Þegar verðbólgan fór mest upp í 85,7 prósent

Verð­bólga hefur lengið plagað íslenskt sam­fé­lag og var árið 1983 ein­stak­lega erfitt í því sam­bandi en þá voru ýmis Íslands­met slegin. Kjarninn rifjar upp hvaðan orðið kemur og hvernig ástandið var árið 1983.

Í byrjun árs 1981 varð gjaldmiðilsbreyting á Íslandi og nýir peningaseðlar voru gefnir út, þar á meðal 10 krónu seðillinn.
Í byrjun árs 1981 varð gjald­mið­ils­breyt­ing á Íslandi og nýir pen­inga­seðlar voru gefnir út, þar á meðal 10 krónu seð­ill­inn.

Mesta verð­bólga sem mælst hefur á full­veld­is­tím­anum var árið 1983 þegar hún fór upp í 85,7 pró­sent. Verð­bólga – miðað við vísi­tölu neyslu­verðs án hús­næðis – mæld­ist 37,8 pró­sent full­veld­is­árið 1918 en árið 1922 var mesta verð­hjöðnun sem mælst hefur á Íslandi, eða 19,7 pró­sent.

Þetta kemur fram í nýrri frétt Hag­stof­unnar sem birt­ist í til­efni ald­ar­af­mælis sjálf­stæðis og full­veldis Íslands.

Á Vís­inda­vef Háskóla Íslands segir að árið 1983 hafi ýmis Íslands­met í verð­bólgu verið slegin og hefðu Íslend­ingar þó ýmsu van­ist í verð­lags­málum áður. Ef miðað er við vísi­tölu neyslu­verðs, sem þá hét vísi­tala fram­færslu­kostn­aðar, varð verð­bólgan mest frá febr­úar til mars það ár en vísi­talan hækk­aði um 10,3 pró­sent milli þess­ara tveggja mán­aða. Það sam­svarar 225 pró­sent verð­bólgu á ári.

Verð­bólgan fór alvar­lega úr bönd­unum síð­ari hluta árs­ins 1982. Í sept­em­ber það ár hækk­aði vísi­talan um 8,4 pró­sent. Verð­bólgan róað­ist ekki fyrr en ári síðar. Í sept­em­ber 1983 hækk­aði vísi­talan um 0,5 pró­sent á milli mán­aða og var það í fyrsta sinn í rúm tvö ár sem hún hækk­aði um minna en 1 pró­sent á milli mán­aða.

Í tólf mán­uði á undan, það er frá ágúst 1982 til ágúst 1983, hækk­aði vísi­talan um 103 pró­sent, en það þýðir að verð­lag ríf­lega tvö­fald­að­ist á tólf mán­uðum. Það þýðir þá auð­vitað líka að sá sem átti pen­inga­seðil í ágúst 1982 gat keypt helm­ingi minna fyrir hann í ágúst 1983. Verð­bólgan allt árið 1983, það er frá jan­úar 1983 til jan­úar 1984, mæld­ist rúm 70 pró­sent.

Orðið verðbólga ekki gamalt í íslensku

Orðið verð­bólga hefur oft sett sterkan svip á umræðu um íslenskt efna­hags- og stjórn­mála­líf á und­an­förnum ára­tugum, segir Jón Hilmar Jónsson, rann­sókn­ar­pró­fessor á orð­fræðisviði við Stofnun Árna Magn­ús­sonar í íslenskum fræðum, í grein sinni á Vís­inda­vefnum. Hann bendir á að ein­föld orða­bók­ar­skýr­ing á hug­tak­inu sé „almenn verð­hækkun sam­fara verð­falli á gjald­eyri“.

„Meg­in­heiti hug­taks­ins í nálægum tungu­málum er inflation, orð af lat­neskri rót sem vísar upp­haf­lega til þess að eitt­hvað sé fyllt lofti eða blásið út. Hin hag­fræði­lega merk­ing orðs­ins kemur til sög­unnar í ensku um miðja 19. öld,“ segir hann.

Orðið verð­bólga er ekki mjög gam­alt í íslensku, lík­lega frá þriðja ára­tug síð­ustu aldar, en orðið er í hópi þeirra fjöl­mörgu íslensku nýyrða þar sem orð­mynd­unin er lýsandi um merk­ing­una, jafn­framt því sem greina má end­uróm erlendrar fyr­ir­myndar. Elsta dæmi um orðið í rit­máls­safni Orða­bók­ar­innar er úr þing­ræðu á Alþingi frá árinu 1927, þar sem Jónas Jónsson frá Hriflu á í orða­skiptum við Jón Þor­láks­son for­sæt­is­ráð­herra, og gerir þar eft­ir­far­andi athuga­semd:

En fjár­glæfra­menn er eins góð þýð­ing og sum þau orð, sem hæstv. ráðh. hefir auðgað tungu vora með, t.d. verð­bólga o.s.frv.

Á Vís­inda­vefnum er bent á að Héðinn Valdi­mars­son hafi notað orðið verð­lags­bólga í grein­inni „Þróun auð­magns­ins“ sem hann ritar í Skírni árið 1925:

Stríðs­gróð­inn lenti hjá stór­iðj­unni, og end­ur­reisn heilla lands­hluta gáfu henni aftur ágætan arð. Verð­lags­bólgan víðs­vegar um Norð­ur­álf­una flýtti fyrir þessu.

Tók nokkurn tíma fyrir orðið að festa sig í sessi

Jón Hilmar segir að svo sé að sjá sem nokkur tími hafi liðið þar til orðið verð­bólga hafi fest sig í sessi, að minnsta kosti í almennu máli. Elsta finn­an­legt dæmi um notkun þess í Morg­un­blað­inu er frá árinu 1931, þar sem sagt er frá falli sterl­ingspunds­ins:

Með lækkun punds­ins ætla Eng­lend­ingar sjer að skapa hæg­fara verð­bólgu (inflation) og örva atvinnu­lífið í Englandi.

Hann gerir ekki ráð fyrir að orðið sé orðið alkunn­ugt á þessum tíma, því erlenda jafn­heitið sé haft í svigum til glöggv­unar.

„Af orð­inu verð­bólga hefur sprottið fjöl­skrúð­ugt orða­far sem á sinn hátt er lýsandi um þá mynd sem mál­not­endur gera sér af fyr­ir­bær­inu, eðli þess og áhrifum. Eftir því sem verð­bólgan magn­ast og verður þrá­lát­ari mót­ast sú lík­ing sem fólgin er í orð­inu verð­bólgu­draugur,“ segir á Vís­inda­vefnum.

Jafn­framt segir að orðið verð­bólgu­draugur end­ur­spegli vel þá afstöðu og reynslu að erfitt sé að ráða nið­ur­lögum verð­bólg­unnar og hún geri mönnum lífið leitt. En verð­bólgan hafi einnig þá ímynd að vera óvið­ráð­an­leg og stjórn­ast af sínu innra afli sem eng­inn fær við ráðið. Til marks um það séu orðin verð­bólgu­skrúfa og verð­bólgu­hjól, sem oft hafi verið gripið til í umræð­unni.

Verðgildi krónunnar hundraðfaldað

Í byrjun árs 1981 varð gjald­mið­ils­breyt­ing á Íslandi; nýir pen­inga­seðlar voru gefnir út og verð­gildi krón­unnar var hund­rað­faldað. Meðal ann­ars voru sett­ir 10, 50, 100 og 500 króna seðlar í um­ferð. Af þeim er nú aðeins 500 krónu seð­ill­inn enn í gildi en seinna bætt­ust við 1000, 2000, 5000 og 10000 króna seðlar.

Þótt útgáfu 10, 50 og 100 krónu seðla hafi verið hætt á níunda og tíunda ára­tug síð­ustu aldar þá voru þeir enn í umferð lengi á eftir. Í nóv­em­ber 2005 var sett reglu­gerð um inn­köllun þess­ara seðla og var frestur til að skila þeim inn til 1. júní 2007. Eftir það var ekki hægt að nota seðl­ana. Í lok apríl árið 2006 voru enn í um­ferð um 119 millj­ón­ir króna af 10, 50 og 100 króna seðlum, sam­kvæmt frétt Morg­un­blaðs­ins sama ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár