Ísland breytti afstöðu sinni gagnvart Rússlandi

Gæta mátti stefnu­breyt­ingu í utan­rík­is­stefnu Íslands gagn­vart Rúss­landi eftir fjöl­miðla­her­ferð sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja árið 2015, sam­kvæmt nýrri fræði­grein.

Vladimír Pútín, forseti Rússlands.
Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands. Mynd: ALEXEI NIKOLSKY / RIA NOVOSTI / / EPA

Utan­rík­is­stefna Íslands varð mild­ari í garð Rúss­lands árið 2015 eftir að hags­muna­að­ilar höfðu beitt stjórn­völdum þrýst­ingi, en síðan þá hefur Ísland ekki tekið þátt í yfir­lýs­ingum ESB um við­skipta­þving­anir gagn­vart Rússum vegna Úkraínu. Þetta eru nið­ur­stöður fræði­greinar sem mun birt­ast á næstu vikum í tíma­rit­inu Global Affairs.

Herferð SFS

Höfundar grein­ar­innar eru Baldur Þór­halls­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við HÍ, og Pétur Gunn­ars­son, stjórn­mála­fræð­ingur frá London School of Economics, en sam­kvæmt þeim mátti greina stefnu­breyt­ingu hjá íslenskum stjórn­völdum á seinni hluta árs­ins 2015.

Ári fyrr, þann 14. mars 2014, höfðu Banda­ríkin og Evr­ópu­sam­bandið komið á við­skipta­þving­unum við Rússland vegna inn­rás­ar­innar í Úkraínu og her­námi Krím­skaga. Ísland tók þátt í þving­un­unum sam­dæg­urs, en Gunnar Bragi Sveins­son, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra, sagði þá ákvörðun aðal­lega hafa verið tekna vegna þrýst­ings frá Banda­ríkj­unum og Evr­ópu­sam­band­inu.

Þann 13. ágúst 2015 svar­aði svo rúss­neska rík­is­stjórnin ákvörðun Íslands með refsi­að­gerðum, en í þeim fólst meðal ann­ars bann á inn­flutn­ingi á fiski frá Íslandi. Í kjöl­farið lögð­ust hags­muna­hópar útgerð­anna, með Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) í far­ar­broddi, í umfangs­mikla fjöl­miðla­her­ferð gegn við­skipta­þving­unum við Rússland. 

Ekki hægt að elta ESB blindandi

Svo virð­ist sem her­ferðin hafi haft tölu­verð áhrif á fram­gang stjórn­valda, en þrátt fyrir að Ísland hafi ekki dregið sig form­lega úr við­skipta­þving­un­unum er rík­is­stjórnin nú treg­ari til að styðja yfir­lýs­ingar ESB gegn Rúss­landi. 

Árið 2014 tók Ísland þátt í nær öllum yfir­lýs­ingum Evr­ópu­sam­bands­ins um utan­rík­is­mál, en þá sat rík­is­stjórnin aðeins hjá í einni yfir­lýs­ingu. Árin 2015 og 2016 sat Ísland hins vegar hjá í 20 yfir­lýs­ingum, þar af tengd­ust 8 þeirra mál­efnum Úkraínu.

Yfir­lýs­ingar íslenskra stjórn­mála­manna breytt­ust einnig, en snemma árs 2016 sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Ísland ekki bara geta „elt ESB og tekið þátt í við­skipta­þving­unum blind­andi.“ Um svipað leyti lýsti þáver­andi sjáv­ar­út­vegs-og land­bún­að­ar­ráð­herra, Sigurður Ingi Jóhanns­son, yfir­stand­andi þving­unum sem „tákn­rænum“.

Í grein­inni er einnig haft eftir hátt­settum emb­ætt­is­manni Evr­ópu­sam­bands­ins að stefnu­breyt­ing Íslands í utan­rík­is­málum „kæmi á óvart“ og að „tekið væri eftir henni“ í Brussel. Hins vegar bætti hann við að þátt­taka Íslands í við­skipta­þving­un­unum væri það eina sem skipti máli, en Evr­ópu­sam­bandið kynni að meta hlut Íslands í þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár