Skólum lokað og stórhertar sóttvarnaraðgerðir

Tíu manna fjölda­tak­mark­anir taka gildi á mið­nætti um allt land og öllum skólum verður lokað. Beita á hörðum aðgerðum til að takast á við breska atbrigðið af Covid-19.

Skólum verður lokað, sund­stöðum og lík­ams­rækt­ar­stöðvum er óheim­ilt að hafa opið, krám og skemmti­stöðum verður lokað og fjölda­tak­mark­anir verða færðar niður í tíu manns á mið­nætti. Hertar sótt­varn­ar­að­gerðir, sem kynntar voru rétt í þessu, munu gilda næstu þrjár vik­urnar, til þess að reyna að koma böndum á útbreiðslu breska afbrigðis Covid-19. 

Helstu breyt­ingar á sam­komu­tak­mörk­unum eru eft­ir­far­andi: 

  • Almennar fjölda­tak­mark­anir mið­ast við tíu manns og gildir það um allt land og fyrir alla. Grímu­skylda verður fyrir alla  utan börn fædd 2014 og síðar. Staðnám í grunn­skólum, fram­halds­skólum og háskólum verður óheim­ilt fram til 1. apríl. Skemmti­stöðum og krám verður lokað. Veit­inga­stöðum verður heim­ilt að hafa opið til klukkan 22:00 og verður heim­ilt að taka á móti 20 manns að hámarki í hvert sótt­varn­ar­hólf. Þjóna þarf gestum til sætis. Kvik­mynda­húsum og leik­húsum verður lokað.
  • Sund- og bað­stöðum verður óheim­ilt að hafa opið og lík­ams­rækt­ar­stöðvum einnig. Þá verður íþrótta­starf utan­húss óheim­ilt þar sem ekki er hægt að við­hafa tveggja metra fjar­lægð. Á það við um bæði íþróttir full­orð­inna og barna.
  • Trú og lífs­skoð­un­ar­fé­lög mega taka á móti 30 gestum í athöfnum. Versl­anir mega taka á móti 50 manns að hámarki, þó færri þar sem um minni versl­anir er að ræða. Snyrti­stofur og hár­snyrti­stofur hafa áfram heim­ild til að hafa opið. 

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði á blaða­manna­fundi í dag að hún væri ekki að færa neinar gleði­fréttir. Fjölgun smita upp á síðkastið væru keyrð áfram af svoköll­uðu bresku afbrigði, sem leggst ekki síður á börn og ung­linga en eldra fólk. Því væri tekin ákvörðun um þær svo mjög hertu aðgerðir sem nú væru kynntar.

Katrín lagði þó áherslu á að staðan væri þó betri nú en var fyrir ári síðan, því með bólu­setn­ingum væri búið að koma mörgum af við­kvæm­ustu hóp­unum í skjól. 

Katrín sagði enn fremur að með því að stíga mjög hart til jarðar nú þegar væri vonin sú að hægt yrði að koma böndum á fjórðu bylgju far­ald­urs­ins. Aðgerð­irnar myndu hafa mjög mikil áhrif til skamms tíma en þær munu von­andi hafa þau áhrif að svo harðar aðgerðir þurfi að standa skemur en ann­ars væri. Ofurkapp væri lagt á að ná tökum á breska afbrigð­inu.

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra kynnti á fund­inum að bólu­setn­ing með bólu­efni AstraZeneca bólu­setn­ing myndi hefj­ast að nýju, fyrir 70 ára og eldri. Á næstu tveimur vikum mun verða hægt að bólu­setja allt heil­brigð­is­starfs­fólk og alla 70 ára og eldri. 

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sagði á fund­inum að með aðgerð­unum væri verið að verja heilsu fólks en jafn­framt verið að lág­marka efna­hags­legan skaða. Ljóst væri þó að margir myndu finna fyrir efna­hags­legum áhrifum að hertum reglum. Unnið væri að fram­leng­inu á lok­un­ar­styrkjum og við­spyrnu­styrkjum fyrir aðila í atvinnu­líf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár