Útflutningur til Rússlands dregist saman um 90 prósent vegna viðskiptaþvingana

Rúm þrjú ár eru síðan Rússland svar­aði við­skipta­þving­unum íslenska rík­is­ins með inn­flutn­ings­banni á nær öll mat­væli frá Íslandi. Í kjöl­far inn­flutn­ings­banns­ins hefur útflutn­ingur til Rúss­lands dreg­ist saman um 90 pró­sent og tugi millj­arða króna.

Vladimir Pútín, forseti Rússlands
Vladimir Pútín, for­seti Rúss­lands Mynd: EPA

Rússnesk stjórn­völd hafa í rúm fjögur ár, frá ágúst 2014, fram­fylgt inn­flutn­ings­banni á flestar teg­undir mat­væla frá vest­rænum ríkjum sem beita Rúss­landi efna­hags­þving­unum. Ísland er á meðal þeirra ríkja en Ísland hefur verið á inn­flutn­ings­bann­lista í Rúss­landi síðan í ágúst 2015. Útflutn­ingur Íslands til Rúss­lands hefur dreg­ist saman um 90 pró­sent síðan 2014.

Útflutn­ingur til Rúss­lands árið 2014, síð­asta heila árið áður en kom að gagn­þving­un­ar­að­gerðum Rúss­lands gegn Íslandi, nam rúm­lega 29 millj­örðum króna. Til sam­an­burður var heild­ar­út­flutn­ingur til Rúss­lands árið 2017 rúmir 7 millj­arðar, þar af gömul fiski­skip fyrir 5,3 millj­arða. Þetta kemur fram í svari Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar, utan­rík­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Karli Gauta Hjalta­syni, óháðum þing­mann, um við­skipta­þving­anir gagn­vart Rúss­landi.

Útflutningur á makríl fyrir 9 milljarða árið 2014

Árið áður en aðgerð­irnar komu til var Ísland næst á eftir Finn­landi og Eystra­salts­ríkj­unum á lista Evr­ópu­ríkja sem fluttu mest af mat­vælum inn á Rúss­lands­markað. Stöðugur upp­gangur hafði verið í sölu sjáv­ar­af­urða til Rúss­lands árin þar á undan en útflutn­ingur á mak­ríl til Rúss­lands fór úr því að vera eng­inn í 9 millj­arðar frá 2013 til 2014. Það ár var mak­ríll um 40 pró­sent af heild­ar­út­flutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða sem flutt var til Rúss­lands. [adspot]

Útflutningur til Rússlands nam 29 milljörðum árið 2014

Útflutn­ingur til Rúss­lands árið 2014, síð­asta heila árið áður en kom að gagn­þving­un­ar­að­gerðum Rúss­lands gegn Íslandi, nam rúm­lega 29 millj­örðum króna og þar af fiskur fyrir 23,9 millj­arða króna, þá eru ekki talin með þjón­ustu­við­skipti upp á rúm­lega 5,6 millj­arða króna. Ísland var ekki á lista fyrir ríki í inn­flutn­ings­banni fyrsta árið þrátt fyrir að taka þátt í þving­un­ar­að­gerð­unum en var bætt á hann 13. ágúst 2015 ásamt sex öðrum ríkjum. Ef bor­inn er saman heild­ar­út­flutn­ingur Íslands til Rúss­lands árið 2014 við útflutn­ing bæði 2016 og fyrri helm­ing 2017 þá sýna tölur Hag­stof­unnar 90 pró­sent sam­drátt í heild­ar­út­flutn­ingi. Sé vöru­út­flutn­ingur á árinu 2016 bor­inn saman við árin 2012 og 2013 nemur sam­dráttur á milli 87 til 89 pró­sent.

Á seinni helm­ingi árs­ins 2017 voru seld gömul fiski­skip til Rúss­lands sem skekkir heild­ar­töl­urnar segir í svari utan­rík­is­ráð­herra. Heild­ar­út­flutn­ingur til Rúss­lands 2017 nam rúmum 7 millj­örðum, þar af gömul fiski­skip fyrir 5,3 millj­arða. Unnar sjáv­ar­af­urðir, nið­ur­soðin lifur, feiti og olíur, voru fluttar út fyrir 438 millj­ónir og kjöt fyrir 156 millj­ónir. Útflutn­ingur fisks nam 328 millj­ónum en þarna er um að ræða fisk með græn­lenskan upp­runa sem landað hefur verið á Íslandi fyrir útflutn­ing til Rúss­lands. Í svar­inu segir að þessi þróun hefur haldið áfram og það sem af er ári hefur verið flutt út til Rúss­lands vörur fyrir u.þ.b. 8,5 millj­arða kr., þar ef eru notuð fiski­skip rúmir 6 millj­arðar kr.

Ekki fundist jafnarðbærir markaðir

Í fyr­ir­spurn­inni er óskað eftir svörum um hvernig þving­anir hafa snert íslenska hags­muni og í svar­inu segir að fyrir liggur að kostn­aður Íslands við þving­anir sé veru­legur þar sem ekki hafi fund­ist jafn­arð­bærir mark­aðir fyrir upp­sjáv­ar­fisk, sér­stak­lega mak­ríl, loðnu, loðnu­hrogn og síld, sem mikið var flutt af til Rúss­lands fram til 2015. „Áhrif­anna hefur gætt mjög greini­lega í þeim bæj­ar­fé­lögum á Íslandi þar sem upp­sjáv­ar­vinnsla er burða­rás atvinnu­lífs­ins“ segir í svar­inu. Þó er bent á að en til þess verður þó að taka að afurð­irnar hafi í sumum til­vikum farið á aðra mark­aði en að lægra verð fáist fyrir þá og meira magn fari í bræðslu, ásamt því hefur birgða­kostn­aður auk­ist.

Utan­rík­is­ráð­herra segir í svar­inu að ómögu­legt sé að spá um lang­tíma­á­hrif banns­ins á mark­aðs­að­gengi og mögu­lega breyttar neyslu­venjur í fram­tíð­inni en þessi staða sé vissu­lega áhyggju­efni fyrir íslenska útflytj­endur. Í svari utan­rík­is­ráð­herra er þó tekið fram að það eru ekki þving­un­ar­að­gerðir vest­rænna ríkja gagn­vart Rúss­landi sem hafa valdið íslenskum fyr­ir­tækjum búsifjum heldur sé við gagn­þving­un­ar­að­gerðir Rússa að sakast.

Í svar­inu segir jafn­framt að ef þving­un­unum skyldi vera létt þá beri að hafa í huga að rúss­neskur mark­aður hefur breyst mjög mikið á síð­ustu árum. Fiskneysla í Rúss­landi hefur dreg­ist saman um 15 til 30 pró­sent sam­hliða minna fram­boði þar í landi. En á milli 2013 og 2016 var 51 pró­sent sam­dráttur í inn­flutn­ingi sjáv­ar­af­urða og verð á fiski út í búð hækk­aði um 40 til 50 pró­sent í Rúss­landi, bæði vegna minna fram­boðs en aðal­lega vegna falls rúblunnar. Í svar­inu er hins vegar bent á að upp­sjáv­ar­fiskur er hins vegar ódýr vara og eft­ir­spurn ætti því enn að vera til staðar.

Ásamt því er bent á að kaup­geta almenn­ings í Rúss­landi hefur minnkað sam­fara efna­hags­sam­drætti og veik­ingu rúblunnar í kjöl­far efna­hags­þving­ana og lækk­andi hrá­ol­íu­verðs á árunum 2014 til 2018. Í svar­inu segir einnig að styrk­ing krón­unnar frá 2015 hefði trú­lega haft áhrif á arð­bærni útflutn­ings til Rúss­lands, líkt og gildir um útflutn­ings­greinar almennt. Að lokum segir í svar­inu að rúss­nesk stjórn­völd hafi lagt á það áherslu síð­ustu miss­eri að byggja upp sjálf­bær­ari mat­væla­vinnslu innan lands með styrk­ingu land­bún­aðar og sjáv­ar­út­vegs. Þessi upp­bygg­ing kann að draga úr inn­flutn­ingi til lengri tíma litið en hefur jafn­framt skapað mikil tæki­færi fyrir íslensk þekk­ing­ar­fyr­ir­tæki í hönnun og fram­leiðslu fiski­skipa, útgerð­ar­tækni, veið­ar­færa og mat­væla­vinnslu.

Þvingunaraðferðum að þakka að Rússland hafi ekki gengið lengra

[links]Í mars­mán­uði árið 2014 til­kynntu hart­nær 40 ríki um þving­un­ar­að­gerðir gegn Rúss­landi, þeirra á meðal voru öll ríki EES-sam­starfs­ins. Þær þving­anir voru sam­eig­in­leg við­brögð við inn­rás Rússa í Úkra­ínu, her­töku Krím­skaga og stuðn­ingi þeirra við aðskiln­að­ar­sinna í aust­ur­hluta Úkra­ínu. Utan­rík­is­ráðu­neyti Íslands gaf út frétta­til­kynn­ingu þann 17. mars 2014 þar sem lýst var yfir stuðn­ingi við þving­un­ar­að­gerð­irnar og til­kynnt að Ísland mundi einnig beita slíkum þving­un­ar­að­gerðum.

Í svari utan­rík­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Karls Gauta segir utan­rík­is­ráð­herra að mark­mið þving­un­ar­að­gerða vest­ur­land­anna sé einkum þrí­þætt. Í fyrsta lagi að sendi þau póli­tísku skila­boð að afleið­ingar fylgdu aðgerðum rúss­neskra stjórn­valda í Úkraínu, þar sem alþjóða­lög voru þver­brotin og landa­mærum breytt með vopna­valdi sem ekki eigi sér hlið­stæðu í sögu Evrópu frá tímum síð­ari heims­styrj­aldar.

Í öðru lagi sé mark­miðið að letja rúss­nesk stjórn­völd til frek­ari aðgerða gagn­vart Úkraínu. Í þriðja lagi segir í svar­inu að mark­miðið sé að fá rúss­nesk stjórn­völd til að falla frá stefnu sinni gagn­vart Úkraínu, bæði er varðar Krím­skaga og aust­ur­hluta lands­ins.

Í svar­inu segir að þving­un­ar­að­gerð­irnar hafi ekki haft þau áhrif að Rússland falli frá stefnu sinni gagn­vart Úkraínu, en færa má gild rök fyrir því að Rússland hafi, sökum þeirra, ekki gengið lengra gagn­vart Úkraínu en raun ber vitni.

Ekki stendur til að endurskoða þvingunaraðgerðir Íslands

Í fyr­ir­spurn­inni er einnig er leit­ast eftir svörum um hvort að þving­arnir séu reglu­lega end­ur­skoð­aðar. Í svar­inu segir að við end­ur­skoðun á þving­un­ar­að­gerðum vegna ástands­ins í Úkraínu eru það einkum svo­kall­aðir Minsk-samn­ingar sem hafðir eru til grund­vallar. Í Minsk-samn­ing­unum er meðal ann­ars kveðið á um vopna­hlé, brott­flutn­ing her­gagna frá átaka­línum, aðgengi að átaka­svæðum og stjórn­ar­fars­legar umbætur. Í svar­inu segir að því fari fjarri að Minsk-samn­ing­arnir hafi kom­ist til fram­kvæmda og því hafa Vest­ur­veldin, þar með talið Ísland, við­haldið þving­un­ar­að­gerðum sínum.

Utan­rík­is­ráð­herra bendir á í svari sínu að utan­rík­is­ráðu­neytið hafi leitað eftir sam­starfi við Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi í því augna­miði að skoða með hvaða hætti komið verði til móts við hina töp­uðu mark­aðs­stöðu í Rúss­landi. Þá segir að utan­rík­is­ráð­herra og fyr­ir­renn­arar hans hafi ítrekað bent á áhrif gagn­að­gerða Rúss­lands á íslenska hags­muni og kallað eftir auk­inni sam­heldni á meðal vest­rænna ríkja, síð­ast í ágúst 2017 í bréfi til utan­rík­is­mála­stjóra Evr­ópu­sam­bands­ins. Í kjöl­farið hafi Evr­ópu­sam­bandið boðið Íslandi til við­ræðna um mögu­leg úrræði og að í svar­inu segir að þær við­ræður standi enn yfir.

Ekki kannað hvort að ríkið kunni að vera skaðabótaskylt

Karl Gauti spyr að lokum í fyr­ir­spurn sinni hvort að kannað hafi verið hvort að ríkið sé skaða­bóta­skylt gagn­vart íslenskum atvinnu­fyr­ir­tækjum sem hafi orðið fyrir við­skipta­lega tjóni vegna aðildar Íslands að þving­unum. Í svar­inu segir að ekki hafi verið gerð könnun á því hvort íslenska ríkið kunni að vera skaða­bóta­skylt gagn­vart íslenskum aðilum vegna aðildar Íslands að þving­un­ar­að­gerð­unum. Bent er á í svar­inu að það sé ákvörðun rúss­neskra stjórn­valda að beita ríki gagn­þving­un­ar­að­gerðum, sem gæti orðið grund­völlur bóta­skyldu. Um hana færi sam­kvæmt almennum reglum skaða­bóta­réttar, þar á meðal þyrftu almenn skil­yrði bóta­réttar að vera upp­fyllt, svo sem að tjón hafi orðið, fjár­hags­legt eða ófjár­hags­legt, fyrir hendi séu orsaka­tengsl milli þess og tjóns­vald­andi atburðar og bóta­grund­völlur sé að öðru leyti fyrir hendi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár