Peningastefnunefnd: Þörf á meira aðhaldi í ríkisfjármálum

Áfram­hald­andi spenna er í hag­kerf­inu. Krefj­andi kjara­samn­ingar eru framundan, með til­liti til hag­stjórn­ar­innar.

Í skýrslu pen­inga­stefnu­nefndar til Alþingis, sem birt hefur verið á vef Seðla­bank­ans, kemur fram að þörf sé á miklu aðhaldi í rík­is­fjár­mál­unum á næst­unni. Tölur þjóð­hags­reikn­inga frá því í des­em­ber hafi sýnt meiri spennu í hag­kerf­inu, og meiri vöxt eft­ir­spurngar, en búist hafði verið við í nóv­em­ber­spá bank­ans. „Nefnd­ar­menn voru einnig sam­mála um að aðhaldið þyrfti að vera meira en ella slakni á aðhaldi í rík­is­fjár­málum á þessu ári miðað við það sem gert var ráð fyrir í nóv­em­ber. Voru nefnd­ar­menn sam­mála um að pen­inga­stefnan myndi á kom­andi miss­erum ráð­ast af fram­vindu efna­hags­mála, þ.m.t. stefn­unni í opin­berum fjár­málum og nið­ur­stöðu kjara­samn­inga.“

Í skýrsl­unni er enn fremur fjallað um verð­bólgu­horfur, og gerir spá Seðla­bank­ans ráð fyrir að verð­bólgan þok­ist upp á við á næstu miss­erum í átt að 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­að­inu, en verð­bólga mælist nú 1,9 pró­sent. Meg­in­vextir bank­ans eru nú 4,25 pró­sent.

Það sem helst hefur haldið lífi í verð­bólg­unni, ef svo má segja, er mikil hækkun hús­næð­is­verðs á síð­ustu árum. Merki hafa þó komið fram um það að und­an­förnu, að það sé tekið að hægja á verð­hækk­unum, en á und­an­förnu ári hefur hús­næð­is­verð hækkað um tæp­lega 13 pró­sent. Í júlí í fyrra var hækk­unin á ári rúm­lega 20 pró­sent, sem þá var mesta og hrað­asta hækkun hús­næð­is­verðs meðal þró­aðra ríkja í heim­inum.

Atvinnu­leysi mælist nú 2 til 3 pró­sent, og virð­ist mikil spenna á vinnu­mark­aði. Það er vöntun á vinnu­afli víða, ekki síst í bygg­ing­ar­geir­anum og í ferða­þjón­ustu.

Í skýrslu pen­inga­stefnu­nefndar er enn fremur fjallað um þróun mála þegar kemur að almennu verð­lagi. Er því meðal ann­ars velt upp hvort aukin sam­keppni í verslun hafi haft áhrif á verð­lags­þróun. „Aukin sam­keppni við net­verslun og inn­koma alþjóð­legra smá­sölurisa á inn­lendan smá­sölu­markað kunna að hafa dregið eitt­hvað úr áhrifum geng­is­lækk­unar krón­unnar sl. sumar á verð­lag. Verð inn­lendrar vöru hafði í des­em­ber hækkað um 1% milli ára en hafði lækkað um 1,6% milli ára í júní sl. Inn­lendur verð­bólgu­þrýst­ingur hefur því auk­ist á þann mæli­kvarða að und­an­förnu,“ segir í skýrsl­unni.

Í pen­inga­stefnu­nefnd­inni eru Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri og for­maður, Arnór Sig­hvats­son, aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri, Þórarinn G. Pét­urs­son, aðal­hag­fræð­ingur, Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði við HÍ, og Katrín Ólafs­dóttir, lektor í hag­fræði við HR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár