Björt Ólafsdóttir segist hafa áttað sig á því að hægt sé að gera fullt af góðum hlutum í lífinu þó að þeir gerist ekki allir í einu.
Björt Ólafsdóttir„Ég hvíli betur í hlutunum og mér finnst ég hafa góðan og skýran fókus. Hann er að börnin manns eru það eina sem skiptir raunverulega máli. Ég finn sterkt að það er mitt stærsta verkefni að koma krökkunum okkar til manns og sinna þeim,“ segir Björt. Með henni á myndinni eru þau Fylkir, Folda og Kára.Mynd: Heiða Helgadóttir
„Eftir að ég hætti sem ráðherra og fór af þingi var ég harðákveðin í að fara út í eigin rekstur. Að vinna fyrir sjálfa mig. Ég hafði aldrei gert það áður, hugurinn hafði lengi staðið til þess, en lífið leiðir mann stundum áfram, ég byrjaði í pólitík og það vatt upp á sig á ýmsan hátt. Það leið reyndar ekki á löngu þar til ég var beðin um að taka að mér tímabundið verkefni sem var að stýra verktakafyrirtæki í jarðvinnslu. Það heitir Járn. Ég tók þetta verkefni alla leið, eins og ég geri gjarnan. Ég tók meiraprófið til að hafa meira vit á því sem ég var að gera, mér …
Ýttu á + við höfund, fréttamál eða greinaröð til að fylgja því og fá tölvupóst þegar eitthvað nýtt kemur, einn á dag í mesta lagi. Því sem þú fylgir stjórnarðu á Minni síðu.
Athugasemdir
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Athugasemdir