„Óþarfa ögrun“ í orðalagi á meðal ástæðna fyrir því að Ísland sat hjá

Ísland ákvað að sitja hjá í nóv­em­ber­mán­uði þegar þings­á­lykt­un­ar­til­laga sem fól í sér beiðni um álit Alþjóða­dóm­stóls­ins í Haag á her­námi Ísraels á palest­ínskum svæðum var sam­þykkt af 4. nefnd alls­herj­ar­þings Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Musterishæðin, al-Haram al-Sharif, í Jerúsalem er einungis kölluð síðarnefnda nafninu í tillögu sem bíður afgreiðslu allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Það segir utanríkisráðuneytið „óþarfa ögrun“.
Must­er­is­hæðin, al-Haram al-Sharif, í Jer­úsalem er ein­ungis kölluð síð­ar­nefnda nafn­inu í til­lögu sem bíður afgreiðslu alls­herj­ar­þings Sam­ein­uðu þjóð­anna. Það segir utan­rík­is­ráðu­neytið „óþarfa ögrun“. Mynd: Pexels

Þann 11. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn fór fram atkvæða­greiðsla á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna, í 4. nefnd alls­herj­ar­þings­ins, um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem fól meðal ann­ars í sér að Alþjóða­dóm­stóll­inn í Haag yrði feng­inn til að veita ráð­gef­andi álit á lög­mæti her­náms Ísra­els­ríkis á land­svæðum Palest­ínu­manna.

Ísland sat hjá við þessa atkvæða­greiðslu, en það var mat Íslands „eftir ítar­lega skoðun og sam­ráð við önnur ríki að beiðni um álit Alþjóða­dóm­stóls­ins í Haag myndi ekki styrkja til­raunir til að end­ur­vekja póli­tískt sam­tal milli Ísraels og Palest­ínu, sem er for­senda þess að samið verði um tveggja ríkja lausn,“ sam­kvæmt svari sem Kjarninn fékk frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Í svar­inu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu kemur einnig fram að búast megi við að afstaða Íslands verði óbreytt við end­an­lega afgreiðslu til­lög­unnar sem fram fer síðar í mán­uð­inum á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Jafn mörg ESB-ríki með og á móti

Tillagan sem um ræðir var sam­þykkt í 4. nefnd­inni með 98 atkvæðum gegn 17 mót­at­kvæðum, en 52 ríki sátu hjá. „Flest líkt þenkj­andi ríki í Evrópu, þar á meðal Norð­ur­löndin, sátu hjá eða kusu gegn álykt­un­inni,“ segir í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Þau ríki innan Evr­ópu­sam­bands­ins sem greiddu atkvæði með álykt­un­inni í fjórðu nefnd­inni voru Írland, Portúgal, Belgía, Lúx­em­borg, Malta, Pólland og Slóvenía. Á móti voru Þýska­land, Tékkland, Ítalía, Eistland, Litáen, Aust­ur­ríki og Ung­verja­land, en önnur ríki Evrópu sátu hjá rétt eins og Ísland. Banda­ríkin greiddu atkvæði á móti álykt­un­inni.

Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur fram að afstaða Íslands hafi ráð­ist af því að það hefði verið ákjós­an­legra að bera upp beiðni um álit Alþjóða­dóm­stóls­ins „í sjálf­stæðri ályktun og efna til umræðu um það ein­göngu á for­sendum þess álita­efnis“ og bendir ráðu­neytið á að nokkrar álits­beiðnir til Alþjóða­dóm­stóls­ins hafi verið settar fram frá alda­mótum og þær allar verið settar fram í sér­stökum álykt­unum en ekki skeytt inn í aðrar álykt­anir, eins og nú sé til­fellið.

Orðalag ályktunarinnar feli í sér „óþarfa ögrun“

„Þá grefur það undan stuðn­ingi við álykt­un­ina að vísað [er] til helgi­stað­ar­ins al-Haram al-Sharif án þess að vísa líka til Must­er­is­hæð­ar­innar,“ segir einnig í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Must­er­is­hæð, eða Temple Mount upp á enska tungu, er það heiti sem gyð­ingar og kristnir nota um hæð­ina helgu í Jer­úsalem, þar sem hvoru tveggja má finna al-Aqsa mosk­una og Grát­múr­inn.

[adspot]

„Fjölmörg ríki breyttu afstöðu sinni til álykt­unar um Jer­úsalem á síð­asta alls­herj­ar­þingi vegna sams­konar orða­lags. Það er miður að ekki reynd­ist vilji til að breyta orða­lag­inu nú í sam­ræmi við þessi sjón­ar­mið heldur láta það fela í sér óþarfa ögrun og auka með því enn á sundr­ungu,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Afstaða Íslands í þess­ari atkvæða­greiðslu felur sam­kvæmt ráðu­neyt­inu ekki í sér neina stefnu­breyt­ingu hvað stefnu Íslands í mál­efnum Palest­ínu varðar, en Ísland er eitt fárra ríkja Vest­ur­landa sem við­ur­kennir sjálf­stæði Palest­ínu­ríkis og hefur gert það frá árinu 2011.

Fjöldapóstur frá Ísrael á þjóðarleiðtoga

Ísra­els­menn hafa barist gegn til­lög­unni og fram­gangi hennar á alls­herj­ar­þing­inu.

Undir lok nóv­em­ber­mán­aðar sendi Yair Lapid for­sæt­is­ráð­herra lands­ins bréf á tugi þjóð­ar­leið­toga þar sem hann óskaði eftir því að ríki beittu áhrifum sínum gagn­vart palest­ínsku heima­stjórn­inni í því skyni að koma í veg fyrir að til­lagan sem sam­þykkt var í 4. nefnd­inni fengi loka­af­greiðslu á alls­herj­ar­þing­inu.

Í bréf­inu kom Lapid því á fram­færi að ef til­raun Ísra­els­manna til þess að koma í veg fyrir atkvæða­greiðsl­una bæri ekki árangur von­að­ist Ísrael eftir því að vin­veittar þjóðir greiddu atkvæði gegn til­lög­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár