Íslendingar í skattaskjólsgögnum sem eru fluttir úr landi ekki rannsakaðir

Íslendingar voru stórtækir í því að geyma peninga í félögum með heimilisfesti í þekktum skattaskjólum. Einna vinsælastar voru Bresku Jómfrúareyjarnar.
Íslend­ingar voru stór­tækir í því að geyma pen­inga í félögum með heim­il­is­festi í þekktum skatta­skjólum. Einna vin­sælastar voru Bresku Jóm­frú­ar­eyj­arnar.

57 ein­stak­lingar sem eru í þeim gögnum um fjár­muni Íslend­inga í erlendum skatta­skjólum sem ríkið keypti í fyrra verða ekki rann­sak­aðir frekar vegna þess að þeir hafa annað hvort flutt úr landi eða eru látnir. Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Svan­dísar Svav­ars­dóttur, þing­manns Vinstri grænna, um hver árangur af kaupum á gögn­unum hafi verið.

Fjöl­margir þeirra Íslend­inga sem opin­beraðir voru í Panama­skjöl­unum svoköll­uðu eiga lög­heim­ili erlendis. Þeir eiga það þó allir sam­eig­in­legt að hafa efn­ast mjög á við­skiptum á Íslandi og flutt pen­inga úr íslensku efna­hags­kerfi yfir í erlend eign­ar­halds­fé­lög.

Keyptu gögn sem síðar voru birt í fjölmiðlum

Umrædd gögn voru boðin til sölu í fyrra og loks keypt í fyrra­sumar. Gögnin komu frá lög­manns­stof­unni Mossack Fonseca & Co í Panama og eru því, að minnsta kosti að hluta, sömu gögn og fjöl­margir fjöl­miðlar víða um heim birtu fréttir úr í apríl síð­ast­liðnum. Þegar íslenska ríkið keypti gögnin kom fram að þar væru upp­lýs­ingar um 400 Íslend­inga sem tengd­ust 585 félögum. Í Panama­skjöl­unum sem lekið var til alþjóð­legu blaðmanna­sam­tak­anna ICIJ voru hins vegar upp­lýs­ingar um tæp­lega 600 Íslend­inga og um 800 félög í þeirra eigu. Því voru þau gögn ítar­legri en gögnin sem íslensk yfir­völd keyptu í fyrra á 38,2 millj­ónir króna.

Á meðal þeirra Íslend­inga sem koma fram í gögn­unum, og eru með tengsl við aflands­fé­lög, eru Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra og nokkrir stjórn­mála­menn af sveit­ar­stjórn­ar­stíg­inu. Þar var einnig að finna stjórn­endur úr líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu og fjöl­marga ein­stak­linga sem hafa verið áber­andi í íslensku við­skipta­lífi á und­an­förnum árum. Þar á meðal voru Jón Ásgeir Jóhann­es­son, Ingi­björg Pálma­dóttir, Lýður og Ágúst Guð­munds­synir, Finnur Ing­ólfs­son, Sigurður Bollason, Hannes Smárason, Björgólfur Thor Björg­ólfs­son ofl.

Hluti þessa hóps er skráður með lög­heim­ili erlendis.

30 mál í rannsókn

Þegar gögnin sem rík­is­sjóður keypti voru skoðuð kom í ljós að á fjórða tug þeirra ein­stak­linga sem fjallað er um í þeim hefur áður sætt rann­sókn hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra (SRS) vegna ætl­aðra skatta­laga­brota. Eftir grein­ing­ar­vinnu SRS var ákveðið að 30 mál myndu sæta áfram­hald­andi með­ferð þar sem fyrir þá rök­studdur grunur um und­an­skot tekna. Rannsókn á þeim stendur enn yfir. Í svari Bjarna segir enn fremur: „Athugun RSK (Rík­is­skatt­stjóri) hefur leitt í ljós að skatt­skil 178 ein­stak­linga sem koma fram í gögn­unum hafa á þessu stigi gefið til­efni til þess að stofnuð hafa verið mál á þessa ein­stak­linga hjá emb­ætt­inu. Þá liggur fyrir að 57 ein­stak­lingar sæta ekki frek­ari skoðun þar sem þeir eru ýmist látnir eða fluttir úr landi. Enn fremur eru 19 lög­að­ilar í gögn­unum sem þarf að skoða betur auk 83 ein­stak­linga sem enn þá eru til athug­unar. Óljóst er á þess­ari stundu hversu mörgum málum kann að verða vísað aftur til SRS að lok­inni athugun RSK.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár