Hópuppsögnum fer fjölgandi – ekki fleiri síðan eftir hrunið

Sér­fræð­ingur hjá Vinnu­mála­stofnum segir að hóp­upp­sögnum hafi farið fjölg­andi und­an­farin ár en þær hafa ekki verið fleiri síðan stuttu eftir hrunið fyrir tíu árum.

Samtals hefur 12.560 manns verið sagt upp í hóp­upp­sögnum á 12 árum. Flestir misstu vinn­una á þriggja mán­aða tíma­bili frá des­em­ber 2008 til febr­úar 2009 og svo næstu 3 mán­uði þar á eftir. Alls voru þeir sem sagt var upp í hóp­upp­sögnum á árinu 2019 1.046 tals­ins og hafa ekki verið fleiri síðan 2009 en þá var fjöldi þeirra sem sagt var upp í hóp­upp­sögn 1.780.

Frá þessu er greint á vef Vinnu­mála­stofn­unar.

Vinnu­mála­stofnun barst 21 til­kynn­ing um hóp­upp­sögn á árinu 2019, þar sem 1.046 manns var sagt upp störfum. Engar til­kynn­ingar um hóp­upp­sagnir bár­ust stofn­un­inni í des­em­ber síð­ast­liðnum.

Samkvæmt stofn­un­inni misstu flestir vinn­una í flutn­ingum, eða 540 manns sem gera tæp 52 pró­sent allra hóp­upp­sagna. Í öðru lagi missti fólk vinn­una í bygg­ing­ar­iðn­aði, eða um 10 pró­sent og í þriðja lagi í fjár­mála– og vátrygg­ing­ar­starf­semi eða tæp 10 pró­sent.

Um 53 pró­sent til­kynntra hóp­upp­sagna á árinu 2019 voru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, um 37 pró­sent á Suð­ur­nesjum, um 4 pró­sent á Vest­ur­landi, um 3,5 pró­sent á Suð­ur­landi og um 2,4 pró­sent á Norð­ur­landi eystra, segir á vef Vinnu­mála­stofn­unar.

Flestum sagt upp í mars

Karl Sig­urðs­son, sér­fræð­ingur hjá Vinnu­mála­stofnun, segir í sam­tali við Kjarnann að hóp­upp­sögnum hafi farið fjölg­andi und­an­farin ár.

„Það voru um 700 til 800 sem skráðu sig hjá okkur eftir gjald­þrot WOW air,“ segir hann en þeim hefur fækkað smám saman sem eru á skrá síð­ustu mán­uði.

Sex til­kynn­ingar um hóp­upp­sagnir bár­ust Vinnu­mála­stofnun í mars á síð­asta ári þar sem 473 starfs­mönnum var sagt upp störfum.

Tvær upp­sagnir voru í starf­semi tengdri flutn­ingum og geymslu, þar sem 328 manns var sagt upp störfum, þar af 315 hjá Airport Association, en sumum þeirra sem sagt var upp þar hefur verið boðin end­ur­ráðn­ing á öðrum kjörum. Þetta kom fram hjá Vinnu­mála­stofnum í apríl síð­ast­liðnum.

Hinar upp­sagn­irnar koma úr fjórum atvinnu­greinum; 46 manns var sagt upp í ferða­þjón­ustu, 37 í fram­leiðslu, 32 í bygg­inga­starf­semi og 30 í sér­fræði­legri, vís­inda­legri og tækni­legri starf­semi. Flestar hóp­upp­sagnir bár­ust frá fyr­ir­tækjum á Suð­ur­nesjum eða 347 og 126 á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hóp­upp­sagn­irnar komu til fram­kvæmda á tíma­bil­inu maí til júlí á síð­asta ári. Upp­sagnir hjá Wow air og aðrar upp­sagnir vegna gjald­þrota eru ekki taldar með í þessum hóp­upp­sögnum, sam­kvæmt Vinnu­mála­stofnun.

Karl segir að ef ekki hefði verið þessi hóp­upp­sögn hjá Airport Association þá hefðu hóp­upp­sagnir á síð­asta ári verið á pari við árið áður – og jafn­vel færri.

Vona að botninum verði náð í vetur

Aðspurður hvernig þau hjá Vinnu­mála­stofnun sjái kom­andi ár fyrir sér þá segir Karl að það sé erfitt að spá fyrir um hóp­upp­sagnir. Þó telur hann að almennt séð muni atvinnu­á­stand versna umfram árs­tíða­sveiflur á næst­unni. Það eigi sér­stak­lega við ef snarpur sam­dráttur verði í ferða­þjón­ustu þar sem mikið yrði um hag­ræð­ing­ar­að­gerðir.

„Við von­umst hins vegar til þess að botn­inum verði náð að liðnum vetri,“ segir hann og bætir því við að þau hjá Vinnu­mála­stofnun hafi vit­neskju um að stór fyr­ir­tæki í flug­geir­anum, á borð við Icelandair og Airport Association, muni halda áfram að ráða fólk. Þá fari þetta allt eftir eft­ir­spurn­inni eftir ferða­mönnum.

[box]

Gjaldþrot ekki með í hópuppsögnum

Alls var 111 fast­ráðnum starfs­­mönnum WOW air sagt upp störfum í des­em­ber árið 2018 og náðu upp­­sagnir starfs­­manna þvert á fyr­ir­tæk­ið. Þá hafði Vinnu­mála­stofnun ekki fengið jafn fjöl­mennar hóp­upp­sagnir síðan 2009 þegar um 600 manns var sagt upp í tveimur hóp­upp­sögnum hjá Ístaki hf.

WOW air varð síðan gjald­þrota þann 28. mars á síð­asta ári og þá misstu 1.100 starfs­menn flug­fé­lags­ins störf sín. Það er þó ekki inn í tölum Vinnu­mála­stofn­unar þar sem gjald­þrot eru ekki talin með í hóp­upp­sögnum, að sögn Karls.

Þrot WOW air skilur eftir milljarðakostnað

Stór liður sem hefur áhrif á rík­is­rekstur um þessar mundir er einmitt aukin kostn­aður vegna hærra atvinnu­leysis og greiðslna úr Ábyrgð­ar­sjóði launa, aðal­lega vegna gjald­þrots WOW air sem hefur aukið veru­lega kostnað vegna beggja liða. Atvinnu­leysi stefnir í að verða 3,5 pró­sent í ár, en var 2,4 pró­sent að með­al­tali í fyrra.

Í frum­varpi til fjár­auka­laga sem sam­þykkt var í des­em­ber síð­ast­liðnum var lagt til að fjár­heim­ild til mála­flokks­ins yrði aukin um 7,6 millj­arða króna. Af þeirri upp­hæð var gert ráð fyrir að tæp­lega 6,3 millj­arðar króna færi í að mæta auknum útgjöldum Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs á síð­asta ári. Þá var farið fram á að tæp­lega 1,3 millj­arðar króna færu til Ábyrgð­ar­sjóðs launa til að mæta auknum útgreiðslum vegna gjald­þrota fyr­ir­tækja á árinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár