Ólafur Ragnar og Guðni hnífjafnir ef valið væri milli þeirra

Ef val um for­seta stæði milli Ólafs Ragnars og Guðna Th. yrði hnífjafnt. Þegar Andri Snær er þriðji fram­bjóð­andi minnkar fylgi Guðna, en ekki Ólafs Ragnars. Þetta sýnir ný könnun.

Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, og Guðni Th. Jóhann­es­son sagn­fræð­ingur fengju jafn mikið fylgi sem for­seti Íslands ef valið stæði á milli þeirra tveggja. Þetta er nið­ur­staðan í nýrri skoð­ana­könnun Frjálsrar versl­unar, sem birt var nú í morgun.

Svar­endur voru spurðir hvorn þeir myndu kjósa ef valið stæði á milli Ólafs Ragnars og Guðna, sem þó hefur ekki enn til­kynnt um fram­boð sitt. Guðni fékk meira fylgi en Ólafur, 44,5% á móti 42,5% sitj­andi for­seta, en mun­ur­inn er ekki töl­fræði­lega mark­tækur. Ef aðeins voru skoðuð svör þeirra sem tóku afstöðu fékk Guðni 51,1% og Ólafur Ragnar 48,9%.

Guðni mælist með meira fylgi á suð­vest­ur­horn­inu, 48% gegn 39%, en Ólafur Ragnar á lands­byggð­inni, 47% gegn 41%. Ólafur er vin­sælli meðal karla, 47 pró­sent þeirra myndu kjósa hann en 41% Guðna. Guðni er vin­sælli meðal kvenna, 48% myndu kjósa hann en 39% Ólaf. Mark­tækur munur mæld­ist ekki á ald­urs­hópum nema hjá þeim sem eru yfir sjö­tugu, þar var Ólafur Ragnar með mun meira fylgi en Guðni, 63% gegn 32%.

Ólafur Ragnar mælist með sterkan stuðn­ing hjá kjós­endum rík­is­stjórn­ar­flokk­anna, um 72% kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins styðja hann og 53% kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Guðni nýtur mik­ils stuðn­ings meðal kjós­enda ann­arra flokka: 52% Pírata, 67% kjós­enda Sam­fylk­ingar og 74% kjós­enda VG myndu kjósa hann frekar en Ólaf.

Enginn framsóknarmaður vill Andra Snæ

Frjáls verslun spurði einnig um hvern fólk myndi velja ef valið stæði á milli Ólafs Ragnars, Guðna Th. og Andra Snæs Magna­sonar, sem hefur lýst yfir fram­boði til for­seta.

Fylgi Ólafs Ragnars hélst nær óbreytt við þetta, 41,3%. Guðni lækkar hins vegar í 33,9% og Andri Snær fær 11,6% fylgi. Yfir 13 pró­sent svar­enda sögð­ust óviss eða ekki vilja neinn þeirra. Ef aðeins eru skoð­aðir þeir sem taka afstöðu fengi Andri Snær 13,4%, Guðni Th. 39% og Ólafur Ragnar 47,6%.

Andri Snær fær mest fylgi frá stuðn­ings­mönnum Pírata og VG, um 30% hvors hóps. Enginn kjós­andi Fram­sókn­ar­flokks­ins lýsti yfir stuðn­ingi við Andra Snæ í könn­un­inni.

Breytist verulega við opið val

Að síð­ustu var spurt hvern fólk myndi kjósa ef það mætti nefna hvaða Íslend­ing sem er. Þá var fjórð­ungur aðspurðra óviss, og fylgi við Ólaf Ragnar lækkar tölu­vert. Ef miðað er við heild­ina fengi Ólafur Ragnar 24% stuðn­ing og Guðni 20%. Katrín Jak­obs­dóttir fengi 6% og Andri Snær 4%. Aðrir fengju minna fylgi.

Könnun Frjálsrar versl­unar var gerð 26. apríl til 1. maí og voru gild svör 445 tals­ins. Vikmörk í slíkri könnun geta verið um 5 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár