þess og takast á við plast­mengun í hafi, sem skiluð var til umhverfis- og auð­linda­ráð­herra í nóv­em­ber í fyrra. Í aðgerð­ar­á­ætl­un­inn­i má finna átján aðgerðir um hvernig megi draga úr notkun plasts, bæta end­ur­vinnslu og takast á við plast­mengun í hafi. Meðal ann­ars var lagt til að stjórn­völd ráð­ist í mark­vissa vit­und­ar­vakn­ingu almenn­ings um ofnotkun á plast­vörum, að flokkun úrgangs verði sam­ræmd á lands­vísu en ásamt því var lagt til að plast burð­ar­pokar verði bann­aðar í versl­unum árið 2021.

Skiptar skoðanir á banninu

Óskað var eftir umsögnum við frum­varps­drögin í sam­ráðs­gátt Stjórn­ar­ráðs­ins í nóv­em­ber í fyrra. Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að umsagnir um frum­varpið og aðgerð­ar­á­ætlun í plast­mál­efnum hafi almennt verið jákvæðar og lýst yfir stuðn­ingi við aðgerðir stjórn­valda til þess að draga úr plast­notkun. Þó hafi í nokkrum umsögnum verið gerð athuga­semdir við að burð­ar­pokar yrðu bann­aðar eftir tvö ár.

Í sam­eig­in­legri umsögn Samtaka atvinnu­lífs­ins, Samtaka iðn­að­ar­ins og Samtaka versl­unar og þjón­ustu kemur meðal ann­ars fram að mik­il­vægt sé að horfa til heild­ar­um­hverf­is­á­hrifa vöru þegar opin­berir aðilar ákveði að beita stjórn­sýslu­að­gerðum til að stýra neyslu í þágu umhverf­is­verndar. Í umsögn­inni segir að þröngt sjón­ar­horn, til dæmis ef ein­göngu er horft til enda lífs­fer­ils, geti það orðið til þess að umhverf­is­á­hrif falli af meiri þunga fyrr í lífs­ferl­inum, svo sem við fram­leiðslu eða flutn­inga. Einnig þurfi að bera vör­una saman við stað­geng­ilsvöru og meta hvað komi í stað­inn.

Í skýrslu Umhverf­is­stofn­unar Bret­lands frá árinu 2011 er fjallað um nið­ur­stöður vist­fer­ils­grein­ingar á burð­ar­pokum. Skoðaðar voru nokkrar gerðir plast­poka, bréf­pokar og taupokar. Í öllum til­fellum eru umhverf­is­á­hrif lang­mest vegna hrá­efna­notk­unar og fram­leiðslu. Flutn­ingar og förgun hafi aftur á móti minni­háttar áhrif. Fyrir allar gerðir af pokum sé lyk­ill­inn að því að minnka umhverf­is­á­hrifin sá að end­ur­nota poka eins oft og hægt er, hvort sem er til sömu nota, þ.e. inn­kaupa, eða sem rusla­poka. Nota þarf papp­írs­poka þrisvar sinnum og taupoka 131 sinnum til að gróð­ur­húsa­á­hrif séu minni en vegna hefð­bund­inna plast­poka. Sé plast­poki end­ur­not­aður þarf að end­ur­nota papp­írs- og taupoka enn oftar. Í skýrsl­unni kemur fram að hefð­bundnir plast­pokar hafi marga kosti fram yfir aðrar teg­undir poka sem skoð­aðir voru. 

Í umsögn Land­verndar kemur aftur á móti fram að rétt sé að hafa í huga að erlendar lífs­fer­ils­grein­ingar sem gerðar hafa verið á burð­ar­pokum úr plasti og fjöl­nota pokum séu ekki hafnar yfir gagn­rýni og nauð­syn­legt sé að skoða hlut­ina í sem víð­ustu sam­hengi. Þar kemur jafn­framt fram að í nýlegri danskri lífs­fer­ils­grein­ingu komi plast­pokar best út, en þar hafi verið gert ráð fyrir því að þeir lendi í end­ur­vinnslu­far­vegi. Urðun sé til dæmis ekki ásætt­an­legur far­vegur í neinu sam­hengi en þar lendir stór hluti íslenskra burð­ar­plast­poka, sem rusla­pokar.

Ef bann við afhend­ingu burð­ar­poka úr plasti gengur eftir þá felur það í sér að sölu­að­ili skal við sölu á vörum ekki bjóða við­skipta­vinum sínum upp á burð­ar­poka úr plasti undir vör­urnar, t.d. til að koma vörum heim. Í grein­ar­gerð­inni er bent á að margar versl­anir hafi þegar skipt burð­ar­pokum úr plasti fyrir fjöl­nota burð­ar­poka eða burð­ar­poka úr öðrum efndum, mark­mið frum­varps­ins sé að flýta enn frekar fyrir þess­ari þróun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár