Guðrún Aspelund nýr sóttvarnalæknir

Yfir­læknir á sviði sóttvarna hefur verið ráðinn sóttvarna­læknir en Þórólfur Guðnason lætur af störfum í byrjun september næst­komandi.

Guðrún Aspelund
Guðrún Aspelund Mynd: Landlæknir

Guðrún Aspelund hefur verið ráðin sóttvarna­læknir við embætti land­læknis frá og með 1. september 2022. Þetta kemur fram á vef embættis land­læknis í dag.

Hún starfar nú sem yfir­læknir á sviði sóttvarna hjá embættinu. Hún hefur embættis­próf í læknis­fræði frá Háskóla Íslands og sérfræði­menntun í bæði almennum skurð­lækningum og barna­skurð­lækningum en hún var lektor og barna­skurðlæknir við Columbia-háskóla á árunum 2007 til 2017.

Starf sóttvarna­læknis var auglýst 13. maí síðastliðinn en Þórólfur Guðnason lætur af störfum í byrjun september 2022. Auglýsingin var birt á Starfa­torgi og í fjöl­miðlum og var umsóknar­frestur til og með 13. júní. Ekki bárust fleiri umsóknir en frá Guðrúnu. Ráðning var ákveðin í kjölfar mats á umsókn og ítarlegs viðtals en með landlækni í því ferli voru Óskar Reyk­dalsson forstjóri Heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðisins, Unnur Valdimars­dóttur prófessor í faralds­fræði við Lækna­deild Háskóla Íslands og Þórgunnur Hjalta­dóttir sviðs­stjóri hjá embætti land­læknis.

„Guðrún, sem jafnframt hefur lokið meistara­námi í líftölfræði, hefur góða þekkingu á smit­sjúkdómum og faralds­fræði þeirra og hefur að auki komið að birtingu vísinda­greina um smit­sjúkdóma og sýkla­lyfjanotkun. Hún hefur öðlast mikla þekkingu og reynslu á verkefnum sóttvarna­sviðs í starfi sínu undan­farin ár. Þá hefur hún einnig reynslu og stundar nám á sviði opinberrar stjórn­sýslu,“ segir á vef land­læknis.

Guðrún segist hafa öðlast góða sýn á starf sóttvarnar­læknis undan­farin ár og sé í starfinu tækifæri til að láta gott af mér leiða. „Ég geri mér grein fyrir að starfinu fylgir mikil ábyrgð og ég hlakka til að takast á við verkefnin sem eru framundan,“ segir hún.

„Ég er mjög ánægð með ráðningu Guðrúnar í starf sóttvarna­læknis. Hún er með góða menntun og reynslu sem mun nýtast en hefur einnig til að bera nauðsyn­lega eigin­leika fyrir krefjandi starf sóttvarna­læknis, m.a. góða samskipta­hæfni, vinnusemi, skipulags­hæfni, sjálf­stæði og yfirvegun,“ segir Alma D. Möller land­læknir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár