Bland í poka - Ný barnaplata eftir Snorra Helgason

Söngv­ar­inn lands­þekkti, Snorri Helgason, hefur gert barna­plötu með tíu nýjum lögum. Með mun fylgja lítil bók. Safnað er fyrir útgáf­unni á Karolina fund.

Bland í poka er safn nýrra barna­laga eftir Snorra Helgason. Platan hefur að geyma 10 lög flutt af Snorra og hljóm­sveit hans ásamt úrvala­liði gesta­söngv­ara m.a. Sögu Garð­ars­dóttur, Valdimar Guð­munds­syni, Hugleiki Dagssyni, Halldóru Geir­harðs­dóttur, Katrínu Halldóru Sig­urð­ar­dóttur og Teiti Magn­ús­syni.

Teikn­ar­inn Elín Elísabet Ein­ars­dóttir hefur gert teikn­ingar við öll lögin á plöt­unni sem munu fylgja útgáf­unni ásamt textum og gít­ar­hljómum í lít­illi bók sem hönn­uð­ur­inn Bobby Breið­holt setur upp.

Fólk getur valið hvort það kaupi bók­ina með eða án geisla­disks þannig að ef þú og fjöl­skyldan þín hlustið aðal­lega á tón­list í óefn­is­legu formi t.d. á Spotify þá getur þú fjár­fest í þess­ari eigu­legu bók og notið þess að blaða í henni á meðan hlustað er á tón­list­ina.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Ég var að vinna að tón­list byggða á íslensku þjóð­sög­unum í nokkur ár sem að kom svo út á plöt­unni Margt býr í þokunni árið 2017. Til þess að gera þá tón­list þurfti ég að lesa mikið af þjóð­sögum og sökkva mér ofan í þann heim sem þær eru sprottnar úr með öllum sínum morðum og sifja­spelli og almennum drunga. Oftar en ekki var ég að vinna að þess­ari þjóð­lagatón­list í algeri ein­angrun í þröngum dal við mynni Súg­anda­fjarðar, nánar til­tekið í Galt­ar­vita. Til þess að við­halda geð­heils­unni í allri þess­ari ein­angrun með höf­uðið á kaf í öllu þessu myrkri fór ég nán­ast ósjálfrátt að semja tón­list sem var algjör and­stæða við það, lítil, skrítin og björt barna­lög. Þetta var nán­ast eins og varn­ar­við­bragð.

[adspot]Smátt og smátt fóru þessi lög að taka á sig mynd og fleiri hug­myndir að fæð­ast og úr varð þetta safn laga.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Það er í raun og veru ekk­ert ákveðið þema fyrir utan það að fagna krafti og gleði barns­and­ans. Ég hef alltaf verið mik­ill aðdá­andi kæru­leys­is­legrar og gleði­legar popptón­listar og lang­aði til að semja svo­leiðis tón­list. Tón­listin á þess­ari plötu er undir miklum áhrifum frá brit­poppi eins og blur og sillí hliðum bítl­ana.

Um það leiti sem ég var að semja þessa tón­list var ég líka mikið að hlusta á brasil­íska tón­list frá 7. og 8. ára­tugnum og áhrif frá því má einnig vel greina í tón­list­inni sbr. lagið Litla kisa sem er eftir brasil­íska tón­list­ar­mann­inn Caetano Veloso með nýjum texta eftir mig.

Svo þegar kom tími á að ganga frá útgáf­unni þá heyrði ég í Bobby Breið­holt hönn­uði og Elínu Elísa­betu Ein­ars­dóttur teikn­ara og við fórum strax mikið að spá í klass­ísku skand­in­av­ísku barna­plöt­unum og bók­unum og teikn­ing­unum sem fylgja þeim: Tove Jansson og múmínálfa­heim­ur­inn, Torbjörn Egner og Kar­dímommu­bær­inn og Dýrin í Hálsa­skógi og Einar Áskell eftir Gunnillu Bergström. Þá kvikn­aði sú hug­mynd um að gera teikn­ingar við öll lögin dálítið í þessum stíl sem myndi fylgja plöt­unni í lít­illi bók með söng­textum og gít­ar­hljómum. Þannig getur fólk, börn og full­orðnir, skoðað þessa bók á meðan hlustað er á tón­list­ina hvort sem það er á Spotify eða á geisla­disk.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár